blaðið - 11.11.2005, Síða 16
16 I VEIÐI
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Stuttar fréttir
Það styttist í aðalfund Stanga-
veiðifélagsins en hann verður
haldinn í lok nóvember. Búast
má við að heldur færri félags-
menn mæti á fundinn nú en
fyrir ári síðan þegar um 450
veiðimenn á öflum aldri sátu
fundinn. Ekki hefur ennþá
heyrst um neitt mótframboð
gegn sitjandi stjórnarmönnum.
Guðmundur Guðjónsson,
blaðamaður, situr þessa dagana
við skriftir en Árbók stanga-
veiðimanna er væntanleg í
desember. Þetta er 18. árið í
röð sem bókin kemur út en að
þessu sinni mun hún birtast
lesendum í örlítið breyttu
formi. Árbókin er eina bók
Guðmundar fyrir þessi jól. Bók-
in er hins vegar ekki það eina
sem Guðmundur skrifar þessa
dagana því hann skrifar heUing
á vefinn Vötn og veiði daglega.
Hjá Stangaveiðifélagi Reykjavík-
ur er ýmislegt í gangi en fyrir
nokkrum dögum opnuðu þeir
myndabanka á vefnum sínum
og þar er hægt að skoða mikið
af myndum af veiðisvæðum
þeirra. Sjón er sögu ríkari.
Grœnland:
Meira en bara grœnt
Fleiri og fleiri veiðimenn fara út
fyrir landsteinana til að renna fyr-
ir fiski og um þessar mundir eru
Grænland, Rússland, Svíþjóð og
Argentína vinsælustu áfangastaðir
veiðimanna.
Við erum komin á veiðislóðir á
Grænlandi til renna fyrir fiski og
magnið er ótrúlegt. Við erum ekki
að tala um hundrað fiska, við erum
að tala um þúsundir. Margir þeirra
eru stórir, já mjög stórir.
Ég hef aldrei séð eins mikið magn
af fiski eins og þarna á Grænlandi.
Silfraða flugan Mýslan, sem veiði-
maðurinn snjalli á Akureyri, Gylfi
Kristjánsson hnýtti, gefur vel. Því-
líkar tökur hjá fisknum, þetta er
veisla.
Það er komin morgunn, tveir
veiðimenn eru að gera sig klára fyr-
ir veiði dagsins, en hinir sofa. Veiði-
dótið er allt klárt, það á að fara á
veiðislóðir þegar líður á morguninn.
Það er eitthvað framandi við Græn-
land, landið er ósnortið og veiðilend-
urnar eru margar. Til eru staðir þar
sem engir veiðimenn hafa komið til
veiða á.
Allir eru komnir á lappir og báta-
karlinn er mættur. Það er ekki eftir
Landssamband stangaveiðifélaga:
Ingólfur nœsti formaður?
Veiði á Grænlandi er ævintýri líkust.
neinu að bíða enda eru allir klárir.
Jörgen, bátasnillingur, er mað-
urinn sem fer með okkur allt sem
við þurfum að fara á sjónum. Hann
hefur mikla reynslu og þekkir svæð-
ið vel enda verið lengi á Grænlandi.
Faðir hans var skipstjóri og síðan
tók Jörgen við af honum.
Silungurinn tekur vel fluguna
Það tekur stuttan tíma að sigla að
veiðivatninu og veiðimenn hefja
gönguna upp að vatni. Þegar þeir
koma að vatninu vakir bleikjan á
stóru svæði, veiðimennirnir hugsa
sér gott til gióðarinnar. Veiðimenn
dreifa úr sér við vatnið, flestir not-
ast við fluguna, en ekki allir. Það
er byrjað að kasta en fiskurinn er
tregur, hann tekur alls ekki. Veiði-
menn færa sig og skipta um flugu,
einn veiðimaður fær fisk og svo ann-
an. Undir er fluga sem hann hnýtti
í vetur sem leið. Fiskurinn hefur
greinilega áhuga á hans flugum,
hann gefur veiðifélögunum fiugur
og þeir byrja að veiða eins og hann.
Einn veiðimaður fær fyrsta fiskinn
sinn á fluguna, hann er ánægður
með það. Veiðiskapurinn gengur
vel og bleikjan er væn, dagurinn er
eftirminnilegur, allir fá eitthvað og
sumir mikið.
