blaðið - 11.11.2005, Side 12
12 i ERLENDAR FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaðið
f öðru tilfellinu greindist fugla-
flensan í hræi flamingófugls
Fuglaflensa
greinist í
Kúveit
Tvö tilfelli fuglaflensu hafa kom-
ið upp í Kúveit en ekki er ljóst
hvort um sé að ræða banvænt
afbrigði sjúkdómsins sem hefur
valdið dauða íjölda alifugla í
Asíu og hefur vakið upp ótta
um alheimsfaraldur meðal
manna. Þetta er fyrsta tilfelli
sjúkdómsins sem tilkynnt er
um í Miðausturlöndum en áður
hefur hann greinst í nokkrum
löndum Asíu og Evrópu.
Yfirmaður lanbúnaðarmála
óg fiskveiða f landinu sagði að
sjúkdómurinn hefði greinst
í páfagauki sem haldið var í
sóttkví á flugvelli. Hann sagði
að páfagaukurinn hefði verið
fluttur inn frá Asíu en tilgreindi
ekki frá hvaða landi. í seinna til-
fellinu greindist fuglaflensan i
hræi flamingófugls sem fannst
á strönd. Ekki hefur verið
tilkynnt um nein tilfelli sjúk-
dómsins í mönnum í landinu.
A1 Kaída lýsa ábyrgð á hendur sér
Nœrri 6o mannsfórust íþremur sprengingum á lúxushótelum í Amman í Jórdaníu á mið-
vikudagskvöld. Al Kaída-hópur í írak segist bera ábyrgð á árásunum sem erufyrstu meiri-
háttar árásirnar í Jórdaníu.
Hryðjuverkahópur á vegum A1 Ka-
ída-samtakanna lýsti í gær ábyrgð
á hendur sér á sjálfsmorðsprengju-
árásum í Amman í Jórdaníu sem
urðu 57 manns að bana og særðu
no. Á miðvikudagskvöld sprungu
þrjár sprengjur á jafnmörgum lúxus-
hótelum í borginni. Sprengjurnar
sprungu nánast samtímis á hótelun-
um þremur sem öll tilheyra banda-
riskum hótelkeðjum. Á tveimur
hótelanna var verið að fagna brúð-
kaupum þegar sprengingarnar urðu.
Foringi hryðjuverkahópsins sem
lýsti ábyrgð á tilræðunum á hend-
ur sér er Jórdaninn Abu Musab al-
Zarqawi en hann er helsti leiðtogi A1
Kaída-samtakanna í Irak. Samtökin
hóta frekari árásum í landinu.
Árásirnar fordæmdar af
þjóðarleiðtogum
Abdullah, konungur Jórdaníu, for-
dæmdi árásirnar sem hann sagði
að hefðu beinst að og banað saklaus-
um jórdönskum borgurum. Fleiri
þjóðarleiðtogar hafa einnig fordæmt
árásirnar og Kofi Annan, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, hætti við fyr-
irhugaða ferð sína til borgarinnar. 1
gær kom fjöldi fólks saman á götum
Amman til að láta í ljósi andúð sína
á hryðjuverkunum.
„Harðstjórinn í Amman má vita
það að vernd hans á gyðingum hef-
ur gert hann að skotmarki stríðs-
manna okkar,“ segir meðal annars
í yfirlýsingu A1 Kaída. Jórdanía er
eitt af tveimur arabaríkjum sem
hafa undirritað friðarsamninga við
ísrael. Ennfremur hefur Jórdanía,
sem á landamæri að Irak, liðsinnt
Bandaríkjamönnum í stríðinu í
landinu þar sem hópur Zarqawis
tekur virkan þátt í aðgerðum upp-
reisnarmanna. Fram að þessu hef-
ur ekki verið mikið um meiriháttar
árásir á útlendinga í Jórdaníu þrátt
fyrir nálægð landsins við Irak og
vinsældir þess meðal vestrænna
ferðamanna. Yfirvöld hafa engu að
síður búist við að hryðjuverkahópar
létu til skarar skríða í landinu.
Landamærum lokað
Nokkrir voru handteknir í tengslum
við tilræðin og yfirvöld létu loka
landamærum eftir árásirnar til að
koma í veg fyrir að grunuðum til-
ræðismönnum tækist að flýja. Þá var
öryggisgæsla efld við hótel og sendi-
ráð í Amman. Marwan al-Muasher,
aðstoðarforsætisráðherra, sagði að
flestir þeirra sem fórust hefðu verið
Jórdanir en einnig voru nokkrir út-
lendingar í hópi hinna föllnu. ■
Rania, Jórdaníudrottning, hughreystir konu sem slasaðist í einni af þremur sprengjuárás
um sem gerðar voru í Amman, höfuðborg Jórdaníu, á miðvikudag.
