blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 14

blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 14
blaði Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Karl Garðarsson. ER RANNSÓKNAR ÞÖRF? Pað var athyglisverð frétt í síðari fréttatíma RÚV í fyrrakvöld. Þar sagði af yfirheyrslum á yfirmönnum allra stærstu olíu- félaga Bandaríkjanna. Þeir höfðu verið kallaðir fyrir þing- nefnd til að gera grein fyrir því hvernig á því stæði að fyrirtæki þeirra skiluðu methagnaði á sama tíma og þau teldu sig ekki geta lækkað verð á bensíni til neytenda. Bandaríska þingnefndin taldi að það gæti verið óeðlilegt og varðaði margra ára fangelsi ef við- komandi fyrirtæki væru kerfisbundið að mjólka neytendur á sama tíma og þau skara eld að sinni köku. Auðvitað eiga öll fyrirtæki rétt á því að hagnast enda er það mark- mið flestra fyrirtækja. Það er því erfitt að segja hvar mörkin liggja í því hvað er eðlilegt og hvað ekki. Almenningur verður að kaupa þjónustu af olíufélögunum og því felst ákveðin neytendavernd í því að félögin geti ekki endalaust okrað á kúnnanum. í því felst rann- sókn bandarísku þingnefndarinnar. Á íslandi hafa bankarnir verið að skila metafkomu síðustu miss- eri. Upphæðirnar eru slíkar að meðalmaðurinn skilur þær ekki. Kampavínið hefur flotið og bestu kúnnunum er með reglulegu millibili boðið í lúxusferðir til útlanda, enda skipta peningarnir ekki lengur máli. Þessu til viðbótar hafa yfirmenn þessara banka laun og hlunnindi sem myndi duga venjulegum launamanni til framfærslu í tugi eða jafnvel hundruð ára. Samt geta bankarnir ekki lækkað þjónustugjöld, svo ekki sé minnst á vexti. Þvert á móti hækka þessir hlutir með reglulegu millibili. Almenningur blæðir en bankarnir hagnast. Bandaríska þingnefndin varpaði meðal annars ljósi á laun olíufurstanna. Sjálfir gátu þeir fáu svarað. Hér á íslandi hafa bankamenn líka fáu svarað öðru en að þetta tíðkist út í hinum stóra heimi. Spurningar vakna og svörin eru fá. Kannski ættu ís- lenskir þingmenn að taka kollega sína vestanhafs sér til fyrirmynd- ar - skipa þingnefnd sem kannski fengi betri svör en almenningur fær. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur. Aðalsími: 510 3700. Símbréf áfréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. 14 I ÁLIT FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöió ER GlEDfLBgr At) /U-þJðDU^R K/tríNÁKÍ'R. HAFr LotcS SrflÐFESr fív Víp íSleudíng^ S&JM BKKi pmt MitíGjiISWfm 1 f/Eitfi UELVUR UfíR %% ÍSlZNViNG/t fíV VAKfí r CfíK-C Framtiðarlausnir fyrir leikskólana Mikið hefur verið fjallað undanfarna mánuði um þann vanda sem við stönd- um frammi fyrir í leikskólum landsins vegna skorts á starfsfólki til kennslu. Víða á höfuðborgarsvæðinu, til dæmis í sveitarfélaginu mínu, Kópavogi, eru börn send heim nokkra daga í mánuði til að mæta þessari vöntun á starfsfólki í leikskólunum. Þetta kemur sér auðvit- að illa fyrir alla hlutaðeigandi og veldur miklu álagi á þær fjölskyldur sem fyrir þessu verða að ekki sé talað um þá starfs- menn sem fyrir eru. í þeim sveitarfé- lögum þar sem náðst hefur að manna leikskólana er það þó bara rétt svo fyrir horn því víða þarf að senda börn heim ef umgangspestir láta á sér kræla meðal starfsmanna. Launin skammarlega lág Þessi vandi er árstíðabundinn og kem- ur upp á haustin og um áramót. Sums staðar sleppur þetta fyrir horn og það tekst að manna stöðurnar og sums stað- ar ekki. Það hefur lítið með það að gera hvað sveitarfélagið heitir eða flokkur- innsemheldurþarumstjórnartaumana. Grunnvandinn er nefnilega alls staðar hinn sami; gríðarleg starfsmannavelta og allt of lág laun. Mér hefur fundist ríkisvaldið sleppa nokkuð létt í gegnum þessa umræðu hingað til því ábyrgð þess er mikil. Til að leysa starfsmanna- vanda leikskólanna þarf margt að koma til og vil ég í þessum greinarstúf nefna tvö stærstu atriðin: I fyrsta lagi verða að koma til verulegar launahækkanir fyrir þessi störf sem eru skammarlega lágt launuð og á engan hátt samkeppnishæf. Þar ber ríkisvaldið