blaðið - 30.09.2005, Page 32
32 I MENNING
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2005 blaöið
Apamálverk á sýningu
í London stendur nú yfir sýning á
listaverkum frá sjötta áratugnum.
Þetta væri svo sem ekki í frásögu
færandi nema vegna þess að lista-
verkin eru eftir nokkra apa. Stjarna
sýningarinnar er apinn Congo, fræg-
asti apamálari sögunnar. Listgagn-
rýnandinn Waldemar Januszczak
skrifar grein í Sunday Times um
sýninguna og ber mikið lof á Congo
en hefur efasemdir um listrænt gildi
annarra verka eftir górilluna Sophie,
órangútaninn Alexander og simp-
ansann Betsy.
Gagnrýnandinn segir að hann
hafi staðfastlega verið þeirrar skoð-
unar að apar gætu ekki málað. Ef
þeir máluðu þá væri það vegna
slysni eða vegna þess að þeir hefðu
verið beittir þvingunum. Nú segist
hann ekki vera jafn viss og ástæð-
an sé hinn hæfileikaríki simpansi
Congo. Hann er einfaldlega hrifinn
af myndum Congo og stórhrifinn af
nokkrum þeirra.
Congo var sjónvarpsstjarna á
sjötta áratugnum og kom fram í dýra-
þætti sem stjórnað var af Desmond
Morris. Myndlistahæfileikar Congo
uppgötvuðust fyrir slysni. Einn dag-
inn tók Congo upp blýant og byrjaði
að teikna. Hann hélt áfram og ljóst
var að hann vissi nokk hvað hann
var að gera. Þegar hæfileikar Congo
voru komnir í ljós var ákveðið að
kanna hvort hann gæti málað. Hann
átti ekki í neinum erfiðleikum með
það. Áður en hann byrjaði á mynd
virtist hann vera í þungum þönk-
um, var sennilega að ná einbeitingu.
Hann valdi sjálfur litina og rauður
litur var í sérstöku uppáhaldi en
hann virtist hafa lítið dálæti á bláa
litnum. Ef reynt var að taka mynd
af Congo áður en hann hafði lokið
við hana öskraði hann og lét öllum
illum látum. Ef hann áleit sig hafa
lokið við mynd var hins vegar engin
leið til að fá hann til að halda áfram
með hana. Hann vissi upp á hár hve-
nær mynd var tilbúin.
Picasso safnaði myndum eftir
Congo. Eitt sinn leitaði blaðamaður
álits Picasso á myndum apans. Pic-
asso gekk út úr herberginu og sneri
aftur með málverk eftir Congo um
leið og hann danglaði handleggjun-
um eins og api. Hann stökk síðan á
blaðamanninn og beit hann. Skila-
boð Picasso voru þau að það væri
ekki mikill munur á listamanni og
apa.
Þessi mynd var máluð af Congo 31. október 1957 og er talin meistaraverk hans.
Hattó ttstaverk
Nú stendur yfir í Listasafni Islands
sýningin íslensk myndlist 1945
-1960, Frá abstrakt til raunsæis.
í tengslum við sýninguna er hægt
að nálgast upplýsingar um 20 verk á
sýningunni með því að hringja úr
farsíma. Upplýsingarnar eru bæði
á íslensku og ensku. Hér er um sam-
norrænt tilraunaverkefni að ræða
er nefnist Nordic Handscape og
fjalar um miðlun menningararfs
með notkun farsíma. Verkefnið
er styrkt af Norrænu Ráðherra-
nefndinni og fer fram á timabilinu
2004 og 2005. Fimm mismunandi
menningarstofnanir taka þátt í
verkefninu en þær eru: Statens hist-
oriska museer, Svíþjóð, ABM ut-
viklingen, Noregi, Nationalmuseet
Danmörku, Museiverket Finnlandi
ásamt Listasafni Islands. Historiska
Museet í Stokkhólmi fer með heild-
ar verkefnisstjórn. Hér á landi fer
nú fram tilraunaverkefni II, Halló
listaverklsem byggist á því að list-
unnendur geti á jákvæðan hátt nýtt
sér farsímann og ýmsa möguleika
gagnvirkrar rafrænnar miðlunar. Á
sýningunni sem stendur til 30. okt-
óber er hægt að sækja upplýsingar
um 20 listaverk með því að hringja í
símanúmer þeirra, segja frá reynslu
sinni með því að senda SMS-skila-
boð eða tölvupóst. Síðan má lesa það
sem berst á heimasíðu safnsins sem
er www.listasafn.is. Einnig er hægt
að sækja myndir af 20 listaverkum
sem eru á sýningunni í símann sinn
og gerast áskrifandi að SMS-tilkynn-
ingum um viðburði í safninu með
því að senda nafn og GSM-númer /
netfang á símanúmerið 8672025 eða
á netfangið mennt@listasafn.is. ■
Fágæt lög og textar
Út eru komin þrjú nótnahefti eftir
Sig-
Steingrím Matthías
fússon. Heftin heita:
Ef þú værir stjarna,
Huggun og Veislu-
lok. Ef þú værir
stjarnaogHuggun
innihalda kirkju
tónlist, sálmalög
og texta og í heft-
inu Veislulok
eru kór- dæg-
ur- og söng-
lög og textar.