Báturinn er kominn í fjöruna, all-
ir eru klárir til heimferðar. Siglingin
er mjög stutt og það er rætt um veiði
þegar komið er heim. Næsta dag er
líka farið til veiða og þar næsta líka,
er hægt að hafa þetta betra? Ég held
ekki. Einn með sjálfum sér í bull-
andi bleikju og ágætri töku. Græn-
land er góður staður til að vera á.
Á fimmtudaginn verður haldinn,
í félagsheimili Stangaveiðifélags
Hafnarfjarðar, aðalfundur Lands-
sambands stangaveiðifélaga. Hefst
fundurinn klukkan átta. Heimildir
Blaðsins herma að næsti formaður
verði Ingólfur Þorbergsson, en hann
tekur við af Brynjari Má Magnús-
syni sem hefur verið formaður í eitt
ár. Eggert Jóhannesson verður næsti
varaformaður félagsins. Fundartím-
inn vekur nokkra athygli en yfirleitt
hefur fundurinn verið haldinn um
helgar en þess gerist ekki þörf.
„Við bjóðum alla veiðimenn vel-
komna og vonum að þessi nýbrey tni
á fundartíma falli í góðan jarðveg.
Meining okkar með þessu er að
A myndinni eru Brynjar Már Magnússon,
Ingólfur Þorbergsson, Eggert Jóhannes-
son, Hans Ólafsson og Hilmar Hansson úr
stjórn Landssambands Stangaveiðifélaga
en aðalfundur félagsins verður haldinn á
fimmtudaginn næsta.
gera fundinn styttri og hnitmiðaðri.
Engu að síður eru félögin eindregið
hvött til að koma með stutta saman-
tekt yfir félagsstarfið eins og venja
er. Að loknum venjulegum aðalfund-
arstörfum verða erindi flutt til fróð-
leiks og skemmtunar. Annars vegar
flytur Sigurður Már Einarsson frá
Veiðimálastofnun erindi sem ber yf-
irskriftina: Um eflingu silungsveiði
og ónýtta möguleika hennar og hins
vegar kemur Örn Þórðarson frá
Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands
og flytur erindi sem nefnist: Sóknar-
færi og efnahagslegur ávinningur af
aukinni stangaveiði. Fundurinn er
opinn fyrir alla,“ segir Hans Ólafs-
son stjórnarmaður í LS.
Rjúpnaveiðar:
Leiðinlegt veðurfar spillir veiðinni
Það er ekki hægt að segja að veður-
farið sé neitt til að hrópa húrra fyrir,
miklar umhleypingar dag eftir dag
og alltof lítið um stillur. En margir
hafa samt farið til rjúpna og fengið
eitthvað af fugli.
Þeir Arnar Hjaltested, Egill Örn
Einarsson og Ólafur Viðarsson fóru
til rjúpna síðustu helgi og fengu
nokkra fugla.
„Héldum til rjúpna í dag í fínum að-
stæðum. Þurftum reyndar að hætta
snemma þegar lægð helgarinnar
gekk yfir, en labbið skilaði okkur
nokkrum hvítum,“ sögðu þeir félag-
ar er rjúpnatúrinn var á enda og þeir
komnir heim.
Margir veiðimenn hafa svipaða
sögu að segja og þeir félagar, tíðar-
farið hefur haft sitt að segja fyrir
veiðimenn. Rjúpnaveiðitíminn er
farinn að styttast í annan endann,
það eru 20 dagar eftir af tímabilinu.
Veiðimenn eiga eftir að nota þann
tíma vel og ætla margir á veiðar um
helgina.
Egill Öm Einarsson og Ólafur Viðarsson
kátir eftir ágætan veiðidag og nokkrar
hvftar.
3" gasskíptar hálfsjálfvírkar haglabyssur rn/6 skiptanlegurn
þrengingum + hörð taska, 26" hlaup, 3.080 kg.
Vandaðar ítalskar byssur serri henta vel við
íslenskar aðstæður. Verð frá 69.900 kr.
^7.
Utsölustaðir:
REYKJAVÍ*' Útiviit vciöi, i. VilhjhAlf'rvwon og lntcr'.p<
AKURfcYRI: Sjóbúðtn • RfcYOAfífiðKUUH; Vciöifiugan
°g
Síðumúiall • 108 Rcykjavik • Sími: $88 6500 • www.utivistogvcidi.is
•/
/
veiðivefuninn