blaðið - 15.10.2005, Blaðsíða 16
16 I ERLENT
LAUGARDAGUR 15 OKTÓBER 2005 blaöiö
FRÉTTASKÝRmG
fraskar konur ganga framhjá kosningaspjöldum í Baquba.
Full búð af nvium
útsöluvörum!
30-70%
afslattur
49-999 O
Askia flisjakki
kr 7.900
&99Ú- O
Bamaulpa
Sulur flispeysa
kr 4.900
kr 4.900
Hufur, treflar
og vettlingar
Æ450- O
Óðinn
barnaflíspeysa
kr 2.900
• •
UTSOLUMARKAÐUR
Faxafeni 12,108 Reykjavík, Opið 10-18 virka daga og 10-16 laugardaga, www.66north.is
NORÐUR
írakar ganga til þjóðar-
atkvæðagreiðslu
Gríðarleg öryggisgæsla er í frak
vegna þjóðaratkvæðagreiðlu um
drög að stjórnarskrá landsins sem
fram fer í dag. Meðal annars var
vegatálmum og eftirlitsstöðvum
komið upp við kjörstaði, útgöngu-
bann sett og landamærum lokað.
Eins og óttast hafði verið var mikið
um árásir uppreisnarmanna í að-
draganda atkvæðagreiðslunnar.
íraska þingið samþykkti breyt-
ingar á stjórnarskrárdrögunum á
síðustu stundu á miðvikudag. Með
þeim er vonast til að súnnímúslimar
muni styðja drögin og nú þegar hef-
ur íraski íslamsflokkurinn, stærsti
stjórnmálaflokkur súnnímúslima,
lýst yfir stuðningi við þau. 1 kjöl-
far stuðningsyfirlýsingarinnar
sprengdu uppreisnarmenn sprengju
við höfuðstöðvar flokksins í gær,
föstudag. Aðrir flokkar súnníta
sættu sig ekki við breytingarnar og
ætla enn sem fyrr að hafna drögun-
um í atkvæðagreiðslunni.
Komið til móts við kröfur
súnnímúslima
Með breytingunum er komið til
móts við ýmsar grundvallarkröf-
ur súnnímúslima. Meðal annars
er kveðið á um það að frak verði
ein þjóð og eining þjóðarinnar sé
tryggð. Þar með er dregið úr ótta
súnnímúslima um að drögin í sinni
fyrri mynd hefðu leitt til sundrung-
ar þjóðarinnar. Sumir óttast þó að
súnnímúslimar kunni að einangrast
í mið- og vesturhluta landsins á með-
an Kúrdar í norðri og sjítar í suðri
ríkja yfir helstu olíulindum lands-
ins. Súnnímúslimar vilja draga úr
þeirri sjálfstjórn sem héruð sjíta og
Kúrda munu njóta samkvæmt nýju
stjórnarskránni. Engin trygging er
þó fyrir því að þeir muni ná sínu
fram enda þurfa þeir enn sem fyrr
að takast á við mikla andstöðu frá
sjítum og Kúrdum sem eru í meiri-
hluta á þinginu.
Talið er að með breytingunum
takist að sannfæra nógu marga
súnnímúslima um að greiða at-
kvæði með stjórnarskránni til að
hún verði samþykkt. Stjórnarskráin
verður felld ef meira en tveir þriðju
kjósenda hafna henni í þremur af átj-
án héruðum fraks. Súnnimúslimar
eru í meirihluta í fjórum héruðum
og því mikilvægt fyrir stjórnvöld að
tryggja sér stuðning þeirra.
Það er ennfremur mikilvægt fyr-
ir bandarísk stjórnvöld að stjórn-
arskráin verði samþykkt því að ef
henni verður hafnað myndi það
hafa í för með sér að pólitísk óvissa
yrði áfram í landinu og áætlanir
Bandaríkjamanna um að kalla her-
sveitir sínar heim tefðust enn frekar.
Verði drögunum hafnað í dag þarf
að leysa upp þingið og kjósa nýtt í
desember sem mun taka að sér að
semja nýja stjórnarskrá.
Áhrifamesti sjítaklerkur fraks,
Ayatollah Ali al-Sistani, hvatti í vik-
unni sjíta til að samþykkja stjórnar-
skrána. Þetta var afdráttarlausasta
stuðningsyfirlýsing al-Sistanis sem
fékk stóra hópa kjósenda til að styðja
stjórnmálaflokka sjíta í kosningun-
um í janúar. Þá eru Kúrdar upp til
hópa hlýnntir drögunum enda festa
þau í sessi sjálfstjórn þeirra.
Mikill misbrestur var á dreifingu
á stjórnarskrárdrögunum og kvört-
uðu margir landsmenn yfir því að
hafa ekki fengið þau í hendurnar.
Ótryggt ástand í landinu og árásir á
starfsmenn atkvæðagreiðslunnar og
embættismenn kann að hafa hindr-
að dreifingu í afskekktum héruðum
en í höfuðborginni var einnig nokk-
uð um það að fólk hefði ekki fengið
drögin í hendurnar. ■
510-3737
510-3744
blaðið^