blaðið - 11.11.2005, Síða 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöiö
fraskar konur syrgja ættingja sinn sem fórst í sjálfsmorðsárás á veitingastað í Bagdad í gærmorgun.
Sprengja springur á þéttsetnum veitingastað í írak:
Mannskæðasta árás í
borginni
Að minnsta kosti 33 fórust og 25 slös-
uðust þegar tveir menn sprengdu
sjálfa sig í loft upp á þéttsetnum
veitingastað í Bagdad í gærmorgun.
Árásin, sem var ein mannskæðasta
árás í höfuðborginni á undanförn-
um mánuðum, var gerð degi eftir
að sex manns fórust og 25 slösuðust
í tveimur bílsprengjum í hverfum
sjítamúslima í borginni. Sprenging-
í nokkra
in átti sér stað rétt áður en von var
á Jack Straw, utanríkisráðherra Bret-
lands, til íraks en hann mun funda
með Ibrahim al-Jaafari, forsætisráð-
herra landsins.
Að minnsta kosti fjórir íraskir
lögreglumenn sátu að snæðingi
á veitingastaðnum þegar tilræðis-
mennirnir létu til skarar skríða. Til-
ræðismennirnir voru með sprengjur
mánuði
vafðar utan um sig en einnig er talið
að annar þeirra hafi haft sprengi-
efni meðferðis í poka. Sprengingin
var svo öflug að hana mátti heyra í
nokkurra kílómetra fjarlægð. Veit-
ingastaðurinn, sem var þéttsetinn
þegar sprengingin átti sér stað, er
gjarnan fjölsóttur af íröskum örygg-
issveitum. ■
Eftirlýstur sprengju-
gerðarmaður felldur
Lögregla í Indónesíu hefur staðfest að Azahari Husin hafi verið
felldur í skotbardaga á miðvikudag. Hann er talinn hafa lagt á
ráðin umfjölda sprengjuárása í suðaustur-Asíu á undanförnum
árum.
ý komið
Luxur.fal
Lögregla á Indónesíu staðfesti í gær
að eftirlýstur hryðjuverkamaður
hefði fallið í skotbardaga við lögreglu
á miðvikudag. Rannsóknir á fingra-
förum leiddu í ljós að annar víga-
mannanna sem féllu í skotbardaga
í bænum Batu í Austur-Jövu héraði
hefði verið Azahari Husin. Hann var
annað hvort skotinn til bana eða féll
þegar félagi hans sprengdi sprengju.
Ázahari Husin hefur lengi verið
eftirlýstur í Suðaustur-Asíu vegna
tengsla við hryðjuverkahópa.
Leyniþjónustufulltrúar í Indónes-
íu, í Ástralíu og í Malasíu fögnuðu
dauða Azahari sem þótti snjall
sprengjugerðarmaður og hefur ver-
ið kennt um fjölda árása á undan-
förnum árum. Að sögn lögreglu
fundust 30 sprengjur í húsinu þar
sem Azahari og félagi hans héldu til.
Azahari er talinn hafa lagt á ráðin
um fjölda sprengjuárása á vestræn
skotmörk á Indónesíu og var helsti
sprengjusmiður Jemaah Islamiah-
samtakanna sem tengjast A1 Kaída-
Lögreglumaður stendur við hlið spjalds með mynd af eftiriýstum hryðju verkamönnum í
Jakörtu, höfuðborg Indónesíu.
hryðjuverkasamtökunum. Meðal
annars er hann talinn hafa hannað
og séð um smíði bílasprengju sem
varð 202 að bana, þar af 88 Áströl-
um, á ferðamannastað á eyjunni
Balí árið 2002.
Of snemmt að lýsa yfir sigri
Ansyaad Mbai, sem er yfirmaður
samhæfðra aðgerða gegn hryðju-
verkum í Indónesíu, sagði þó að
of snemmt væri að lýsa yfir sigri.
„Hreyfing sem á sér hugsjónir og
pólitísk markmið deyr ekki drottni
sínum þó að leiðtogi hennar geri
það,“ sagði hann. John Howard, for-
sætisráðherra Ástralíu, tók í sama
streng og sagði að Jemaah Islamiah
myndi ekki lamast við dauða Aza-
haris en þetta væri þó mikilvægt
skref í stríðinu gegn hryðjuverkum.
Fréttaskýrendur telja að fréttin af
dauða Azaharis muni koma sér vel
fyrir Susilo Bambang Yudhoyono,
forseta Indónesíu, sem hefur átt í
vök að verjast vegna síaukinnar verð-
bólgu og fuglaflensu ■
Grímsbæ við Bústaðarveg • Ármúla 15 • Hafnarstræti 106 J
600 Akureyri • Sfmi 588 8050. 588 8488.462 4010
email: smartgina@simnet.is
Blair ber
höfuðið hátt
Tony Blair sakaði meirihluta þingmanna
um að vera ekki í tengslum við almenning
eftir aðfrumvarp um varnir gegn hryðju-
verkum varfellt á breska þinginu.