Amir Peretz, hinn nýkjörni leiðtogi Verkamannaflokksins, og eiginkona hans leggja blómkrans á gröf Yitzhak Rabins í Jerúsalem.
Peretz steypir
Peres af stalli
Amir Peretz hafði betur en Shimon Peres í kjöri tilformanns Verka-
mannaflokksins í ísrael. Löngum stjórnmálaferli Peres kann að
vera lokið og hugsanlega er stjórnarsamstarfið í hœttu.
Verkalýðsleiðtoginn Amir Per-
etz vann í gær óvæntan sigur á
Shimon Peres, varaforsætisráð-
herra ísraels, í kosningum til
leiðtoga Verkamannaflokksins.
Peretz, sem er 53 ára og að mestu
óþekktur á alþjóðavettvangi,
var lýstur sigurvegari í kosning-
unum með rúmlega 42% atkvæða
en Peres fékk um 39% atkvæða.
Binyamin Ben-Eliezer, fyrrverandi
formaður flokksins, lenti í þriðja
sæti með 17% atkvæða.
Úrslitin eru talin mikið áfall fyr-
ir Peres og kann stjórnarsamstarf
Verkamannaflokksins og Líkúd-
bandalagsins jafnvel að vera í hættu
vegna þeirra. Amir Peretz hefur
lofað því að draga Verkamanna-
flokkinn út úr ríkisstjórn Ariels
Sharons sem eykur líkur á að boðað
verði til kosninga fyrr en ætlað var.
Peres, sem er 82 ára gamall ,var tal-
inn mun sigurstranglegri fyrirfram
og er ekki ólíklegt að tapið marki
endalok stjórnmálaferils hans sem
hefur staðið í sex áratugi.
Peres vill halda stjórn-
arsamstarfi áfram
Shimon Peres, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og núverandi varaforsætis-
ráðherra, vildi halda stjórnarsam-
starfinu áfram fram að kosningum
sem gert er ráð fyrir að fari fram í
nóvember á næsta ári. Hann aflaði
áætlunum ríkisstjórnarinnar um
að hörfa af Gasaströnd stuðnings
meðal flokksfélaga sinna. Líkúd-
bandalag Ariels Sharons, forsætis-
ráðherra, klofnaði í afstöðu sinni
til málsins og án stuðnings Verka-
mannaflokksins hefði ekki verið
hægt að hrinda áætlununum í fram-
kvæmd.
Peretz er mikið í mun að Verka-
mannaflokkurinn hverfi aftur til
sinna gömlu sósíalísku gilda og er
hann óánægður með þann niður-
skurð sem hefur orðið á framlög-
um til félagsmála í tíð ríkisstjórnar-
innar og hið ört vaxandi bil á milli
ríkra og fátækra í landinu. ■
Enn dregur úr óeirðum
Það dró nokkuð úr ofbeldi og óeirð-
um í borgum og bæjum í Frakk-
landi þriðju nóttina í röð í fyrrinótt.
Kveikt var í 482 ökutækjum en nótt-
ina á undan voru þau 617. Þá hand-
tók lögregla rúmlega 203 manns
sem var talsverð fækkun frá nótt-
inni á undan.
Ekki eru allir á eitt sáttir um
áætlanir Nicolas Sarkozys, innan-
ríkisráðherra, um að vísa úr landi út-
lendingum sem staðnir eru að þátt-
töku í óeirðum. Hann hefur lýst því
yfir að um 120 útlendingum, sem
dæmdir hafa verið fyrir aðild að
óeirðum, verði vísað úr landi þrátt
fýrir að þeir hafi dvalarleyfi í land-
inu. Ólgan, sem einkum hefur ver-
ið í hverfum fátækra innflytjenda,
hefur komið illa við hina íhalds-
sömu ríkisstjórn landsins og varð
til þess að Dominique de Villepin,
forsætisráðherra, setti á 50 ára göm-
ul neyðarlög sem gera yfirvöldum
mögulegt að setja á útgöngubann og
aðrar hömlur. Margir Frakkar lýstu
yfir ánægju sinni með hin hörðu við-
brögð stjórnarinnar en Villepin var
einnig sakaður um að bregðast of
hart við.
Villepin hefur heitið því að verja
sem nemur 100 milljónum evra
í sjóð fyrir grasrótarsamtök sem
vinna í hverfum þar sem mikið
hefur verið um félagsleg vandamál.
Ennfremur vill hann vinna að því
að auka möguleika íbúa þessara
hverfa til að verða sér úti um mennt-
un, komast á vinnumarkaðinn og
koma sér þaki yfir höfuðið. ■
Tilkynning um útgöngubann f borginni Evreux f norðurhluta Frakklands. Fyrir aftan
standa óeirðalögreglumenn við öllu búnir.