Alþýðublaðið - 14.11.1919, Síða 4
4
alÞtðublaði©
Vog-jjjarni tvisaga.
Yér Dalamenn höfum haldiö,
að fulltrúi vor, Bjarni frá Vogi,
væri hreinn og beinn og ákveðinn
og héldi sínum ákvaðnu skoðun-
um fram, hver sem í hlut ætti.
Mikið fremur væri það óþjálni og
stífni, sem hömluðu honum frá
heppilegum verkum.
En við að koma á fundinn í
Báruhúsinu í gærkvöidi, fékk eg
að sjá nýja hlið á honum. Þá
heyri eg að hann ber fagurgala-
bumbuna — talar eins og fjöldinn
vill heizt heyra. Tók sérstakl. eftir
þessu í umræðunum í fossamál-
unum, viðvíkjandi verkamönnum.
Eg heyrði til hans vestur í Döl-
um um daginn á kjósendafundi
þar, að hann lagði ríka áherzlu á
að landbúnaðinum stæði stórhætta
af, ef hér kæmi upp stóriðnaður.
Fyrst og fremst yrði fluttur hór
inn útlendur verkalýður, sem
tungu og þjóðerni stafaði hætta
af, og svo yrði kaupgjald svo hátt
í landinu, að bændur (þá var hann
staddur innan um sveitabændui)
stæðust ekki við að borga verka-
fólkinu eins hátt kaup og það
krefðist og það þyrptist þá í burt
frá þeim og sveitirnar færu í
rústir vegna fólksleysis,
En í gærkveldi heldur hann ab
verkamönnum hér stafl hætta af
útlendum verkalýð vegna þess, að
hann komi niður kaupinu. — En
munurinn er auðvitað sá, að nú
er hann staddur innan um Reyk-
víkinga en ekki Dalamenn, og
þarf því að reyna að glamra þá
upp í að kjósa glamrarann Möller.
St. í B,vík 18/n T9.
Dalamaður.
Fundinn sýkill.
Nýlega skýrði BMbl.“ frá því,
að nýfundinn væri sýkill sá, er
veldur „gulu sýkinni". Vonandi
fer þá stóra Mogga að batna úr
þessu.
Pulur.
Árétting til kjósenda.
Heiðraði kjósandi. Kari og konaí
Ef þú vilt að fátsekralöggjöfinni sé breytt úr
hegningarlöggjöf í hjálp til sjálfshjálpar (án réttinda-
missis),
Ef þú vilt að rangláti vörutollurinn verði af-
numinn,
Ef þú vilt að tekjur ríkissjóðs verði fengnar
með tekju- og gróðaskatti og tekjum af arðvænleg-
um fyrirtækjum,1
Ef þú vilt að framleiðslan verði aukin og ráð-
ist í ný fyrirtæki með þátttöku hins opinbera,
Ef þú vilt að ríkið virki_fossana eftir mætti,
Ef þú vilt að ríkið komi upp barnahæli og;
gamalmennahæli,
Ef þú vilt að landsspítali verði reistur, --
Þá far þú niður í Barnaskólann á morgun og
inn í kjörherbergi, þar sem nafn þitt er. Par situr
kjörstjórnin. Hjá henni fær þú seðil, sem lítur
þannig út:
Jakob Möller
Jón Magnússon
Ólafur Friðriksson
Sveinn Björnsson
Þorvarður Porvarðsson