blaðið - 26.09.2005, Side 18
18 I TÍSKA
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2006 blaöiö
drangey.is
Kalté
höndunum ?
Dömu
og herra
leðurhanskarnir
fást hjá okkur.
og
allir
þekkja
gæðin!
Smáralind 528-8800
Leyndarmal
loksins a Islandi
NYJA HAUSTLINAN FRA
JEAN PAUL
CAULTIER
TÖSKUROO
SKARTCRIPIR
ÁSAMT NÝJUM
ILMI.
H Y G E A
mujrti r öru r ornlnn
Smáralind
Kringlunni
Laugavegi 23
VR herferðin
Öþekkjanleg■
ar ímyndir
Nýjasta herferð VR hefur óneit-
aníega vakið mikla athygli. Ekki
einungis vegna góðs málstaðar
heldur einnig vegna myndanna
sem eru ímynd auglýsingarinn-
Erfiðara aðfarða karlmennina
Ögrandi að
gera þá ekki að
dragdrottningum
ar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
Gísli Marteinn Baldursson og
Egill Helgason voru förðuð og
breytt á þann hátt að þau voru
flest gjörsamlega óþekkjanleg. Al-
menningur hafði þessar myndir
fyrir framan sig í einhvern tíma
áður en uppljóstrað var hver þau
voru í raun og veru. Líklegt er að
fæstir hafi áttað sig á því hverjir
þetta voru, svo góð voru gervin.
Blaðinu lék forvitni á að vita hver
stóð á bak við þessi raunverulegu
gervi.
svanhvit@vbl.is
Fríða María Harðardóttir, förð-
unarfræðingur, sá um förðunina
í herferðinni og hún segir að þau
hafi fengið mikil viðbrögð við
myndunum. „£g held að þetta
hafi vakið þau viðbrögð sem við
vildum að þetta myndi gera. Núm-
er eitt, tvö og þrjú er að þetta vek-
ur upp umræðu um það sem máli
skiptir. Ég held að það hafi tekist
og ég vona að það skili sér, þá er
markmiðinu náð.“ Undirbúning-
ur herferðarinnar, förðunin og
myndatakan, var gerð síðasta
sumar og Fríða segir að allir
fjórir þátttakendurnir hafi tekið
mjög vel í verkefnið frá upphafi. „
Þetta er góður málstaður og ég
held að þau hafi öll hugsað um
það fyrst og fremst."
Undirbúningur tók 6 tíma
Aðspurð um hvað förðunin hafi tek-
ið langan tíma upplýsir Fríða María
að förðunin sjálf hafi í raun ekki
tekið svo langan tíma. „Skeggið, aft-
ur á móti, tók langan tíma. Skeggið
hefur rosalega mikið að segja í um-
breytingu kvennanna, að skeggrót-
in sé trúverðug. Stefán Jörgen er
þvílíkur snillingur og ég held að það
Friða Maria Harðardottir, forðunarfræðingur
hafi gjörsamlega gert þessar myndir.
Myndatakan og undirbúningurinn
tók yfirleitt 4-6 tíma, fyrir hvern ein-
stakling. Svo tekur alltaf einhvern
tíma að mynda. En þetta eru samt
einstaklingar sem er gott að mynda,
þau eru öll mjög myndfríð þannig
að það gekk allt mjög vel.“
Vildum hafa eðlilega áferð
Fríða María segir að förðunin hafi
verið úthugsuð enda til mikils að
vinna. „Við vildum ekki hafa of
mikil gervi, heldur eðlilega áferð
eins og venjulegt fólk. Ég farðaði
þau því ekkert mikið, í sjálfu sér. Ég
notaði airbrush tæknina og það gef-
ur mjög fallega og eðlilega áferð. Þá
er líka hægt að hylja ákveðin svæði
en halda öðrum svæðum eðlilegum.
Maður getur því dálítið stjórnað því
þannig að áferðin verður mjög jöfn
og eðlileg. Maður getur líka skyggt
og dekkt á mjög fallegan hátt. Svo er
það þannig með konur að við búum
svolítið til á okkur andlitið en um
leið og við tökum þau af þá fer þessi
kvenleiki oft. 1 raun og veru gerði ég
ekki mikið.“ Friða viðurkennir þó
að það hafi verið erfiðara að farða
karlmennina í hópnum. „Það var
ögrandi að gera þá þannig að þeir
99..................
Það var ögrandi að
gera þá þannig að
þeiryrðu ekki eins og
dragdrottningar eða
í einhverju rosalegu
gervi heldur að ná að
búa til eðlilega förðun.
yrðu ekki eins og dragdrottningar
eða í einhverju rosalegu gervi heldur
ná að búa til eðlilega förðun."
Ögrandi og skemmtilegt verkefni
Fríða segist vera hreykin af því að
hafa verið valin í þetta áhugaverða
verkefni. „Ég get ekki sagt að ég hafi
tekið þátt í neinu þessu líku áður.
Þetta var mjög ögrandi og skemmti-
legt. Svo var þetta svo góður málstað-
ur og gaman að taka þátt í því öllu.
Maður lærir alltaf eitthvað á hverju
því sem maður tekur sér fyrir hend-
ur og án efa hefur maður eitthvað
lært á þessu. Ég er mjög ánægð að
fá að taka þátt i þessu og ég vona að
þetta muni skila því sem við viljum
að þetta skili.“ ■
Eyesential augngel er augnlyftíng
án nokkurrar aögerðar. Á aðeins
tveimur minútum má sjá ótrúlegan
árangur sem endist í allt að 10
tíma og þér finnst þú hafa yngst
um 15 ár.
Þetta leynivopn Hollywood-
stjamanna er loksíns fáanlegt á
almennum markaði. Kíkið við og
sannreynið árangurinn!
- iii ii iii iiiiiiiTnir^
SNVRTtSTOFA
DEKURHORNIÐ SNYRTISTOFA
FAXAFENI 14, 2. HÆÐ
SÍMI: 567 7227
DEKURHORNID.IS