blaðið - 11.11.2005, Side 6
6 I INflJLEHTDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Kirkjan:
Nýr sóknar-
prestur í
Garðapresta-
kalli
Vanskil íslendinga
Stöðug fækkun á vanskilaskrá
Einstaklingum á vanskilaskrá hefurfœkkað um 15% á rúmu ári. Lítil breyting er áfjölda
fyrirtœkja á skránni
25000 --------------------
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
hefur verið valin í embætti
sóknarprests í Garðapresta-
kalli. Sjö umsækjendur voru
um embættið sem er veitt frá
1. desember næstkomandi. Sr.
Jóna var vígð sem prestur í Vest-
mannaeyjum árið 1991 en hefur
starfað sem miðbæjarprestur,
fyrst fyrir KFUM og KFUK en
seinna fyrir Þjóðkirkjuna.
Veislu
og fundarbakkar
20000 .
15000 •
0 r
p P » v 5 .«
A 2 S 2 S 2
— Einstaklingar — Lögaðilar |
Greinilegt er að góðærið um þessar
mundir hefur góð áhrif á getu ein-
staklinga og heimila í landinu til
að greiða skuldir sínar. Samkvæmt
upplýsingum frá Lánstrausti hf„
sem heldur utan um vanskilaskrá
hér á landi, hefur einstaklingum
á skránni fækkað jafnt og þétt frá
því í júní á síðasta ári. Þá voru um
20.000 einstaklingar á skránni, en
nú eru þeir tæplega 17.000. Fækkun-
in nemur um 15%. Ennfremur fækk-
ar þeim verulega sem lenda nýir
inn á skrána. Fyrstu 10 mánuði árs-
ins 2004 voru þeir 4.700 en á sama
tímabili í ár eru þeir 3.400. Að sögn
Bjarkar Ólafsdóttur, fjármálastjóra
Lánstrausts, er fækkunin jöfn í öll-
um aldurshópum. „Hagvöxturinn
er greinilega að skila sér og fólk er
að greiða upp skuldirnar sínar,” seg-
ir Björk.
Aldrei færri
7,7% íslendinga er á vanskilaskrá
en þegar mest var í júní 2004 voru
rúmlega 9% íslendinga á skránni.
Fækkunin að undanförnu þýðir að
aldrei hafa verið færri á skránni síð-
an Lánstraust tók við skráningu og
hægt var að bera saman tölur frá ár-
inu 1999. íslendingar eru hins vegar
mun verr staddir hvað þetta varðar
en frændur okkar Danir en þar í
landi eru um 5% einstaklinga á sam-
bærilegri skrá.
Til að lenda á vanskilaskrá þarf
einstaklingur að skulda yfir 30.000
króna höfuðstól. Ennfremur þarf
einhvers konar lögfræði innheimta
að hafa farið fram á viðkomandi
skuld, árangurslaust fjárnám eða
jafnvel gjaldþrot. Hjá Lánstrausti er
ekki haldið utan um hversu mikið
hver einstaklingur skuldar og því
liggur ekki fyrir til að mynda hver
sé meðalskuld þeirra sem á skránni
eru.
Sex þúsund fyrirtæki í vanda
Ef aldur þeirra sem á skránni eru er
skoðaður kemur í ljós að einstakling-
ar á aldrinum 35 til 45 ára eru líkleg-
astir til að vera þar.
„Það munar kannski ekkert sér-
staklega miklu á næstu aldurshóp-
um, en það er engu að síður sjáan-
legur munur,“ segir Björk. Hún segir
þetta í sjálfu sér ekki óeðlilegt, þar
sem þessi aldurshópur sé yfirleitt að
koma sér þaki yfir höfuðið og búinn
að skuldsetja sig nokkuð. Þvf þurfi
ekki mikið út af að bregða til að ein-
staklingar lendi í vanskilum. Árið
2003 og fyrri hluta árs 2004 fjölgaði
jafntogþéttávanskilaskránni.Björk
segir að þar hafi einstaklingar á aldr-
inum 20 til 30 ára verið áberandi, en
sú þróun eigi ekki við lengur.
Þrátt fyrir að einstaklingum á
skránni hafi fækkað á það ekki við
um fyrirtæki. Þau eru í dag um
6.000 og hefur talan haldist nánast
óbreytt síðasta eina og hálfa árið. ■
Inflúensufaraldur:
Lyfjabyrgðir duga fyrir þriðjung þjóðarinnar
TWiinlab
f kjölfar þess að WHO, alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin, birti
endurskoðun á viðbúnaðaráætlun
við heimsfaraldri inflúensu, hefur
Landlæknisembættið tekið þess-
ar breytingar inn í vinnu sína við
íslenska viðbúnaðaráætlun. Þetta
kemur fram í 10. tbl. Farsóttafrétta.
