blaðið - 11.11.2005, Page 4
4 I INNLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Samgöngumál:
Tillaga að
þjóðaratkvæða-
greiðslu um
flugvallarmálið
Vísitala neysluverðs
Verðbólgan lækkar
Jákvœð þróun en breytir þó ekki miklu varðandi endurskoðun
kjarasamninga segja samningaaðilar
FRÆGASTA HRYLLINGSSAGAN
- spennubækur unglinganna -
TWiniab
ATLANTSOLIA
Viðskiptakort
einstaklinga
Nánari upplýsingar í sima:
591 3100
AtUntMlia • Vatturvör 29 - 200 KApavogur - Siml 591-3100 - atlantioliaOatlantsolla.il
BlaÖiÖ/lngó
Samfylkingin stendur fyrir
samgönguþingi næstkomandi
laugardag að Hallveigarstíg í.
Þar mun Gunnar H. Gunnars-
son bera upp tillögu þess efnis
að borgarmálaráði flokksins
verði falið að ákveða fyrir hönd
flokksins hvenær Vatnsmýrin
verði tekin undir byggð. Einnig
er gerð tillaga um að kosið
verði um hvert innanlandsflug-
ið verði flutt í þjóðaratkvæða-
greiðslu, samhliða sveitarstjórn-
arkosningunum 2006. Tillagan
gerir ráð fyrir að í atkvæða-
greiðslunni verði boðið upp á
þrjá valkosti fyrir staðsetningu
innanlandsflugsins. Kostirnir
eru Miðdalsheiði, Hvassahraun
og Keflavíkurflugvöllur. Ef
enginn valkostur fær 50% at-
kvæða eða meira, verði kosið á
milli tveggja efstu valkostanna
í Alþingiskosningum 2007. í
greinargerð með tillögunni er
sagt að Reykjavíkurborg, eins
og önnur sveitarfélög, hafi rétt
og skyldu til að skipuleggja allt
land innan sveitarfélagsins og
þess vegna ráði borgarstjórn
því ein hvenær Vatnsmýrin
verði tekin undir byggð.
þegar árangurinn skiptir máli
Vísitala neysluverðs lækkaði um
0,16% frá fyrra mánuði og mælist
því hækkun sl. 12 mánuði 4,2%. Það
jafngildir 4,2% verðbólgu en f síð-
asta mánuði mældist hún 4,6%. Und-
anfarna þrjá mánuði hefur vísitalan
hækkað um 2% sem jafngildir 8,1%
verðbólgu á ári. Þetta kemur fram
í vísitöluútreikningum Hagstofu fs-
lands sem birtir voru í gær.
Verðbólgan enn mjög mikil
Þessi lækkun kemur þó ekki til
með að hafa meiriháttar áhrif á yfir-
standandi viðræður milli Samtaka
atvinnulífsins (SA) og Alþýðusam-
bands fslands (ASf) um endurskoð-
un kjarasamninga samkvæmt samn-
ingaaðilum. Þeir eru sammála um
að þetta sé jákvæð þróun en hafi í
sjálfu sér lítið að segja. „Það er ekki
vísitölubinding inni í forsendum
nefndarinnar þannig að í raun og
veru er þetta bara síðasta mælingin
sem við höfum til hliðsjónar. Þetta
breytir engu hvað endurskoðun
Verðbólgulækkun eru góð tíðindi segir Grétar Þorsteinsson
kjarasamninga varðar,“ segir Ólafur
Darri Andrason, hagfræðingur ASf.
Hannes G. Sigurðarson, hagfræð-
ingur SA, tekur undir þetta en segir
þetta bæta andrúmsloft á samninga-
fundum. „Þetta hefur í sjálfu sér
ekki nein bein áhrif þar sem verð-
Blaðiö/Frikki
bólgan er enn mjög mikil. Þetta skap-
ar samt betra andrúmsloft og eykur
vonir um það að verðbólgan fari að
hjaðna á næstunni. Það eru náttúru-
lega viðræður í gangi sem verður að
ljúka fyrir þriðjudaginn. Þetta hefur
engin bein áhrif en óbein áhrif eru
bara jákvæð," segir Hannes.
