blaðið - 11.11.2005, Page 27
blaðið FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005
FRÉTTIR I 21
íraskir dagar á ísafirði
Meira en bara stríö
1 dag verða settir íraskir dagar á Isa-
firði. Setningin fer fram á Silfurtorgi
klukkan fimm þegar fánar íslands
og Iraks verða dregnir að húni, auk
þess sem leiknir verða þjóðsöngvar
landanna. í kvöld verður svo íraskt
þema á Langa Manga þar sem verð-
ur meðal annars boðið upp á íraska
súpu. Á morgun er svo fyrirhuguð
glæsileg matar- og menningarveisla
í Edinborgarhúsinu, þýðingar á
íröskum ljóðum verða lesnar upp,
írösk tónlist spiluð og iraskur matur
borðaður. Auk þess verður kynning
á íraskri sögu frá Mesópótamíu til
nútímans.
tilgangur með húllumhæi af þessu
tagi. I heimi þar sem kostar álíka
að fylla á matarkörfuna í Bónus og
stökkva af stað til innkaupa á meg-
inlandi Evrópu eða Bandaríkjunum
er kominn tími til að leita yfir læki,
yfir marga læki, og síðan fleiri læki
þar til við stöndum mitt á milli
tveggja sögufrægra fljóta við botn
Persaflóa: Tígris og Efrates. Þar
finnum við „landið milli ánna“, Mes-
ópótamíu, landið sem við þekkjum
aðeins úr fréttatímum og dægurs-
nakki misvitra stjórnmálaspekinga:
frak. Það er fyrir löngu kominn tími
til þess að íslendingar átti sig á því
að Irak er meira en sprengingar og
innrásir, meira en hryðjuverk og
meiðingar. frak er ein elsta menn-
ingarþjóð heimsins og á skilið meira
en kortersafgreiðslu í fréttatímum,"
segir Eiríkur Örn Norðdahl, annar
af tveimur skipuleggjendum hátíð-
arinnar. Hinn er Hálfdán Bjarki
Hálfdánsson, útgáfustjóri bókafor-
lagsins Traktors, sem bætir því við
að þeir félagar hafi viljað bæta úr
þekkingarskorti landans á einni
elstu menningarþjóð með þessum
hætti. _
Farið yfir marga læki
„Nú er komið nóg af dönskum dög-
um, norskum dögum, bandarískum
dögum, írskum dögum og öðrum
slíkum gegndarlausum óþarfa. Með
tilkomu auðveldaðra samskipta ís-
lands við grannþjóðir sínar, þessar
þjóðir sem liggja meira og minna
við dyrastaf okkar, er horfinn allur
Honeyboy og
Michael Frank
Honeyboy og Michael Frank mættu á klak-
ann í gærdag og vel lá á þeim félögum en
þeir munu troða upp í Grindavík í kvöld.
Húsið opnar klukkan átta. Aðaltónleikar
þeirra félaga verða svo haldnir á Nasa á
morgun.
Fróðleikur
og afþreying
um helgina
Lesið verður upp úr jólabókunum
í Borgarbókasafni á morgun þegar
Bókaveisla Síung hefst í Aðalbóka-
safni við Tryggvagötu. Höfundar,
þýðendur og fleira listafólk lesa úr
nýjum bókum fyrir börn á öllum
aldri og töfrandi leynigestur lítur
við. Veislan stendur á milli klukk-
an eitt til fimm og eru foreldrar
hvattir til að mæta með börnin sín.
Hvað er að
gerast í
Palestínu?
Omar Sabri Kitmitto, sem er að
láta af störfum sem yfirmaður
aðalsendinefndar Palestínu og
Frelsissamtaka Palestínu í Noregi og
á Islandi, kemur hingað til lands á
sunnudag. I kveðjuheimsókn sinni
mun hann m.a. hitta forsætisráð-
herra íslands og utanríkisráðherra.
Félagið Ísland-Palestína stendur
af þessu tilefni fyrir opnum fúndi
sunnudagskvöldið 13. nóvember á
Kaffi Reykjavík klukkan átta. Þar
mun Kitmitto vera með erindi um
ástandið í Palestínu í dag, spjalla
um friðarhorfur ásamt því að svara
fyrirspurnum. Aðgangur er ókeypis
og fundurinn er öllum opinn. ■