Steingrimur
M. Sigfússon er
þekktur fyrir tónsmíðar sín-
ar og texta. Hann var organisti á
nokkrum stöðum á landinu, lengst
af á Patreksfirði. Hann var einnig
skólastjóri Tónlistaskóla Húsavlk-
ur og einnig kenndi hann tónfræði
víða.
Eru hefti þessi örugglega fengur
fyrir marga sem unna tónlist og
geta spilað eftir nótum því hér eru
mörg fágæt lög og textar sem hafa
að geyma fjölbreytt úrval laga. Lög-
in í heftunum eru öll eftir Steingrím
og einnig flestir textarnir.
9 4
GOlFVttRUÚTSALA
20 - 80% afsláttur
I C E
Z0*0N
golfjakkar
Verð áður 13.900
Verð nú 3.900
Brautartré
Verð áður 6.900
Verð nú 1.900
HiPPO
Titanium
driverar
Verð áður 20.900
Verð nú 9.900
Járn og
tré
20% afsláttur
Hippo
Pútterar
Verð áður 4.500
Verð nú 1.900
Howson
golfpokar
Verðáður 6.900
Verð nú 2.900
ÞETTA ER AÐEINS
BROTAFVÖRUM!
Hippo
golfkerrur
Verð áður 3.900
Verð nú 2.900
AMRKlÐ
'www.markid.is • Sfml: 553 5320 • Ármúla 40
Hann skrifaði einnig spennusög-
ur undir skáldanafninu Valur
Vestan. Frum hefur end-
urútgefið bækurnar eftir
hann.
Útgefandi nótnaheftanna
er Haraldur Sigfússon, bróð-
ir höfundar, og fást heftin hjá
honum. Sími hjá útgefanda
er 553-5054- Einnig fást heftin
og spennusögurnar hjá Frum,
sími 568-1000. ■
10.
Metsölulisti erlendra bóka
The Broker
John Grisham
The Big Book ofSudoku
MarkHuckvaley
Northern Lights
Nora Roberts
State of Fear
Michael Crichton
TeachYourselfSudoku
James Pitts
The Bestof NewYork
Lonely Planet
Egypt World Architecture
Dietrich Wildung
Harry Potter & the Half-Blood Prince
J.K. Rowling
Thud
Terry Pratchett
Anansi Boys
NeilGaiman
Listinn er gerður út frá sölu i Bókabúðum Máls og menning-
ar, Eymundsson og Pennanum dagana 21.09.05 - 27.09.05 i
o
10.
Aðallistinn - allar bækur
Sudoku-bók 1
Gideon Greenspan
Skotgrafarvegur - kilja
Kari Hotakainen
Friðland - kilja
Liza Marklund
Straumhvörf
ÞórSigfússon
Dansaðvið engil-kilja
Áke Edwardson
Móðir í hjáverkum - kilja
Allison Pearson
Gamla góða Kaupmannahöfn
Guðlaugur Arason
(sl.-dönsk/dönsk-ísl. vasaorðabók
Halldóra Jónsdóttir - ritstjóri
Hálfbróðirinn - kilja
Lars Saabye Chrístensen
Forðist okkur
Hugleikur Dagsson
Listinn er gerður út frá sölu í Bókabúðum Máls og menning-
ar, Eymundsson og Pennanum dagana 21.09.05 - 27.09.051