Meiri lækkun en von var á
Sá þáttur sem hafði hvað mest áhrif
á vísitöluna að þessu sinni var hækk-
un eigins húsnæðis um 0,9% en þar af
voru áhrif af hækkun markaðsverðs
á húsnæði 0,18%. Þá lækkuðu meðal-
vextir um 0,02% og verð á bensíni og
gasolíu lækkaði um 4,8%. Grétar Þor-
steinsson, forseti ASÍ, segir lækkun
verðbólgunnar koma á óvart jafnvel
þó að búist hafi verið við einhverri
lækkun. „Þessi lækkun er ívið meiri
en menn áttu von á. Ég sé nú ekki
að þetta ráði einhverjum úrslitum
en út af fyrir sig eru þetta bara góð
tíðindi varðandi framhaldið. Við er-
um auðvitað fyrst og fremst að fást
við það sem hefur gerst til dagsins
í dag frá því við sömdum. En það er
bara vonandi að það verði framhald
á þessu þannig að það reyni nú ekki
a endurskoðunarákvæðin að ári.“
Ingimundur Pálsson:
Sveitarfélögin ráða ekki við fleiri verkefni
„Sveitarfélög á íslandi hafa ekki
axlað hagstjórnarábyrgð og það er
óæskilegt að auka vægi þeirra í þjóð-
arbúskapnum," sagði Ingimundur
Sigurpálsson, formaður Samtaka
atvinnulífsins, í ræðu sem hann
hélt á fjármálaráðstefnu Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Vægi sveitarfélaga hefur vaxið
I ræðunni segir Ingimundur að
vægi sveitarfélaga í þjóðarbúskapn-
um hafi vaxið verulega og sé núna
um 29% af heildarútgjöldum hins
opinbera. Hann segir að þrátt fyrir
þessa aukningu hafi sveitarfélögin
ekki axlað aukna hagstjórnarábyrgð
og telur því óæskilegt að auka vægi
þeirra meira. Þá segir hann að rekst-
ur sveitarfélaga hafi magnað hag-
sveiflur í stað þess að vinna á móti
þeim eins og æskilegt væri af hálfu
opinberra aðila og að rekstrarkostn-
aður þeirra væri orðinn mun meiri
en tekjustofn. Bendir hann á að
sveitarfelögin eigi t.d. erfitt með að
standa gegn kröfum um aukna op-
inbera þjónustu og launahækkanir
sem ekki eru í samræmi við fjárhags-
legt bolmagn þeirra.
Sveitarfélög standa sig vel
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formað-
ur Sambands íslenskra sveitarfélaga,
er ósammála þessu og segir sveitar-
félögin alveg tilbúin til að taka að
sér fleiri verkefni. „Ég tel að sveitar-
félögin geti auðveldlega axlað fleiri
verkefni svo framarlega sem tekju-
stpfnar fylgi frá ríki til sveitarfélaga
vegna þeirra verkefna sem þau taka
yfir.“ Hann segir að sveitarfélögin
hafi staðið sig vel í þeim verkefnum
sem þau hafi tekið að sér og nefnir
rekstur grunnskólanna sem dæmi.
Þá bendir Vilhjálmur á að sveitar-
félögin hafi yfirleitt þurft að fylgja
ríkinu í launamálum og fylgt þeirri
stefnu sem það hefur sett. „ Auðvitað
er eitt og annað sem betur má fara
hjá sveitarfélögunum en á heildina
litið þá er ég algjörlega ósammála
honum.“
Mosfellsbœr
Fjárhagsáætl-
un lögð fram
Bæjarráð Mosfellsbæjar lagði
fram fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár á fundi ráðsins í gær.
Þar kemur fram að heildartekj-
ur verði 2,9 milljarðar, launa-
kostnaður um 1,5 milljarður
og þar af muni 1,2 milljarður
renna til fræðslu-, íþrótta- og
tómstundamála. Þá er reiknað
með að rekstrarafgangur verði
jákvæður um 67 milljónir sem
yrði þriðja árið í röð sem sveit-
arfélagið skilar rekstrarafgangi.
■OFLUGT FITU
'AUKIN ORK
'HELDUR ÞER VA
- LESTUR,
Utsölustaðir: Apótekog
NNSLUEFNI
GUM
KANC
NDIVIÐ
www.medico.is
Akralind 3 - 201 Kóp
Atorka
Hagnaður
dregst saman
Hagnaður Atorku Group nam
641 milljón króna á fyrstu
níu mánuðum ársins. Þetta
er mun minni hagnaður en
á sama tímabili í fyrra þegar
hagnaðurinn nam tæpum 2,5
milljörðum króna. Ef aðeins
er litið til þriðja ársfjórðungs
nam hagnaður félagsins 224
milljónum króna á móti
751 milljón króna hagnaði
á sama tímabili fyrir ári.
I tilkynningu til Kauphallar
Islands í gær segir að eigið fé
Atorku hafi verið 8,43 millj-
arðar í lok september en var
8,97 milljarðar í ársbyrjun.
Lækkunin skýrist af kaupum á
eigin bréfum og greiðslu arðs á
fyrri helmingi árs, samtals að
fjárhæð 1.174 m.kr..I tilkynn-
ingunni segjast stjórnarmenn fé-
lagsins bjartsýnir á rekstur þess.
Ógnvekjandi, skelfileg,
sorgleg - og kemur á
óvart þrátt fyrir aliar
bíómyndirnar.
Hann er eins og skrímsli í útliti
en undir skelfilega Ijótu
yfirborðinu býr gáfuð
og viðkvæm sál.
Loks snýst skrímslið gegn
skapara sínum en af hverju?
Frankenstein kemur
blóðinu á hreyfingu.
Æsispennandi bók fyrir
unglingana.
/>}
bókaútcAfanhólar