sína ábyrgð vegna ranglátrar tekjuskiptingar ríkis og sveit- arfélaga. Enginn er eyland í þessum efn- um og ríkisvaldið verður að fara að axla sína ábyrgð þegar kemur að fjármögn- un á verkefnum sveitarfélaganna með því að fjölga tekjustofnum þeirra. Katrín Júlíusdóttir Helmingi umsækjenda vísað frá I öðru lagi, og samhliða launahækk- unum, verður að fjölga leikskólakenn- urum. Hlutfall leikskólakennara við störf í leikskólum er í kringum 34% þeirra sem starfa við kennslu. Á síðasta ári var helmingi umsækjenda um leik- skólakennaranám í Kennaraháskólan- um vísað frá vegna plássleysis. Þetta er auðvitað óviðunandi ástand þegar það blasir við og hefur gert árum saman að fjölga verður leikskólakennurum veru- lega. I umræðum um málið á Alþingi í gær skoraði ég á ráðherra að veita auknu fé til leikskólakennaramenntunar því það er svo sannarlega eftirspurn eftir náminu og þörf fyrir þessa menntun í samfélaginu. Svörin voru heldur rýr og taldi ráðherra nú þegar nóg að gert í þeim efnum. Því er ég ekki sammála þegar það er umframeftirspurn eftir náminu á sama tíma og fólk vantar í störf á leikskólum. Ríkið er ekki stikkfrí Við þurfum fleiri sem vilja gera störf með börnum í leikskólunum að ævi- starfi. Til þess að svo megi verða verður að gera betur við þessa starfsmenn hvort sem þeir eru faglærðir eða ófaglærðir. Það á ekki að vera neitt eðlilegt við það að á þenslutímum streymi starfsmenn út úr leikskólunum í önnur störf. Við verðum að endurmeta hvernig við verð- leggjum störf í okkar samfélagi því það er ekkert náttúrulögmál að fólkið sem vinnur með börnunum okkar sé á læstu laununum. Þetta er allt mannanna verk og þeim er hægt að breyta með pólitísk- um vilja og samstöðu þeirra sem geta þessu breytt. Höfundur er alþingismaður Klippt & skoríð klipptogskorid@vbl.is Halldór Blöndal hefur undanfarln ár mjög tekið svar fiðurfénaðar á Alþingi og hefur svo rammt að því kveðið, að á kaffistofunni eru menn farnir að kalla hann Föður andanna. Nú er til umræðu frumvarp hans um breytingu á lögum um fuglaveiðar. Af greinargerð- inni er Ijóst að Halldóri er þetta hjartans mál og mættu fleiri skjöl á þeim bænum vera skrif- uð af slíkri andagift: „...lagt [er] til að óheimilt sé að veiða fugla frá sólarlagi tilsólaruppkomusem eróhjákvæmi- legt þar sem komin er ný tækni, nefnilega nætursjónaukar. Það hefur færstí vöxt að skot- veiðimenn liggi fyrirgæsum við vötn og fljót eftir að fer að rökkva og dimmt er orðið. Þegar gæsirnar koma siðan fljúgandi ofan afheiðun- um eru þær auðveld bráð, sumar falla, aðrar flögra burt helsærðar og enn aðrar sleppa eins og gengur. Atgangureins og þessiáekkert skylt við iþróttir eða frjálsa útivist fremur en að skriða eftir bökkum áveituskurða og skjóta endursem þarhafa leitað skjóls." Wokkuð hefur verið rætt um notkun Stefáns Jóns Hafstein á merki Samfylkingarinnarí prófkjörsauglýs- ingu sinni. Vef-Þjóðviljinn telurhann þó ekkert þurfa að ræða það við flokksskrifstofuna: „Merki Samfylkingarinnar er sem kunnugt er rauður hringur á hvítum grunni og er einnig þekkt undir nafninu jap- anski fáninn. Það er því ekki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir heldur Aki- hito keisari sem fer með umráðarétt flokksmerkis- ins. Japanskeisari skartaði auk þess lengi titlinum „sonur sólarinnar", og telur þannig til skyldleika við Stefán sjálfan." Háðfuglinn Sigurjón Kjartansson skrifar reglulega pistla í DV, sem blað- inu er sómi að. I gær fjallaði hann um þá áráttu Islendinga að slá öllu á frest. Til dæmis tekur hann auglýsingaherferð- ina, þar sem skorað er á ungmenni að bíða aðeins með það að reyna fyrir sér f vímugjafa- neyslu, rétt eins og að það sé allt í lagi að dæla í sig ólyfjan- inni aðeins seinna. En lesendur DV þurftu síðan ekki að fletta nema 20 síður í vlðbót til þess að lesa viðtal við Sigurlaugu Hauksdóttur, félagsráðgjafa, á kynlífsopnu blaðsins undir fyrirsögninni: „Þeir sem fara seinna af stað sýna meiri ábyrgð". Mynd/Hari

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.