blaðið - 26.09.2005, Page 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 blaðiö
ísrael ræðst á Gasa
Palestínsk ungmenni hjálpa særðum félaga slnum að komast á sjúkrahús eftir árásir
fsraelsmanna.
Kjarnorkumál í íran
Deilan
harðnar
franar hótuðu að koma í veg
fyrir skyndieftirlit í kjarn-
orkuverum landsins eftir að
samþykkt var að kæra landið
til öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna vegna kjarnorkuáætlunar
þess. Kína, Rússland og Suður
Afríka sem áður studdu frana
sátu hjá f atkvæðagreiðslu um
málið hjá Alþjóðakjarnorku-
málastofnuninni á laugardag.
Indland kom öllum á óvart
með því að greiða atkvæði með
ályktuninni líkt og Bandarík-
in, Frakkfand og Bretland.
Manoucher Mottaki, utan-
ríkisráðherra frans, hafnaði
ályktuninni á þeirri forsendu að
hún stæðist ekki lög. Samkvæmt
henni eiga íranar að taka aftur
upp viðræður við Frakka, Breta
og Þjóðverja og fresta tilraunum
til auðgunar úrans þangað til
að þeir geti sannað að þær séu
í ffiðsamlegum tilgangi. franar
neita því að þeir hafi í hyggju
að smíða kjarnavopn og segja
kjarnorkuáætlun sína eingöngu
ætlaða til raforkuframleiðslu.
Vopnahléi stefnt i voða
ísraelsmenn gerðu árásir á Gasaströnd
og handtóku meira en 200 grunaða
vígamenn á Vesturbakkanum í gær.
Ariel Sharon, forsætisráðherra fsraels,
fyrirskipaði hemum að beita öllum
mögulegum ráðum til að koma í veg fyr-
ir eldflaugaárásir frá svæðinu. Þetta var
versta alda ofbeldis síðan ísraelsmenn
hurfu á brott af Gasasvæðinu fyrr í mán-
uðinum eftir 38 ára hemám. Aðgerðirn-
ar stefhdu viðkvæmu vopnahléi þjóð-
anna í voða og juku þrýsting á Sharon
sem hefur legið undir harðri gagnrýni
hægrimanna vegna brotthvarfsins.
Skotmörkvombyggingarvígamanna
í norðurhluta Gasasvæðis samkvæmt
heimildar mönnum innan ísraelska hers-
ins. Tveir vígamenn féllu og 20 manns
særðust í svipuðum árásum á laugardag.
Á Vesturbakkanum handtóku hersveitir
207 menn sem grunaðir em um að vera
múslímskir vígamenn í einhverjum
hörðustu aðgerðum f marga mánuði.
Meðal þeirra sem handteknir voru em
Hamas leiðtogamir Hassan Youssef og
Mohammed Ghazal sem þykja tiltölu-
lega hófsamir félagar samtakanna sem
heitið hafa að eyða fsrad.
Friðarviðræðum stefnt í voða
Leiðtogar Palestínumanna sökuðu
ísraelsmenn um að eyðileggja vonir
um að blása megi lífr í friðarviðræð-
urnar en þær vonir höfðu glæðst
eftir brotthvarf f sraelsmanna af Gasa-
svæðinu. Mahmoud Abbas, forseti Pal-
estínumanna, sagði að ef Sharon hefði
skipað hernum að beita fullu afh þýddi
það að „hann vildi ekki frið, öryggi eða
viðræður."
Upptök þessarar öldu ofbeldis voru
þau að sprengja sprakk á baráttufundi
Hamas á Gasasvæðinu á fostudag með
þeim afleiðingum að r6 fórust, þar á
meðal 12 ára drengur. Hamas samtök-
in kenndu f sraelsmönnum um árásina
og skutu að minnsta kosti 40 eldflaug-
um á ísrael í hefndarskyni. ísraels-
menn neita því að þeir beri ábyrgð á
árásinni og yfirvöld Palestínumanna
telja að um hafi verið að ræða slys Ham-
asliða sem bar á sér sprengiefni. ■
Þingkosningar
í Póllandi
Hægri flokk-
um spáð sigri
Hægri flokkunum í Póllandi
er spáð sigri í þingkosningum
f landinu sem fram fóru 1 gær.