Þar eru skilgreind meginmarkmið
inflúensuviðbúnaðar hér á landi,
en þau felast í því að hindra beri að
heimsfaraldur berist til landsins sé
þegar árangurinn skiptir máli
■ÖFLUGT FITUBRENNSLUEFNI
•AUKINN KRAFTUR Á ÆFINGUM
Alþingi
Vilja frjálsa sölu áfengis
Útsölustaðir: Apótek og heilsustöðum
www.medico.is
Akralind 3-201 Kóp
Einkasala ríkisins á áfengi verður
aflögð ef frumvarp fjórtán alþing-
ismanna nær fram að ganga. I
frumvarpinu er gert ráð fyrir því
að verslun með vín með minna
en 22% alkahólmagn verði gefin
frjáls.
Með skilyrðum
Það var Guðlaugur Þór Þórðarsson
sem lagði frumvarpið fram á Alþingi
í gær en á bak við það standa fjórtán
þingmenn úr Samfylkingunni, Sjálf-
stæðis- og Framsóknarflokknum. í
meginatriðum gengur frumvarpið
út á það að einkasala ríkisins á léttu
áfengi verði lögð niður og sala á því
gefin frjáls. Verslun með áfengi mun
þó áfram lúta vissum skilyrðum nái
þetta frumvarp fram að ganga eins
og t.d. að einstaklingar undir 20 ára
aldri mega ekki afgreiða það og að
ekki verði leyfilegt að versla með
áfengi eftir kl. 20 á kvöldin.
Byggðalögum mismunað
1 máli Guðlaugs kom fram að núver-
andi kerfi væri arfleifð frá gamallri
tið og það væri í mótsögn við nú-
tíma samfélag að ríkið stæði í versl-
unarrekstri. Nefndi hann þrjú rök
máli sínu til stuðnings. f fyrsta lagi
að ekkert benti til þess að einkaaðil-
ar gætu ekki staðið að svona rekstri.
í öðru lagi að viða væru byggðalög-
um mismunað vegna staðsetning-
ar útibúa ÁTVR og í þriðja lagi að
einkaaðilar væru mun hæfari til að
reka verslanir af þessu tagi en ríkið
og að sala eigna fyrirtækisins, sem
nema þremur milljörðum, mundi
nýtast ríkissjóði vel. ■
þess kostur. Draga þarf úr útbreiðslu
hans innanlands eftir því sem unnt
er. Að lækna og líkna sjúkum. Að
vernda þá sem greina og stunda
sjúka og að vernda innviði samfé-
lagsins og þá sem viðhalda lífsnauð-
synlegri starfsemi í landinu.
Bóluefni og lyf mikilvægust
f fréttabréfinu segir að mikilvæg-
ustu aðgerðirnar sem gætu komið að
gagni við að hefta útbreiðslu heims-
faraldurs inflúensu hér á landi séu
bóluefni og inflúensulyf. Vitað er
að ef faraldur brýst út á heimsvísu
munu bóluefni verða af skornum
skammti í upphafi hans vegna tak-
markaðrar framleiðslugetu lyfjaiðn-
aðarins. Norrænir heilbrigðisráð-
herrar hafa þvi lagt til að kannaðir
yrðu möguleikar til að hefja fram-
leiðslu bóluefnis á Norðurlöndun-
um. Nefnd var skipuð um málið og
búist er við að hún skili áliti á næstu
dögum. Ríkisstjórnin heimilaði ár-
ið 2004 að keypt yrði nokkurt magn
af inflúensulyfjunum Tamiflu og Re-
lenza og á þessu ári hafa umtalsverð-
ar birgðir til viðbótar verið keyptar
af Tamiflu. Tamiflu má nota til með-
ferðar og fyrirbyggjandi meðferðar
á inflúensu. Lyfjabirgðir eru til í
landinu fyrir um þriðjung þjóðar-
innar og er það, samkvæmt Farsótt-
arfréttum, eitt hæsta hlutfall sem
þekkist í heiminum. Ef til heimsfar-
aldurs kæmi verður lyfjunum dreift
til sjúkrastofnana og heilsugæslu-
stöðva sem annast munu dreifingu
lyfjanna til þeirra sem á þurfa að
halda. ■
Forsetinn I heimsókn hjá
bandarískum þingmönnum
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, heimsótti á dögunum þingmenn í fulltrúa- og
öldungadeild Bandaríkjaþings en Ólafur var í Washington á stjórnarfundi Special Olymp-
ics. Á meðal þingmanna sem forsetinn hitti voru William Frist, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, Tom Harkin, Jim Leach, Ed Markey og síðast en ekki síst John McCain
frá Arizona. A myndinni afhendir forsetinn McCain gjöf frá forsetaembættinu í tilefni
heimsóknarinnar.