blaðið - 15.10.2005, Page 9
blaðið LAUGARDAGUR 15 OKTÓBER 2005
hi9
Neyðarfundur vegna fuglaflensu
Sérfræðingar á vegum Evrópusam-
bandsins hittust á neyðarfundi í gær
til að ræða mögulegar aðgerðir til
að koma í veg fyrir útbreiðslu fugla-
flensu. í dag er von á niðurstöðum
rannsókna á því hvort það afbrigði
fuglaflensu sem fannst í fuglum í
Rúmeníu er hið banvæna HsNi-af-
brigði sem greindist í alifuglum í
Tyrklandi. Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin segir að miklar líkur séu á
að um það afbrigði sé að ræða. Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefur bannað innflutning á lifandi
fuglum og alifuglaafurðum frá Rúm-
eníu og Tyrklandi. í báðum löndun-
um hafa svæðin þar sem fuglaflens-
an hefur greinst verið í grennd við
svæði þar sem farfuglar halda sig.
Sérfræðingar Evrópusambands-
ins í dýrasjúkdómum sem funda
nú í Brussel í Belgíu munu reyna að
finna leiðir til að draga úr líkum á
því að villtir fuglar komist í snert-
ingu við alifugla á þeim svæðum þar
sem hætta á smiti er talin vera mikil.
Það gæti falið í sér skipanir um að
alifuglum verði haldið innandyra.
Evrópuríki hvött til að
era ráðstafanir
öðrum fundi á vegum Evrópusam-
bandsins munu sérfræðingar í fugla-
flensu ræða sérstaklega hugsanlega
hættu sem kann að stafa að mönnum
sem komast í snertingu við farfugla.
Dýralæknir býr sig undir aö farga alifugl-
um í þorpinu Ceamurlia de jos í Rúmeníu.
Þá verður málið einnig tekið fyrir á
fundi utanríkisráðherra Evrópusam-
bandsins í næstu viku. Evrópuríki
hafa verið hvött til að koma sér upp
birgðum af bóluefni eftir að staðfest
var að fuglaflensutilfelli sem greind-
ist í Tyrklandi var af hinu banvæna
H5N1- afbrigði. 1 höfuðborgum Tyrk-
lands og Rúmeníu eru lyfjaverslanir
orðnar uppiskroppa með lyf gegn
flensu og hefur eftirspurnin aldrei
verið meiri.
Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unin vill draga úr ótta
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin í Genf
hefur reynt að draga úr ótta fólks
við sjúkdóminn og bent á að sam-
kvæmt rannsóknum breiðist H5N1-
afbrigðið ekki auðveldlega frá fugl-
um til manna.
Ekki hefur verið tilkynnt um sjúk-
dómstilfelli í mönnum í Evrópu og
mesta hættan á faraldri er enn í As-
íu að mati sérfræðinga. Meira en 60
manns hafa látist úr sjúkdómnum
síðan 2003.
í Tyrklandi voru níu manns send-
ir til rannsóknar eftir að um fjörtíu
dúfur í eigu þeirra höfðu drepist á
tveimur vikum. Ekki var ljóst hvort
fuglarnir hefðu drepist úr fugla-
flensu en heilbrigðisyfirvöld vildu
vera við öllu búin. ■
Honey Nut Cheerios er fyrir okkur sem viljum meira Eitthvað öðmvísi.
Eitthvað sem veitir manni orku til að takast á við daginn á bragðgóðan hátt.
Bondevik
lætur af embætti
Kjell Magne Bondevik lét í gær af
embætti forsætisráðherra Noregs
og lauk þar með stjórnmálaferli
hans sem staðið hefur í um fjóra ára-
tugi. „Það er gott að geta hætt með
því að leggja fram svona góð fjárlög
og skilja við efnahagsmálin í svona
góðu ástandi," sagði Bondevik i sam-
tali við netsíðu norska dagblaðsins
Aftenposten þegar hann gekk út úr
þinghúsinu í gær með stóran blóm-
vönd í fangi. Kristilegir demókrat-
ar, flokkur Bondeviks, tapaði fyrir
Verkamannaflokknum með Jens
Stoltenberg í fararbroddi í þingkosn-
ingum í landinu þann 12. september
síðastliðinn. Stoltenberg mun leiða
næstu ríkisstjórn landsins og hyggst
kynna hinu nýju stjórn á mánudag.
Kjell Magne Bondevik tilkynnir norska
stórþinginu afsögn sina sem forsætisráð-
herra landsins í gær.
Bondevik gekk á fund Haraldar V.
Noregskonungs í gær og baðst form-
lega lausnar frá embætti sinu eins og
lög kveða á um. ■
Aðgerðir gegn hryðjuverkum íHollandi:
Lögregla handtekur sjö menn
Lögregla í Hollandi handtók sjö
menn í gær vegna gruns um að
þeir hefðu í hyggju að fremja
hryðjuverk í landinu. Meðal þeirra
sem voru handteknir í aðgerð-
unum var Samir Azzouz, 19 ára
Hollendingur af marokósku bergi
brotinn, sem var sýknaður af kær-
um um hryðjuverk fyrr á árinu.
Sérsveit lögreglunnar lokaði
inngöngum að þinghúsinu og
upplýsingaskrifstofu ríkisstjórn-
arinnar í tengslum við aðgerðina.
Azzouz var að reyna að verða
sér úti um sjálfvirk vopn og
sprengiefni sem lögregluyfir-
völd telja að ætlað hafi verið
að nota í árásum á stjórnmála-
menn og stjórnsýslubyggingu.
Á fimmtudag greindu íjölmiðl-
ar frá því að þingmönnunum
Ayaan Hirsi Ali og Geert Wilders
hefðu borist nýjar hótanir en
báðir eru þeir yfirlýstir andstæð-
ingar íslamskrar öfgastefnu.
Mennirnir tveir fóru í felur í
fáeina mánuði eftir að hollenski
kvikmyndagerðarmaðurinn
Theo van Gogh var drepinn
á götu í Amsterdam í fyrra.
Hinir handteknu eru á
aldrinum 18 til 30 ára og greip
lögregla þá í Haag, Amsterdam
og Almere. Þeir verða færðir fyrir
rannsóknardómara á mánudag. ■