Núverandi ríkisstjórn sem skip-
uð er fyrrverandi kommúnist-
um er aftur á móti spáð stórtapi
enda hafa hneykslismál og mik-
ið atvinnuleysi einkennt stjórn-
artíð hennar. Ekki er ljóst hvor
hinna tveggja hægri flokka fær
meira fylgi en þeir hafa verið
jafnir í könnunum og hafa lýst
því yfir að þeir vilji mynda sam-
steypustjórn ef þeir sigra í kosn-
ingunum. Nýrrar ríkisstjórnar
bíður meðal annars það erfiða
verkefni að búa landið undir
að taka upp evruna, sameig-
inlegan gjaldmiðil nokkurra
Evrópusambandslanda sem
mun hafa í för með sér miklar
aðhaldsaðgerðir í efnahagsmál-
um. Þá mun hún líklega taka
til endurskoðunar þátttöku Pól-
verja í stríðinu í frak en þar eru
nú um 1500 pólskir hermenn.
Smurþjónusta
Peruskipti
Rafgeymar'
œBBTILBOÐ
Betri verð!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110
Dómur yfir meintum
A1 Kaída félögum
Hæstiréttur Spánar mun í dag fella
dóm í máli 24 manna sem ákærð-
ir hafa verið um aðild að A1 Kaída
hryðjuverkasamtökunum. Þrír
hinna ákærðu eiga hver fyrir sig yfir
höfði sér meira en 70.000 ára fang-
elsisvist ef þeir verða sakfelldir fyrir
að hafa hjálpað þeim sem stóðu að
hryðjuverkaárásunum í New York
og Washington þann 11. september
2001.
Stærstu réttarhöld yfir grunuðum
íslömskum hryðjuverkamönnum
Dómarnir kunna að verða mikil-
vægir fyrir trúverðugleika hinna
margþættu rannsókna á íslömskum
öfgamönnum sem spænskir dómar-
ar hafa staðið að. Réttarhöldin eru
þau stærstu sem haldin hafa verið
yfir grunuðum íslömskum hryðju-
verkamönnum í Evrópu. 100 manns
báru vitni í réttarhöldunum sem
stóðu í tvo og hálfan mánuð og lauk
í júlíbyrjun.
Ákærur á hendur fólki sem er
grunað um aðild að hryðjuverkun-
um 11. september 2001 hafa ekki
borið mikinn árangur fram að
þessu. Dómstóll í Hamborg dæmdi
Marokkómanninn Mounir E1 Mot-
assadeq til sjö ára fangelsisvistar í
síðasta mánuði vegna tengsla við
1 dag fellur dómur í máli manna sem
eru grunaðir um aðild að hryðjuverka-
árásunum í New York og Washington 11.
september 2001.
hryðjuverkamennina. Hann reynd-
ist þó ekki búa yfir nægri vitneskju
til að hægt væri að sakfella hann fyr-
ir að hafa stutt fjöldamorðin.
Aðalsakborningur í Madridarrétt-
arhöldunum er Imad Barakat Yark-
as sem er einnig þekktur sem Abu
Dahdah en hann er ákærður fyrir að
vera leiðtogi A1 Kaída sellu á Spáni.
Verði hann sakfelldur á hann yfir
höfði sér 74.337 ára fangelsisvist, eða
25 ár fyrir hvern af þeim 2.973 sem
fórust í árásunum auk 12 ára fyrir
að vera leiðtogi hryðjuverkahóps.
Þá gæti Yarkas ásamt tveimur öðr-
um verið dæmdur til að greiða fjöl-
skyldum fórnarlamba yfir milljarð
Bandaríkjadala í miskabætur. ■