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, bar höfuðið hátt í gær þrátt
fyrir að umdeilt frumvarp hans um
varnir gegn hryðjuverkum hafi ver-
ið fellt í breska þinginu á miðviku-
dag. Á ríkisstjórnarfundi sakaði
hann meirihluta þingmanna um að
vera ekki í tengslum við almenning
og að þeir gerðu sér ekki grein fyrir
hvílík ógn stæði af hryðjuverkum.
Blair telur sig enn hafa óskorað um-
boð til að stjórna landinu og hefur
ekki í hyggju að segja af sér. Michael
Howard, leiðtogi fhaldsflokksins,
segir að Blair beri að segja af sér í
ljósi niðurstöðunnar og Charles
Kennedy, telur að staða hans verði
veikari héðan í frá. Stjórnmálaskýr-
endur taka í sama streng og segja
að atburðurinn kunni að marka
vatnaskil á annars glæstum ferli
Blair sem hefur átt á brattann að
sækja síðan innrásin í írak var gerð
árið 2003. Blair, sem hefur í hyggju
að hætta sem forsætisráðherra fyrir
næstu kosningar, lét aftur á móti
engan bilbug á sér finna og hyggst
sitja út kjörtímabilið.
Þingmenn Verkamanna-
flokksins svíkja lit
Þingmenn felldu á miðvikudag
umdeild lög um varnir gegn hryðju-
Staða Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, þykir hafa veikst enn frekar
eftir að frumvarp hans um lög gegn
hryðjuverkum var fellt í breska þinginu á
miðvikudag.
verkum sem meðal annars fólu í
sér að hægt yrði að halda fólki í allt
að 90 daga án þess að ákæra væri
lögð fram. Tæplega 50 þingmenn
úr Verkamannflokknum, flokki
Blair, snérust á sveif með stjórnar-
andstöðunni í málinu. Þingmenn
felldu frumvarpið með 322 atkvæð-
um gegn 291 en studdu síðar tillögu
þar sem lagt var til að hámark gæslu-
varðhalds án ákæru yrði 28 dagar í
stað 14 eins og nú er.
Lögregluyfirvöld og ríkisstjórnin
hafa lýst yfir vonbrigðum sínum
með niðurstöðuna og fyrirhugaður
er fundur forsætisráðherra og örygg-
isyfirvalda um málið. ■
Kínversk stjórnvöld gagnrýna George Bush, Bandaríkjaforseta, fyrir að hafa átt fund
með Dalai Lama, andiegum leiðtogaTíbetbúa.
George Bush áttifund með Dalai Lama:
Kínverjar gagn-
rýna Bush
Kínverjar gagnrýndu George W.
Bush, Bandaríkjaforseta, í gær fyr-
ir að hafa átt fund með Dalai Lama,
andlegum leiðtoga Tíbets. Þeir vís-
uðu ennfremur á bug ársskýrslu
stjórnvalda í Washington um
trúfrelsi í Kína en sögðu að málið
myndi ekki varpa skugga á vænt-
anlega heimsókn Bush til Peking.
George Bush hitti Dalai Lama í
Hvíta húsinu á miðvikudag, degi
eftir að ríkisstjórn hans sakaði kín-
versk stjórnvöld um að brjóta alvar-
lega á trúfrelsi þegna sinna í skýrslu
til þingsins.
„Dalai Lama er ekki aðeins einfalt
trúartákn. Hann er pólitískur flótta-
maður. Við erum því mótfallnir að
hann fundi með öðrum leiðtogum,"
sagði Liu Jianchao, talsmaður utan-
ríkisráðuneytis Kína á fundi með
fréttamönnum. Dalai Lama flúði
Tíbet eftir misheppnaða uppreisn
gegn ríkisstjórn kommúnista í Kína
og hefur farið fyrir stjórn sinni í út-
legð.
Ekki fótur fyrir ásökunum
Liu sagði ennfremur að ekki væri fót-
ur fyrir ásökunum um að kínversk
stjórnvöld leggðu hömlur á trúariðk-
un í landinu eins og haldið er fram í
nýlegri skýrslu utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna. „Fólk í öllum héruð-
um Kína nýtur trúfrelsis lögum sam-
kvæmt," sagði Liu og hvatti Banda-
ríkjamenn til að láta af afskiptum
sínum af trúmálum í Kína. Fyrr í
vikunni var prestur mótmælenda,
eiginkona hans og bróðir hennar,
dæmd í allt að þriggja ára fangelsi
fyrir að hafa prentað ólöglega bibl-
íur og önnur kristileg rit. ■