blaðið - 26.09.2005, Blaðsíða 12
12 I ERLENT
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Tímamótasamþykkt Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
Niðurfelling skulda samþykkt
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur
samþykkt að fella niður skuldir
nokkurra fátækustu ríkja heims sem
nema um 40 milljörðum Bandaríkja-
dala. Þar með hefur sjóðurinn sam-
þykkt áætlun sem lögð voru drög að
á leiðtogafundi átta helstu iðnríkja
heims í sumar. Ríkin, sem flest eru
í Afríku, skulda Alþjóðabankanum
um 70% fjárins en Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum og Þróunarbanka Afríku
afganginn.
„Við höfum náð samkomulagi um
öll atriði,“ sagði Gordon Brown, fjár-
málaráðherra Bretlands, sem er í
forsvari fyrir stefnumótunarhóp
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. „Þetta
þýðir að hið sögulega ferli sem hófst
fyrir mörgum árum og miðar að því
að fella niður skuldir er lokið í dag,“
sagði Brown. Framkvæmdastjórn
sjóðsins mun senn samþykkja sam-
komulagið formlega auk þess sem
Alþjóðabankinn á einnig eftir að
leggja blessun sína yfir það. Fastlega
er búist við að hann feti í fótspor Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins.
Fleiri þurfa niðurfellingu
Fólk sem barist hefur árum saman
fyrir niðurfellingu skulda fátækustu
ríkjanna segja að þau geti nýtt pen-
ingana til menntunar, lyfjakaupa
eða í baráttunni við alnæmi og mal-
aríu. Við höfum orðið vitni að alvöru
tímamótum í niðurfellingu skulda
af hálfu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Nú er röðin komin að Alþjóðabank-
anum til að standa við sinn hluta af
samningnum," sagði Max Lawson
hjá alþjóðlegu mannúðarsamtökun-
um Oxfam.
Martin Powell hjá heimsþróun-
arhreyfingunni benti aftur á móti
á að þrátt fyrir að skuldbindingar
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gengju eft-
ir ættu menn enn langt í land með
að fella niður skuldir fátækra ríkja
heimsins þar sem meira en 60 ríki
til viðbótar þurfi á niðurfellingu að
halda.
Gordon Brown, fjármálaráðherra Bret-
lands, tilkynnir niðurfellingu skulda
nokkurra fátækustu rfkja heims á fundi
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á laugardag.
Síðustu dagar
í Orkuhúsinu
Hitahlífar
Ráðgjöf
Armstafi
Hjá Flexor færöu:
• Göngugreiningu
• Stuöningshlífar
• Innlegg
SCARPA
íþróttaskó
Gönguskó
Barnaskó
ecco' ^asics
FLEXOR
^ NÆSTA SKREF
Suðurlandsbraut 34 • Sími 517 3900
r býður upp á aihliða þjónustu sem er sérstaklega ætluð þeim sem
finna fyrir óþægindum í baki, mjöðmum, hnjám eða iljum, fá sinadrátt í
kálfa, þreytuverk og pirring í fætur. Stoðtækjafræðingar, sjúkraþjálfarar
og annaö sérhæft starfsfólk veitir faglega ráðgjöf varöandi val á vörum.
Samstarf Flexor viö bæklunarlækna og aöra sérfræðinga sem starfa í
Orkuhúsinu gerir okkur kleift aö veita þér bestu þjónustu sem völ er á.
Kínverjar herða
eftirlit með
fréttasíðum
Kínverjar settu nýja reglugerð
um innihald frétta á internet-
inu í gær og ganga þar með
lengra í viðleitni sinni til að
hafa hemil á því efni sem þar er
birt. „Ríkið bannar útbreiðslu
allra frétta sem ganga gegn
þjóðaröryggi og almannahags-
munum," segir í frétt hinnar
opinberu fréttastofu Xinhua.
Nýju reglurnar tóku gildi þegar
í stað. Fréttastofan skýrði ekki
reglurnar nákvæmlega en sagði
að fréttasíður á internetinu
yrðu „að helga sig því að þjóna
þjóðinni og sósíalismanum."
Fjölmiðlar sem fyrir eru þurfa
nú að fá leyfi til að reka frétta-
síðu á netinu og nýir miðlar
verða að skrá sig hjá opinberri
upplýsingaskrifstofú. Kínversk
stjórnvöld hafa eins konar net-
lögreglu sem fylgist með inter-
netinu i því skyni að hafa stjórn
á efni þess. Öll netumfjöllun
sem gagnrýnir ríkisstjórnina
eða kemur inn á viðkvæm
málefni eru skjótt fjarlægð.
Dick Cheney varaforseti Banda-
ríkjanna
Cheney gengst
undir aðgerð
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, fór sér hægt þegar
hann kom af sjúkrahúsi i gær,
degi eftir að hafa gengist undir
aðgerð vegna slagæðagúlps á
báðum hnjám. Talsmaður Chen-
eys sagði að honum heilsaðist
vel en að hann hyggðist vinna
heima í dag. Upphaflega stóð að-
eins til að gera aðgerð á hægra
hné varaforsetans en í miðri
aðgerð ákváðu læknar að gera
að þeim báðum. Cheney sem
er 64 ára gamall hefur átt við
ýmsa hjartasjúkdóma að stríða
og hefur meðal annars fjórum
sinnum fengið hjartaáfall.
Bylting í París
Bylting hefur átt sér stað á
götum Parísarborgar að mati
franska dagblaðsins Le Figaro.
Þriggja ára barátta borgaryfir-
valda við að fá eigendur hunda
til að þrifa upp skft eftir gælu-
dýrin sín hefur skilað árangri.
„Samkvæmt könnunum sem
við höfum látið gera á vettvangi
þrífa 60% hundaeigenda upp
skítinn núna,“ segir Yves Cont-
assot, fulltrúi Græningja í borg-
arstjórn Parísar sem hefur lagt
allt undir í baráttunni við skít-
inn. „Fyrir stuttu síðan skamm-
aðist fólk sín fyrir að beygja sig
eftir skítnum með plastpoka.
Nú er hið gagnstæða raunin,“
sagði Contassot í viðtali við
Le Figaro. Hundaskítur á gang-
stéttum hefur lengi verið mikið
vandamál í París og lýti á hinni
annars fallegu borg. Borgaryfir-
völd hafa hvatt hundaeigendur
til að þrífa skít eftir hunda sína
á undanförnum árum en með
litlum árangri þangað til nú.