blaðið - 26.09.2005, Síða 19
blaðið MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005
TÍSKA 119
Þorgerður Katrín óþekkjanleg
Alvöru
hár notað
í skeggin
Stefán Jorgen Ágústsson á heið-
urinn af skeggjunum á þeim
stöllum Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur og Þorgerði Katrínu
Gunnarsdóttur. Skeggið hafði
mikið með það að gera að þær
voru óþekkjanlegar. Stefán
segist vera algerlega sjálfmennt-
aður í þessum fræðum.„Ég hef
verið að gera þetta síðan ég var
tólf ára. Eg byrjaði að gera grím-
ur, andlitsgervi og hitt og þetta.
Svo hefur eitt leitt af öðru og
í dag vinn ég við það að gera
svona andlitsgervi framan í
fólk.“ Stefán segist vera mjög
ánægður með útkomuna.„Það
er gaman að sjá viðbrögðin hjá
fólki. Ég er búinn að fá svo góð
viðbrögð. Ég vona að herferðin
eigi eftir að breyta einhverju og
þá á maður vonandi einhvern
þátt í því að hafa kannski vakið
fólk til umhugsunar um hvern-
ig konur standa í þjóðfélaginu.
Það var mjög gaman að þessu“
Þorgerður leðurjakkatöffari
Stefán segir að það hafi verið
einkar forvitnilegt að sjá út-
komuna. „Hún kom mér ekkert
á óvart því ég vitanlega setti
þetta gervi á þau. En mér finnst
skemmtilegt að sjá breytinguna.
Sumir sem ég hef talað við
þekktu þau ekki. Ég er mjög
sáttur og ánægður með allt
saman. Áður en við byrjuðum
vorum við með grófa hugmynd
um hvernig þau áttu að líta út.
Þorgerður átti að vera hálfgerð-
ur leðurjakkatöffari en við vild-
um frekar hafa Ingibjörgu sem
svona viðskiptamann, mikinn
og stóran mann í þjóðfélaginu."
Kaupir hár utan frá
Þegar Stefán er spurður hvern-
ig hann festir skeggið á segir
hann: „Ég nota sérstaka aðferð
til að setja skeggin á, aðferð
sem ég útfærði þegar ég vann
í Little Trip to Heaven. Ég lími
hár fyrir hár en byrja á því að
hreinsa húðina almennilega
svo það sé engin fita á henni.
Síðan nota ég lím sem ég þykki
aðeins svo það glansi ekki.
Líminu er síðan dúbbað á. Svo
tek ég brúsk fyrir brúsk og
lími á. Fyrst vinn ég hálsinn
allan upp að kjálka svo aðra
hliðina og svo framvegis. Ég
klippi hárið niður í sentimet-
ers langa strimla ofan í dós,
þetta er bara salli af hárum.
Svo krulla ég hárið svo áferðin
verði grófari. Þegar ég lími
skeggið á þá tek ég brúsk upp
úr og lími á.“ Stefán notar
einungis alvöru hár i skegg-
in. „Ég nota jakuxahár, sem er
gróft, asiskt hár og stundum
hár sem mér er gefið. Ég panta
hárið utan frá eða kaupi þá
hér heima. Ég held að þetta sé
bara iðnaður erlendis, að kaupa
hár af fólki. En svo eru hárin
misdýr, rautt hár og alvöru
grátt hár er til dæmis dýrast.“B
Með haustinu
þarfnast andlitið
litar
Fallegur
íarði
Flestir sem eru sætir og sællegir
eftir sumarið vilja gjarnan halda
þeim lit áfram á veturna. Þrátt
fyrir að það sé ekki í tísku að
vera kaffibrúnn og brenndur þá
er alltaf flott að vera hæfilega
brúnn og flottur. Fyrir þá sem
vilja ekki bjóða Iíkama sínum
upp á ljósalampa hentar farðinn
fullkomlega.
Clarins, True Comfort Foundation
Clarins hefur sett á markaðinn nýj-
an farða sem er einstaklega þægileg-
ur í notkun. Húðin er eðlileg útlits
og virðist anda vel í gegnum farðann.
Formúlan er einstök og tilfinningin
því ekki eins og að vera með farða.
Áuk þess er sérstaklega góð lykt af
farðanum.
Estée Lauder Individualist
Estée Lauder er með nýjan farða á
markaðnum sem er einkar fallegur.
Hann er mjúkur og auðvelt er að
bera hann á auk þess sem liturinn er
eðlilegur og fallegur. Farðinn hylur
vel og er notadrjúgur.
Estée Lauder Ideal Ligth
Estée Lauder er með góðan hyljara
á markaðnum. Hyljarinn er með
pensli sem gerir það að verkum að
auðvelt er að bera hann á auk þess
sem hann dreifist vel.
svanhvit@vbl.is
Nú er komin I verslanir ný íslensk prjónabók með uppskriftum af lopafllkum eftir Védísi Jónsdóttur
hönnuð. I bókinni eru fjölbreyttar uppskriftir af flottum fatnaði á konur, karlmenn, börn og einnig er
að finna sérhannaða islenska lopapeysu fyrir smáhunda.
Uppskriftirnar eiga það allar sameiginlegt að vera einfaldar og fljótprjónaðar fyrir byrjendur sem og
lengra komna. Þetta er ein glæsilegasta prjónabókin sem komið hefur út hjá ístex.
Söluaðilar sjá: www.istex.is