blaðið - 15.10.2005, Page 20
20 I
LAUGARDAGUR 15 OKTÓBER 2005 blaði6
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
Egill Helgason er umsjónar-
maður Silfurs Egils, um-
ræðuþáttar um stjórnmál og
þjóðfélagsmál, sem nú er á skján-
um sjöunda árið í röð og þykir lang-
ur tími í sjónvarpi. „Eg er frjáls-
lyndur miðjumoðari, einhvers
konar krati,“ segir Egill aðspurður
um stjórnmálaskoðanir sínar. „Ég
er hrifinn af evrópska velferðar-
módelinu og tel að það verði að
varðveita því það er fjarskalega dýr-
mætt. Ég var alþýðuflokksmaður í
gamla daga en sá flokkur er dáinn
og eftir það hef ég ekki fylgt stjórn-
málaflokki að málum. Ég dröslast
á kjörstað, lít á það sem skyldu
mína og kýs það sem andinn býður
mér hverju sinni. Ég sveiflast nokk-
uð frá hægri og vinstri. Nú er ég til
dæmis í nettri hægri sveiflu. Fyrir
svona þremur árum var ég hins veg-
ar í vinstri sveiflu.
Ég lít stundum á hausinn á mér
sem eins konar tilraunastöð fyrir
hugmyndir þannig að ég á til að
skipta um skoðun í málum og vera
ósamkvæmur sjálfum mér. En
að þessu leyti er ég bara eins og
almenningur. Almenningur veit
stundum ekki sitt rjúkandi ráð og
ég veit það stundum ekki heldur."
Þú ert einstaka sinnum sakaður
um að vera ofvœgur við viðmœlend-
ur þína, eins og til dœmis Kjartan
Gunnarsson á dögunum. Hvað seg-
irðu við því?
„Ég er ekki alltof trúaður á þá
aðferð að maður eigi að djöflast í
viðmælendum sínum. Maður á að
sýna þeim virðingu og skilning.
Það er reyndar öðruvísi með kjörna
fulltrúa sem eru sífellt í viðtölum.
Kjartan er ekki kjörinn fulltrúi og
birtist sjaldan í fjölmiðlum. Mig
langaði til að sýna manninn eins
og hann er og hvað honum finnst
en ekki dvelja lengi við að reka of-
an í hann einhver smáatriði, sem
mér myndi sennilega ekki takast,
bara til að geta síðan hreykt mér
99......................
„Ég sveiflast nokkuð
frá hægrí og vinstrí.
Nú er ég til dæmis í
nettri hægri sveiflu.
Fyrir svona þremur
árum var ég hins vegar
í vinstri sveiflu."
eins og hani á hól og sagt: Sjáið þið
hvernig ég tók hann drengir!"
Lélegur leikmaður i liði
Hver er þín draumaríkisstjórn?
„í pistli eftir þýsku kosningarnar
setti ég fram kenningu um það að
ef stór samsteypustjórn yrði mynd-
uð í Þýskalandi þá myndi það að
vissu leyti vera fyrirmynd fyrir pól-
itíkina hér á landi um að mynda
stjórn Samfylkingar og Sjálfstæð-
isflokks.
Ef Framsókn heldur áfram að
vera í vandræðum þá þarf Sjálf-
stæðisflokkurinn að leita sér að
samstarfsflokki og hlýtur að horfa
til Samfylkingarinnar. Sjálfstæðis-
flokkurinn er í sterkri stöðu eftir
landsfundinn. Davíð var orðinn
fylgisfæla en ég hef hins vegar ekki
heyrt nokkurn mann tala illa um
Geir Haarde. Ég held að hann muni
höfða mjög grimmt inn á miðjuna
og taka fylgi frá Samfylkingunni.
Eftir uppstokkun er ráðherralið
Sjálfstæðisflokksins vel skipað.
Þorgerður Katrín hefur mikinn
kjörþokka og Einar Guðfinnsson
og Árni Mathiesen eru vænstu
menn og öfgalausir. Á meðan hef-
ur Samfylkingin ekki náð sér upp
á því að hafa kosið nýjan formann
i vor. Stefna flokksins er óljós og
mannskapur þeirra í þinginu er
ekki nógu góður.“
Hvað segirðu um Baugsmálið og
kenningar um að það sé eitt stórt
pólitískt samsæri?
„Vandinn er sá að umræðan hef-
ur farið mjög marga hringi. Við
höfum engar sannanir. Við höfum
tengingar og það sem heitir „circ-
umstancial evidence“ og meðan
svo er þá er lítið byggjandi á sam-
særiskenningum. Það getur vel
verið að menn hafi verið að þrýsta
á ríkislögreglustjóra að koma mál-
inu áfram en við vitum það ekki
fyrir víst. Mér finnst umræðan
vera gengin sér til húðar og orðin
ansi ljót. Menn eru að tala um að
það sé vond lykt af andstæðingum
sínum og jafnvel að þeir séu lýs.
Ég er í þeirri einkennilegu að-
stöðu að vinna á Baugsmiðlunum
en þeir eiga mig ekki. Mér finnst
mikilvægt að taka sjálfstæða af-
stöðu. Ég er lélegur leikmaður i liði.
Er aldrei í klúbbum eða klíkum. Ég
er einfari.”
Bolirnir
til styrktar brjóstakrabbameinsrannsóknum
eru komnir .........
qounq
1 I ___ O 1 C.'m.: A ■
Laugavegur 83 Sími 562 3244