blaðið - 30.09.2005, Side 6
6 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaöiö
Mikilvæg skilaboð til kvenna - www.nicorette.is
Geymslusvæðið ehf Nánari upplýsingar á heimasíðu okkar www.geymslusvaedid.is og í síma 565 4599
Ekki kódein-
hamstur
í dag er síðasti dagurinn sem
hægt verður að kaupa lyf sem
innihalda efnið kódein án
lyfseðils. Blaðið hafði samband
við nokkrar lyijaverslanir á
höfuðborgarsvæðinu og virðist
sem landinn hafi ekki tekið að
hamstra lyíjunum þótt sumir
hafi merkt einhverja aukningu
á sölu þeirra. Breytingin er gerð
til þess að sporna við morfín-
og kódeinfíkn sem hefur aukist
undanfarin ár og koma í veg
fyrir að kódeinfíklar gangi á
milli apóteka og safni sér fjölda
10 töflu pakkninga með park-
ódíni eða íbukód sem hingað
til hafa verið seldar í lausasölu.
■
Vatnsmýrin
Samráðsdagur
á laugardag
I gær gafst landsmönnum
kostur á að mæta í Listasafn
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu
og skila inn tillögum sínum
um framtíð Vatnsmýrarinnar.
Forsendur þeirrar alþjóðlegu
keppni arkitekta sem
fyrirhuguð er um skipulag
svæðisins, verða að hluta til
byggðar á þeim hugmyndum
sem berast frá almenningi.
Seinni samráðsdagurinn
verður á morgun frá klukkan
10-17 í Hafnarhúsinu.
Þátttakendur byrja í porti
Hafnarhússins, fara þar
í gegnum ákveðna leið
og svara 10 einfoldum
grundvallarspurningum um
Vatnsmýrina. Þátttakendum
gefst einnig kostur á
því að setjast niður með
fagmönnum og útskýra
hugmyndir sínar fyrir þeim
auk þess að setjast niður með
teiknara og láta hann rissa
upp skipulagshugmyndir. ■
_ . Mynd: Teiknistota Halldórs GuSmundísanar. TH6
Stærri Kringla
Verslunin NEXT hyggst f vor opna verslun á tveimur hæðum í nýrri viðbyggingu við
Kringluna sem hafíst hefur verið handa við. Víðbyggingin er við suðurhús Kringlunnar
og nemur stækkunin 1700 fermetrum.
Útboð á bifreiðum og ýmsu öðru frá Vamarliðinu verður dagana 29.-3. október. Bifreiðarnar verða til sýnis á plani Bílasölunnar Hrauns
við Reykjanesbraut gegnt álverinu. Haegt er að skila inn tilboðum á vefslóðinni www.geymslusvaedid.is
Hjúkrunarheimili í Sogamýri
110 hjúkninarrýim
Heilbrigðisráðherra og borgarstjóri undirrituðu í gœr samkomulag
um byggingu hjúkrunarheimilis sem tekið verður í notkun 2007.
Atvinnusvœði leigubíla
sameinuð
Stórkostleg
launaskerðing
Á morgun tekur gildi breyting
á reglum um akstur leigubif-
reiða á höfuðborgarsvæðinu,
Grindavík og Reykjanesi. Breyt-
ingin felst í því að þessi svæði
eru sameinuð og er því leigubif-
reiðastjórum á svæðinu heimilt
að taka farþega innan þess alls.
Ingólfur Jónsson, formaður
Bifreiðastjórafélagsins Fylkis
í Reykjanesbæ, segir að þetta
kippi fótunum undan rekstri
leigubílastöðva á Reykjanesi.
„Fyrir okkur er þetta stórkost-
leg launaskerðing þar sem um
80% okkar atvinnusvæðis er á
Keflavíkurflugvelli.“ Ingólfur
segir að vissulega eigi þetta
eftir að nýtast leigubílastöðvun-
um á höfuðborgarsvæðinu vel
þar sem þeirra svæði stækkar
og ferðir í Leifstöð nýtast betur.
„Við höfum ekki fjárhagslega
burði til að fara í samkeppni
við t.d. Hreyfil. Þetta mun enda
á því að menn færa sig á stöðv-
arnar í Reykjavík." Ingólfur seg-
ir þó að nú verði að koma í ljós
hvernig hlutirnir muni þróast.
„Það er hægt að mála skrattann
á vegginn en við tökum þessu
og sjáum svo til.“ g
Um 110 hjúkrunarrými verða á heim-
ilinu og eru það allt einbýli, en einn-
ig er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir hjón
og sambúðarfólk. Húsið verður um
6660 fermetrar að stærð og er kostn-
aður við bygginguna áætlaður 1300
milljónir króna. Kostnaðarhlutdeild
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins og Framkvæmdasjóðs
aldraðra í byggingunni er 70% en
Reykjavíkurborgar 30%, sem er tvö-
falt lögboðið framlag sveitarfélaga
til uppbyggingar af þessu tagi. Eign-
araðild ríkis og borgar verður einn-
ig í fyrrgreindum hlutföllum. Jón
Kristjánsson, heilbrigðisráðherra,
sagði við undirskrift samkomulags-
ins að í Sogamýrinni myndi rísa
glæsilegt hjúkrunarheimili fyrir þá
sem heilsu sinnar vegna geti ekki
lengur dvalið heima hjá sér. „Það
er jafn brýnt að efla þjónustuna við
þennan hóp og það er að efla heima-
þjónustu og heimahjúkrun stórlega.“
Ráðherra sagði það verkefni vera
hitt stóra verkefnið á sviði öldrunar-
þjónustu sem brýnt væri að leysa.
Mikill áfangi
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
borgarstjóri, sagði samkomulagið
mikinn áfanga þar sem talsverð bið
væri eftir hjúkrunarrýmum í borg-
inni. Með byggingunni í Sogamýri
myndi þjónusta við eldri borgara
eflast til mikilla muna. Borgarstjóri
minntist einnig á það samstarf sem
í gangi er milli borgar og ráðuneytis-
ins en unnið er að því að þróa sam-
ræmt þjónustumat fyrir aldraða.
Þjónustumatinu er ætlað að gefa
eídra fólki kost á því að búa sem
lengst við öryggi í heimahúsum svo
það þurfi síður á hjúkrunarrýmum
að halda. í samkomulaginu kemur
einnig fram að auglýst verði eftir
rekstraraðila fyrir hjúkrunarheimil-
ið þegar endanlega hafi verið gengið
frá samningum. B
Útbo ðmm
útboa Utboð
Landspítalinn:
Aukið öryggi
Landspítalinn hefur skipað svo-
kallaða atvikanefnd LSH sem mun
vinna samkvæmt nýjum reglum um
viðbrögð vegna atvika eða frávika á
Landspítala-háskólasjúkrahúsi. í
erindisbréfi nefndarinnar kemur
fram að markmið með starfi henn-
ar sé að auka öryggi sjúklinga og
starfsmanna með því að m.a. fjalla
skilmerkilega um afbrigðileg atvik
í starfsemi spítalans sem víkja frá
starfsreglum og því sem vænst er. ■