blaðið

Ulloq

blaðið - 11.11.2005, Qupperneq 32

blaðið - 11.11.2005, Qupperneq 32
32 I AFÞREYING FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005 blaöiö Tölvudrifið borðskraut VaralitaMP3 Bratz-dúkkurnar eru það stærsta sem komið hefur á dúkkumarkaðinn síðan Barbie og Ken slógu í gegn á bleika bílnum. Nú hafa markaðssér- fræðingar Bratz ákveðið að taka þátt í iPod væðingu ■ heimsins með því að framleiða Bratz Liptunes MP3 spilara sem er eins og varalitur í laginu. Japanir hafa merkilega áráttu til að búa til sem tilgangs- lausa aukahluti fyrir tölvur sem hafa það hlutverk eitt að lífga upp á tilveruna. Hraunlampi Það nýjasta í þessum fræð- um er nördaútgáfa af hinum sívinsælu hraunlömpum (lava lamp) en þeir fást nú í nokkrum litaútgáfum og tengjast USB tengi tölvunnar. Nuddmús Hver kannast ekki við að vera kominn með vöðvabólgu í lófann eftir of marga músar- smelli? Japanska fyrirtækið Laos hefur svarað bænum þínum með því að finna upp USB nuddmúsina. Músin er með hrjúfu yfirborði sem eykur blóðflæði í lófann og slakar á vöðvum, að því er framleiðand- inn segir. Augljóst má vera að hún geti þó hjálp- að fólki að slaka á en spyrja má hvort höndin njóti góðs af tækinu. Microsoít með há markmið Tölvurisinn Microsoft setur sér há markmið fyrir útgáfu á nýju XBox leikjavélinni, XBox 360. Fyrirtækið býst við að selja þrjár milljónir XBox véla á fyrstu þremur mánuðunum eftir útgáfu vélarinnar og ætlar þannig að sölsa „næstu kynslóðar leikjavélamarkaðinn" undir sig. Búist er við XBox 360 í verslanir vestan hafs 22. nóvember en samkeppnis- aðilarnir, Nintendo, með Revolution tölvuna, og Sony, með PlayStation 3 tölvuna, mæta til leiks á næsta ári. Þótt óvíst sé hvort Microsoft takist þetta markmið sitt verður að teljast jákvætt ■mjt , að stórar verslunarkeðjur f Bandaríkjunum eru hættar að taka við pöntunum á vél- inni þar sem ásókn hefur verið mikil. Harður diskur fyrir PSP Nú er komið að gleðifréttum fyrir núverandi og verðandi eigendur PlayStationPortable leikjavélarinnar en fyrirtækið Datel er búið að gefa út 4 GB harðan disk fyrir vélina. Hann eykur töluvert það geymslupláss sem kemur upphaflega með vélinni en það er í formi minniskorts, með yfirleitt 32 MB minni. Samkvæmt Datel, sem sérhæfir sig í framleiðslu á aukahlutum fyrir hvers kyns leikja- tölvur, mun harði diskurinn gefa eig- endum PSP tækifæri til að vista allt að fjórar kvikmyndir í fullri lengd og meira en x.000 lög auk þúsunda stafrænna mynda. Diskurinn verður seldur í pakka með hleðslurafhlöðu, USB kapli og hugbúnaði. Lausn á siðustu þraut Ættleiðið á Netinu Þegar maður hélt að hugmynd- ir að vefsíðum væru uppurnar komst lögreglan í Frakklandi á snoðir um vefsíðu sem selur börn. Rannsóknarlög- reglan hefur hafið rannsókn á málinu sem litið er alvarleg- um augum - að sjálfsögðu. Heimsmeistaramótið í Óþelló hófst í Reykjavík í gær en úrslit verða ljós á morgun. Þetta er þó ekki heimsmeistarakeppni í einleik eins og margir gætu haldið heldur í spilinu Óþelló. Óþelló kemur upprunalega frá Englandi u.þ.b. árið 1880 en þá hét spilið Reversi og var með nokkuð öðrum reglum en nú þekkist. Spil- ið á sér þó e.t.v. eldri rætur í Asíu. Reversi naut mikilla vinsælda í Englandi um 20 ára skeið en féll síðan í gleymsku. Óþelló eins og við þekkjum það í dag er verk Jap- ana að nafni Goro Hasegava. Hann endurbætti spilið, breytti reglunum og breytti nafninu í Óþelló eftir hinu þekkta verki William Shakespear. Þannig öðlaðist spilið nýtt líf á 8. og 9. áratugnum, sérsambönd spruttu upp víða um lönd og heimsmeistaramót hefur verið haldið árlega síðan 1975. Það 29. er haldið í Reykjavík þessa dagana en það 30. verður hald ið í Japan í heimabæ Goro Hasegava. Leiðbeiningar Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eöa lóörétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 5 1 8 3 1 9 2 6 4 8 5 4 1 7 9 8 4 5 8 9 5 7 6 8 6 4 3 5 4 2 3 9 7 5 2 8 1 4 6 5 4 6 7 1 9 2 8 3 2 1 8 3 4 6 9 7 5 9 6 5 2 3 7 8 1 4 7 8 4 9 6 1 3 5 2 1 2 3 4 8 5 6 9 7 8 5 1 6 7 2 4 3 9 4 7 2 8 9 3 5 6 1 6 3 9 1 5 4 7 2 8 109 SU DOKU talnaþrautir

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.