blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 18
18 I TÖLVUR & TÆKI
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 Maöi6
Sjónvarpsgláp ekki lengur
bundið við sófann
Nú er loksins komin á markað
tækni sem gerir viðskiptavinum
kleift að horfa, hlusta eða skoða
uppáhaldsafþreyinguna sína hvar
sem hann er staddur í heiminum.
Viðkomandi opnar einfaldlega far-
tölvuna sína og skyndilega getur
hann til dæmis verið að flétta í
gegnum þær sjónvarpsstöðvar
sem hann er vanur að horfa á
heima í stofu. Nú á að vera hægt
að horfa á hvað sem hver vill, hvar
sem þeir vilja.
Beintenging í töivuna þína
Fyrirtækið Orb Networks hefur búið
til forrit sem gerir viðskiptavinum
þess kleift að horfa á sjónvarp, skoða
myndir eða komast í tónlistarsafn
tölvunnar sinnar hvar sem þeir eru
í heiminum í gegnum beinstreymis-
miðlun. Beinstreymismiðlun er
vissulega ekkert nýtt á markaði. Ot-
varps- og sjónvarpsstöðvar víða um
heim hafa um þó nokkurt skeið boð-
ið upp á slíka þjónustu en hún felst í
því að mjög stórar skrár eru sendar
í litlum bútum til viðtakanda þann-
ig að hann getur séð eða heyrt inni-
haldið án þess að sækja stóru skrána
fyrst í tölvuna. Nú hefur Orb Netw-
orks hins vegar byrjað að bjóða upp
á forrit sem hægt er að niðurhala
á heimasíðu þeirra gegn gjaldi og
gerir notendum þess kleift að horfa
á það stafræna afþreyingarefni sem
það er vant að horfa á heima hjá
sér, hvar sem er í heiminum. Þetta
snýst einfaldlega um það að Orb
getur sent efnið í farsíma, fartölvur
eða hvern þann búnað sem getur
nettengst og tekið á móti skrám. Ef
tölvan þin inniheldur sjónvarpskort
og sjónvarpið þitt er með ADSL teng-
ingu þá er meira að segja hægt að
horfa á stafrænt sjónvarp sem við-
komandi er áskrifandi að hvar sem
er í heiminum. Frekari upplýsingar
er að finna á www.orb.com.
Bylting í sjónvarspáhorfi
Önnur ný tækni er Slingbox tæknin
en hún er nokkuð auðveldari í notk-
un. Hún býðst nú á 250 dollara og
fæst meðal annars á amazon-vefn-
um en sendir þó einungis video-
skrár. Slingboxið gerir notandan-
um kleift að horfa á sjónvarpið sitt
hvar sem er í heiminum með þvi
að breyta nánast hvaða nettengdu
tölvu í þitt eigið sjónvarp. Hvort
sem viðkomandi er í öðru landi eða
bara í næsta herbergi þá hefur hann
ætíð aðgang að sjónvarpinu sínu.
Slingboxinu er stungið í það tæki
sem viðkomandi vill nálgast merki
frá og það sendir síðan efnið i gegn-
um netið til þeirrar PC tölvu sem
viðkomandi vill. Nauðsynlegt er þó
að hafa niðurhalað SlingPlayer hug-
búnaðinum til þess að að Slingboxið
virki. Frekari upplýsingar er hægt
að nálgast á www.slingmedia.com.
t.juliusson@vbl.is
Össur hlýtur fleiri
viöurkenningar
Gervihné hins íslenska stoðtœkjafyrirtœkis heldur áfram að vekja
athygli
Hlýtur viðurkenningu
framúrskarandi samtaka
I næstu viku, nánar tiltekið dagana
14.-15. nóvember, munu Alþjóðlegu
tæknisamtökin (WTN) heiðra þá
einstaklinga og fyrirtæki sem eru
ábyrg fyrir þeim uppfinningum
sem talin eru líkleg til að hafa mik-
il langtímaáhrif. Verðlaunin eru
veitt í samstarfi við TIME tímaritið,
CNN og Science tímaritið svo fáein
stórfyrirtæki séu nefnd og mun
afhendingin fara fram í ráðhúsi San
Francisco-borgar. Þar er meðal ann-
ars íslenski stoðtækjarisinn Össur
tilnefndur til verðlauna í heilsu og
lækninga flokki fyrir gervihné sitt,
,Power-knee“.
WTN er alþjóðlegur samstarfs-
grundvöllur þar sem meðlimir ein-
beita sér fyrst og fremst að því að
þróa, kynna og selja mikilvægar
tækninýjungar sem eru væntanleg-
ar. Þessar tækninýjungar eru afýms-
um toga og geta náð allt frá líftækni
að nýjum orkugjöfum eða byltingar-
kenndri fjarskiptatækni. Því er ljóst
að Össur er komið í hóp úrvals fyr-
irtækja og einstaklinga sem eru
leiðandi í sínu fagi í heiminum með
tilnefningunni. Hilmar Janusson,
framkvæmdastjóri rannsóknar- og
þróunarsviðs hjá Össuri, segir enda
á heimasíðu fyrirtækisins að þeir
séu „upp með sér vegna þessarar
viðurkenningar frá jafn framúr-
skarandi samtökum og þessum og
ánægðir með að vera í svona góðum
félagskap."
Önnur viðurkenningin
á stuttum tíma
Þetta er önnur stóra viðurkenningin
sem Össur hlýtur fyrir „Power-knee“
á nokkrum dögum því að uppfinn-
ingin var tilnefnd til verðlauna í
flokknum almenn heilsa á sýningu
tímaritsins Popular Science sem fór
fram á Grand Central lestarstöðinni
í New York og lauk í gær. Uppgötv-
unin var meðal tíu uppfinninga
sem voru heiðraðar í flokknum en
alls var tilnefnt í tólf mismunandi
flokkum. Hin nýja uppfinning Öss-
urar-manna notast við gervigreind
til að hjálpa þeim sem hafa misst
fótlegg ofan við hné að ná eðlilegri
hreyfingu á göngu þar sem hinn nýi
gerviútlimur frá Óssuri líkir eftir
hreyfingum hins hnésins. „Power-
knee“ er á lokastigum prófanna og
verður væntanlega fáanlegt á mark-
aði strax á næsta ári.
t.juliusson@vbl.is
Gervihné Össurar halda áfram að vekja
mikla iukku á alþjóðavettvangi.