blaðið - 26.09.2005, Blaðsíða 26
26 I HEILSA
MÁNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Þráinn Þorvaldsson
Jurtir íslands geta gert kraftaverk
SagaMedica
þróa vörur
úr ætihvönn
„Ætihvönn hefur frá örófi alda ver-
ið notuð til lækninga á ýmisum
kvillum" segir Þráinn Þorvaldsson
framkvæmdarstjóri SagaMedica.
SagaMedica hefur þróað ýmsar vör-
ur úr ætihvönn og nú síðast hafa
þeir sett á markað vöruna SagaPro
sem ætlað er að auka svefnfrið karla.
Ætihvönn er elsta lækningajurtin
sem notuð var á íslandi frá upphafi
byggðar og það voru alls staðar
hvannagarðar og eitt elsta grænmet-
ið sem ræktað var á Norðurlöndum.
Fólk fann snemma út að jurtin hefði
notagildi á ýmsan hátt og fyrirtæk-
ið vinnur að þróun og sölu á vörum
úr jurtinni sem hægt er að nota fyr-
irbyggjandi gegn ýmsum kvillum
sem fólk á í baráttu við. Nýjasta var-
an frá SagaPro er einmitt framleidd
úr íslenskri ætihvönn. Varan hjálp-
ar karlmönnum sem eiga við góð-
kynja stækkun á blöðruhálskirtli að
stríða. Það eru einkum tíð þvaglát
sem hrjá menn með vandamálið
og varan er sögð auðvelda þeim líf-
ið sem vakna þurfa oft á nóttunni
vegna tíðra þvagláta. Rannsóknir
sýna að sögn framleiðenda að í æti-
hvannalaufi sé meðal annars efnið
osthenol (kúmarín efni) sem aftr-
ar virkni á mikilvægu ensími en
virkni ensímsins vex með stækkun
á blöðruhálskirtlinum. SagaPro
hefur verið í reynslunotkun í tvö
ár og virku efnin hafa verið rann-
sökuð bæði hér á landi og erlendis
og gefið góða raun. Áður hefur fyr-
irtækið þróað vörur sem einnig eru
úr ætihvönn og má þar fyrst nefna
Angelica sem einkum er notað fyrir-
byggjandi við kvefi. Að sögn Þráins
virkar Angelica eins og gingseng og
sólhattur og gefur aukinn kraft. Þá
kom hálsbrjóstsykurinn Voxis en
í hann eru notuð ákveðin efni sem
eru virk í hvönninni sem hægt var
að nota í hálstöflurnar. Þráinn segir
að mörg verkefni bíði fyrirtækisins
og næst á dagskrá segir hann að sé
að þróa krem. Þá eru aðrar jurtir
sem stefnt er að vinna að og má þar
nefna Vallhumal sem er gömul og
græðandi jurt. Það er mikill og vax-
andi áhugi fyrir náttúruvörum og
sérstaklega þegar sérfræðingar eru
farnir að rannsaka virknina. Hann
segir vörurnar ekki vera lyf heldur
fyrst og fremst hugsaðar sem fyrir-
byggjandi gegn ýmsum kvillum. ■
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03
YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunar-
æfingar, slökun og hug-
leiðsla.
Morgun-, hádegis-,
síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir byrjendur og — ■
barnshafandi konur. www.yogaheilsa.is
NÝTT! Astanga yoga
Nýtt tölublað
komið í versl
vrnmm.
Tryggðu þér
eintak á
næsta
sölustað
Sl°^horn Ó
,Jy^SS t
Sahaja jóga-
stöð á Islandi
Vinsældir jóga hafa aukist á
íslandi á síðustu árum. Mismun-
andi tegundir jóga eru stundaðar
og má þar sem dæmi nefna Sahaja
jóga sem hefur verið að hreiðra
um sig á íslandi á síðastliðnum
tveimur árum. Það er Shri Mataji
Nirmala Devi sem er fædd og upp-
alin á Indlandi sem heldur nám-
skeiðin og er aðgangur ókeypis.
„Fólk getur notað jóga til að
vinna bug á reykingum"
Benedikt S. Lafleur sem er leiðbein-
andi og aðstoðar Shri Mataji Nir-
mala Devi á námskeiðunum hvetur
fólk til þess að mæta til að lífsorkan
verði betri á námskeiðinu. „Fólk get-
ur notað jóga til að vinna bug á ýms-
um leiðinlegum ávana eins og reyk-
ingum“ segir Benedikt. Hann segist
sjálfur hafa fundið mikinn mun á
sjálfum sér eftir að hafa byrjað að
stunda jóga. „Sahaja jóga er fyrst og
fremst hugleiðslukerfi sem miðar að
því að þroska einstaklinginn og tek-
ur mið af öllum trúarbrögðum og
andans boðskap sem er varanlegur
og getur umbreytt einstaklingum
L
sem hugleiða samviskusamlega“ seg-
ir Benedikt.
Jóga sem kostar ekki neitt
Sahaja merkir eitthvað sem gerist
sjálfkrafa eða er meðfætt. Á fund-
um Sahaja lærir fólk nokkrar ein-
faldar æfingar sem eru til þess falln-
ar að hreinsa orkustöðvarnar og
ná betra jafnvægi. Þessar æfingar
munu hjálpa þér áfram við hugleiðsl-
una og styrkja þá sem stunda þær til
frambúðar. „Sahaja jóga felur í sér
sjálfsprottna andlega vakningu sem
gerir einstaklingnum kleift að tengj-
ast sjálfri alheims-orkunni“ segir
Benedikt. Sahaja Yoga er hagnýt leið
sem fléttar saman hugarfarslegri, til-
finningalegri og andlegri líðan. Byrj-
endanámskeið eru á fimmtudögum
klukkan 20.00 og fyrir þá sem lengra
eru komnir er námskeið á mánudög-
um klukkan 20.00. Sahaja jógasetrið
er með aðstöðu í Borgartúni 20. ■
Þú borðar þær með
uppáhaldsálegglnu,
kannski ylvolgar úr ofninum,
ristaðar, með hvltlauksollu,
stundum eins og pizzur
...eða elns og Strandamenn,
glænýjar með Islensku smjöri.
Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku I
næstu matvöruverslun.
Hollara brauðfinnstvarla.
Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum
100 ára hefð og ekkert nema hollusta
DRANGABAKSTUR
ER MAGINN
VANDAMÁL?
Silicoi
hjálpar!
silicol
-- Fæst í
öllum
apótekum