blaðið - 26.09.2005, Qupperneq 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 blaöið
Minna tjón en óttast var
Tjón eftir fellibylinn Rítu var mun minna en óttast var. íbúar í Texas eru hvattir til að
fresta heimför. Hreinsunarstarf er þegar hafið og björgunarsveitir leita að strandaglópum.
Fellibylurinn Rfta olli talsverðu tjóni f rfkjunum Texas og Louisiana en ekki nærri jafnmiklu og Katrfn.
Ibúar við strendur Texas og Louisi-
ana hófu að hreinsa brak eftir felli-
bylinn Rítu í gær og starfsmenn
orkuveitna unnu að því að koma
aftur á rafmagni til meira en millj-
ón manns í fjórum ríkjum. Tjón af
völdum fellibylsins var mun minna
en af völdum Katrínar en íbúar í
fylkjunum tveimur bjuggust engu
að síður við hinu versta.
Að minnsta kosti þrjár olíuhreinsi-
stöðvar urðu fyrir skemmdum af
völdum Rítu. Eins og Katrín lam-
aði hún næstum alla olíuvinnslu á
grunnsævi í Mexíkóflóa og tæplega
þriðjung olíuhreinsunar í landi.
Meira en 2 milljónir manna urðu
rafmagnslausir í Texas og Louisiana
og gæti tekið allt að mánuð að koma
ramagni aftur á á svæðinu.
Sérfræðingar áætla að tjón afvöld-
um fellibylsins kunni að nema allt
að 6 milljörðum Bandaríkjadala.
Auk rafmagnsleysis féllu víða tré og
eldar kviknuðu í kjölfar bylsins. I
Jaspersýslu í austurhluta Texas
gerðu tré sem lágu á víð og dreif á
vegum lögreglu erfitt fyrir að huga
að ástandi íbúa. í New Orleans
flæddi á ný í sumum hverfum og er
talið að það muni taka tvær til þrjár
vikur að dæla því vatni í burtu.
Texasbúar hvattir til
að fresta heimför
Umferðaröngþveiti var farið að
myndast á þjóðvegum á ný í gær þeg-
ar fjöldi Texasbúa hélt aftur heim
á leið eftir að hafa flúið fellibylinn.
Yfirvöld í Texas hvöttu íbúa sem flú-
ið höfðu heimili sín vegna Rítu til
að fresta heimför um sinn. „Verið
þolinmóð og haldið ykkur þar sem
þið eruð. Við höfum enn áhyggjur af
flóðum og braki sem liggur á víð og
dreif,“ sagði Rick Perry, rikisstjóri
Texas.
Björgunarsveitir leituðu í gær að
strandaglópum á Cajunsvæðinu í Lou-
isiana. Fellibylurinn olli talsverðum
skemmdum í smábæjum og borgum
austan Houston en hún slapp að mestu
við tjón. Verst var ástandið í bæjunum
Port Arthur í Texas og Lake Charles í
Louisiana. Strandbærinn Galveston
sem menn óttuðust að yrði illa leikinn
af óveðrinu slapp tiltölulega vel.
Öfugt við það sem gerðist eftir Katr-
ínu brugðust björgunarsveitir skjótt
við og sú alda glæpa, ofbeldis og öng-
þveitis sem skók New Orleans endur-
tóksigekki.
í Texas var meira öngþveiti fyrir
bylinn en eftir hann þegar næst-
um þrjár milljónir manna flúðu
i norðurátt sem olli einhverjum
mestu umferðartöfum í sögu þjóð-
arinnar og bensínskorti. Bilaðir og
bensínlausir bílar sátu víða fastir
á vegum eða í vegarköntum og 23
eldri borgarar fórust þegar eldur
braust út í rútu sem þeir voru far-
þegar í. ■
Eldur í flutn-
ingaskipi
Betur fór en á horfðist þegar
eldur braust út í flutningaskipi
sem lestað var um 3000 tonn-
um af hættulegum efnum utan
við Álandseyjar í gærmorgun.
Áhöfn skipsins sem skráð er á
Italíu tókst að slökkva eldinn
um klukkutíma eftir að hann
braust út í vélasal þess. Ljóst
þykir að afleiðingar eldsins
hefðu getað orðið mjög alvar-
legar en skipið var á fjölfarinni
sjóleið þegar hann braust út.
