blaðið - 11.11.2005, Side 20
20 I BESTI BITINN
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ
Beyglan þín
Beyglur eru tiltölulega nýleg viðbót í matarflóruna hérlendis en þær voru upphaflega kynntar landanum af Mjólkursamsölunni. Eitthvað
gekk brösuglega að bjóða þær ferskar og eftir skamman tíma var einungis hægt að kaupa þær frystar í pokum í helstu stórmörkuðum.
Þær urðu þó ekki hluti af framboði veitingahúsa fyrr en síðar en hafa notið vaxandi vinsælda undanfarin ár. Beyglur hafa verið fyrirferða-
miklar á bandarískum skyndibitamarkaði og margir telja þær sérameríska uppfinningu en svo er ekki. Flestar þjóðir eiga sér einhvers
konar sérbrauðrétti. Við íslendingar státum af ljúffengum flatkökum sem taka á sig enn þjóðlegri mynd þegar fjallagrösum hefur verið
bætt í baksturinn. Naan-brauð eru hluti af indversku mataræði, baguette af því franska en beyglur tilheyra hefðbundnu mataræði gyð-
inga, svokölluðu Kosher mataræði. Þeir strangtrúuðu blanda ekki saman kjötvörum og mjólkurafurðum en um mataræði þessa hóps gilda
ýmsar flóknar reglur. Beyglur eru því einatt bornar fram með ýmiss konar fisk- og grænmeti og rjómaostur er gjarna hafður með og í
Bandaríkjunum má finna fjölda góðra Kosherstaða þar sem þessi réttur er borinn fram eftir kúnstarinnar reglum. Á veitingahúsum borg-
arinnar má á sífellt fleiri stöðum sjá beyglur á matseðli og úrval áleggs er fjölbreytt. .........................
ernak@vbl.is
Sá enski hittir gyöinginn
Á Gráa kettinum, sem hóf rekstur árið 1997 á Hverfisgötunni, hefur frá upp-
hafi verið boðið upp á beyglur. Listakonan Hulda Hákon, sem rekur staðinn,
kynntist beyglum þegar hún bjó í Bandaríkjunum og þegar hún fór af stað
með matseðilinn fékk hún heila frystikistu af beyglum frá Mjólkursamsöl-
unni til að koma seðlinum af stað. Hann hefur þróast með árunum og í dag
er eggjabeyglan ein sú vinsælasta. Hún inniheldur staðgóðan enskan máls-
verð, egg, beikon, steikta tómata auk rjómaosts. Hún er enda vel heppnuð í
alla staði, gott jafnvægi á álegginu og rjómaosturinn blandast vel með enska
morgunverðinum. Morgunstjarnan er svipuð í sniðinu en á henni hefur egg-
inu verið skipt út fyrir salat sem gefur heildarbragðinu ferskara viðmót og
erfitt er að gera upp á milli þeirra. Þá er einnig vert að minnast á túnfisk-
beygluna því hún er sérlega vel heppnuð, létt og gott túnfisksalat, blandað
grænmeti og svartur piparinn gefur dúndurgóðan eftirkeim. Ekki má held-
ur gleyma þeirri með hummusinu sem er heimatilbúið, sérlega ferskt og
bragðgott og ekki spilla gæðaójífurnar fyrir en þær eru bornar fram í gati
beyglunnar.
Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, grafiaxi, sem
salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar.
Frábaer köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna.
Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa.
Dulúðug rauð-
laukssmyrja
Beyglan á Súfistanum, á Laugaveg-
inum og í Hafnarfirði, er vinsælust
sem morgunverður. Einfaldasta
útfærslan er borin fram með osti,
smjöri og marmelaði eða sultu. Á
Súfistanum er einnig boðið upp
á aðra vinsælli með skinku rauð-
laukssmyrju og salati, gúrku og
papriku. Beyglan sjálf er fjölkorna,
sérlega bragðgóð og seig en mætti
hafa stökkari skorpu. Beyglan er vel
samsett en það sem gerir bragðlauk-
ana hamingjusamasta er rauðlauks-
smyrjan sem er útbúin úr rjómaosti,
rauðlauk, svörtum pipar og öðrum
leyndardómsfullum kryddum sem
ekki fengust uppgefin. Bragðlauk-
arnir eru í stanslausri undrun og
spurn yfir henni þessari sem hvetur
til hverrar bitatökunnar á fætur ann-
arri. Smyrjan gefur þessari beyglu
mikið gildi og það væri forvitnilegt
að prófa hana þessa með öðru með-
læti svo sem eins og léttreyktum
fiski, kjúklingi eða grilluðu eggald-
ini.
Beygla með rauðlaukssmyrju kostar 690
krónur.
Kjúklingasæla
Bagel House hefur starfað á íslandi
í tvö ár en flutti í matarsal Kringl-
unnar fyrir ári. Bagel House flytur
beyglurnar inn frá London en þar er
súrdeigið bakað fyrir Bagel House
staðina í Evrópu og þar er einung-
is notaður Philadelphia smurostur.
Beyglan hefur verið kosin vinsæl-
asti skyndibitinn í Danmörku en
hjá Bagel House fengust þær upplýs-
ingar að hún ætti uppruna sinn að
rekja til Póllands. Mikið úrval með-
lætis er í boði á staðnum og hægt er
að velja saman það sem maður helst
kýs. Beyglurnar eru alltaf bornar
fram ristaðar en þær má einnig fá
sem svokallaðan bræðing. Þá hefur
gouda ostur verið bræddur yfir val-
ið meðlætið. Kjúklingasæla er ein
vinsælasta beygla staðarins en á
henni eru steiktar kjúklingabringur,
kál, agúrka, paprika, tómatar, lauk-
ur og ólífur ásamt sósu. Kjúklinga-
sælan er afar fersk og bragðgóð en
minnir um margt á sambærilega
báta. Brauðið er þó vissulega stökkt
að utan og seigt að innan eins og
vera ber og mjög bragðgott.
100 gr. beygla kostar 519 krónur og 150
gr. beygla kostar 649 krónur.
Sómi og Essó
í samstarfi
Essó-stöðin við Ártúnshöfða hóf að
bjóða upp á beyglur síðsumars og
þó hún sé ekki vinsælasti skyndi-
bitinn á þeim staðnum hefur hún
unnið á. Beygla með reyktum laxi,
eggjum, salati, agúrku og sinneps-
sósu er þar vinsælli af tveimur kost-
um en hin beyglan er grænmetis-
kostur. Laxabeyglan er vel samsett
og hlutföll áleggsins góð. Laxinn
sjálfur er fyrirferðamestur, bæði vel
úti látinn og mildur auk þess sem
soðin eggin gefa beyglunni aukna
mýkt. Hér mætti þó kalla til hinn
hefðbundna rjómaost sem vafalaust
færi ákaflega vel með laxinum en
sinnepssósan gefur ekki nægjanleg-
an kraft sem leiðir til þess að beygl-
an er heldur þurr. Áætlanir eru um
að bjóða upp á aukið úrval beyglna
á Essóstöðinni en þær eru sérsmurð-
ar af Sóma fyrir stöðina.
Beyglan kostar 399 krónur