Eftir að búið var að koma í veg
fyrir eldinn hélt skipið för sinni
áfram til Porvo í Finnlandi. ■
Mannfall
í írak
Þrettán íraskir sérsveitarmenn
fórust og tíu særðust í sjálfs-
morðsárás í Bagdad í gær. Að
sögn lögreglunnar í írak var
bfll sem sérsveitarmennirnir
ferðuðust í sprengdur í loft
upp á þjóðvegi fyrir austan höf-
uðborgina. Sprengingin varð í
kjölfar átaka mihi bandarískra
hersveita og uppreisnarhers
sjítamúslima aðfararnótt
laugardags.Átta uppreisnar-
menn fórust og fimm særðust
í átökunum. Meira mannfall
varð í öðrum árásum í landinu
í gær, til dæmis fórust fjórir
þegar maður sprengdi sig í loft
upp á fjölmennum grænmet-
ismarkaði í borginni Hiha. ■
ótrmmústt
JÁRN- OG PLASTMÓDEL
f MIKLU ÚRVALI.
Tómstundahúsið
Nethyl 2,
sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
Niðurstöður nýrrar víðtœkrar rannsóknar:
Fáeinar rettur á dag drepa
Manni er þrisvar sinnum hættara
við að deyja af hjartasjúkdómum
þó að maður reyki ekki nema eina
til fjórar sígarettur á dag sam-
kvæmt nýrri norskri rannsókn.
Hún sýnir ennfremur að reyking-
ar hafa meiri áhrif á heilsu kvenna
og að jafnvel þeir sem reyki tjöru-
minni „light“ sígarettur eigi á
hættu að fá svipaða sjúkdóma og
stórreykingamenn, þar á meðal
krabbamein.
Niðurstöðurnar byggjast á yf-
irgripsmiklum rannsóknum á
heilsufari og dánartfðni nærri
43.000 karla og kvenna frá miðj-
um áttunda áratugnum til ársins
2002.
I samanburði við þá sem aldrei
hafa reykt eru þeir karlar og konur
sem reykja eina til fjórar sígarettur
Nýleg norsk rannsókn sýnirfram á aö þó
aö maður reyki aðeins örfáar sígarettur
á dag margfaldast líkur á aö maður fái
ýmsa banvæna sjúkdóma.
á dag í nærri þrisvar sinnum meiri
hættu á að deyja úr kransæðastf flu.
Konur sem reykja eina til fjórar
sígarettur á dag juku líkurnar á að
deyja úr lungnakrabbameini næst-
um fimmfalt. Körlum sem reykja
jafnmikið er aftur á móti „aðeins“
þrisvar sinnum hættara við að
deyja úr lungnakrabbameini en
þeim sem aldrei hafa reykt. Þá eru
svo kallaðir „light“ reykingamenn
sem reykja tjöruminni sígarettur
í talsvert meiri hættu á að deyja
úr lungnakrabba en þeir sem hafa
aldrei reykt.
Engin örugg mörk
Amanda Sandford, talsmaður
Átaksverkefnis gegn reykingum
sagði að niðurstöðurnar væru
skýrar. „Rannsóknin ætti að eyða
þeirri ranghugmynd í eitt skipti
fyrir öll að það sé manni skaðlaust
að reykja aðeins fáeinar sígarettur
á dag. Það eru einfaldlega engin ör-
ugg mörk,“ sagði Sandford. ■
•I
DI MDSIw SHBKIUUR
Hafnarflrðl
Krístján Ármansson
Stofnun&rekstur
smáfyrirtækja
Tungumálanám
Spænska,enska,
rússneska ofl.
Fjármálanámskeið med
Ingólfi Ingólfssyni
Hvernig eignast
ég peninga?
Jón E Gunnlaugsson
ísL lækningajurtir
I samstarfi við Kramhúsið
með tangókcnnurunum
Hany og Bryndísi
TANGO
Tónlist
Hljómborð
Trommur
Bassi
Fiðla
Textagerð
Söngskóli
Hlustun á klassík
Hilmar Gunnarsson
Portfolioö54
Handverk og listir
Leirmótun
Tréútskurður
Skrautritun
Raddbeiting, öndun, fram-
koma. Frabært söngnám
med Grétu Jónsdóttur
KARAOKE
Saumanám
Prjónað & þæft
CrazyQuilt
Swiss mocca Cappucino,
Expresso ofl frá Te & kaffi
Kaffinámskeið
Heilsa, útlit og hreysti
Klassískt nudd.
Svæðanudd
Bergþór Pálsson
Boð og borðsiðir
Þorsteinn Eggertsson
Skopmyndateikning
Matreiðslunámskeið með
Marentza Poulsen
TAPAS smáréttir
Kristjgn Helgason
HLATURJOGA
Ólafur Þór Svavarsson
Stafræn myndavél
Helga Kristjánsdóttir naglafr.
Naglaásetningamám
Óskar Einarsson
IGOSPEL
Upplýslngar í
sima 585-5860
namsflokkar.hafnarfjordur.is