blaðið - 11.11.2005, Blaðsíða 37
blaðið FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 2005
DAGSKRÁ I 37
Hanna er umsjónarmaður Vítt og breitt á Rás 1.
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það alveg ágætt.
Ég erekki að senda
útídag en ég erað
undirbúa daginná
morgun.
Hvenær byrjað-
irðu fyrst að vinna
í fjölmiðlum?
~y Ég byrjaði í dagskrár-
vinnuárið 1984 hjá
Ríkisútvarpinu og hef
verið þar síðan.
Langaði þig að verða útvarpskona þegar þú varst
lítill?
Nei, mér datt það aldrei í hug. Ég vildi verða búðar-
kona og hjúkka eins og margir en svo þróaðist það
þannig að ég fór að vinna í sumarafleysingum á
tónlistardeildinni að skrá plötur. Smám saman fékk
ég að prófa og byrjaði að leysa af í þættinum Lög
unga fólksins. Þannig byrjaði ég aðeins að vinna út-
varpsefni en svo byrjaði ég sumarið 1984 fyrir alvöru
og hef unnið við þetta síðan.
Hvernig finnst þér að vinna í útvarpi?
Ég kann mjög vel við það. Þetta er afskaplega
skemmtilegt starf og maður er alltaf að vinna verkefni
sem þurfa að vinnast hratt. Starfið er mjög fjölbreytt
og ég kynnist mikið af fólki í starfinu og les mig til um
alla mögulega hluti.
Er vinnan í útvarpi öðruvísi en þú hefðir búist við?
Ég var ekki búin að gera mér neinar sérstakar hug-
myndir um það en þegar ég byrjaði að vinna sem
afleysingastelpa og kynntist útvarpsfólkinu þá kom
mér helst á óvart hvað þau voru afslöppuð yfir útsend-
ingunum. Sérstaklega hér áður fyrr en þá var útvarpið
svolítið hátíðlegra út á við.
Manstu eftir einhverju neyðarlegu sem hefur
gerst fyrir þig í útsendingu?
Já það neyðarlegasta sem ég man eftir var þegar ég
var að byrja í útvarpi sumarið 1984 en þá vorum við
lllugi Jökulsson með morgunþátt. Ég hafði aldrei
ætlað mér að taka nein viðtöl eða neitt slíkt en eitt
sinn þrýsti lllugi mjög á mig og fékk mig í að stjórna
umræðum um listahátíð sem þá var. Þann daginn
hringdu inn mikið af hlustendum og allt fór í háaloft
því margir deildu um listahátíðina. Ég fæ hroll þegar
ég hugsa um útsendinguna.
Hvað er uppáhalds sjónvarpsefnið þitt?
Ég fylgist með fréttum og reyni að fylgjast með
umræðum í Kastljósi. Ég hef mjög gaman af vönd-
uðum fræðsluþáttum sem koma frá BBC og góðum
bíómyndum.
Hvaða stöð er uppáhalds útvarpsstöðin þín?
Rás 1 er mín aðal útvarpsstöð og ég hlusta töluvert á
Rás 2. Svo hlusta ég áTalstöðina þegar ég get.
Sjónvarpið, Sagan af Ernest Green,
kl. 20:40
Bandarísk fjölskyldumynd frá 1993
um baráttu blökkupilts sem geng-
ur í skóla með hvítum unglingum í
Little Rock í Arkansas.
Stöð 2, Idol - Stjörnuleit 3, kl.
20:40
Nú taka leikar að æsast í Idol-
Stjörnuleitinni. Áheyrnarprófum er
lokið og 111 einstaklingar hafa verið
valdirúr 1.600.
Hvernig lístþérá vetrardagskrána í sjónvarpi?
Ragnheiður Ásta
Jóhannsdóttir
Ég fylgist ekki mikið með
því. Ég hefallt ofmikið
að gera til að horfa á
sjónvarp.
Anna Gréta
Hrafnsdóttir
Ágætlega. Það eru
sérstaklega þættir á Skjá
einum og Stöð 2 sem
mérfinnastágætir.
Arnar Pálsson
Ég hefekkikynntmér
hana.
Valdís Gunnarsdóttir
Ég horfi aldrei á sjónvarp.
Jón Ingi Baldursson Davíð Guðnason
Ég er ekki farinn að kynna mér Ég horfi ekki mikið á
hana. sjónvarp en finnst hún
allt í lagi.
Skjár 1, Complete Savages, kl.
21:20
Savages-fjölskyldan er ekki hin
dæmigerða, heilbrigða fjölskylda,
enda eru líkurnar á því einn á móti
milljón þegar mottó heimilisföður-
ins er: „Þetta reddast allt“.
Noel Gallagher segir bresk-
ar hljómsveitir „indie skít"
Noel Gallagher sparar samlöndum
sínum ekki orðin í viðtali sem tek-
ið var við hann á ástralskri útvarps-
stöð. Hann segir böndin Kais-
er Chiefs, Franz Ferdinand
and Bloc Party „indie skít“
og að
ekkert
þeirra
stefni
sérlega
hátt en
vilji bara
vera litlar
eða miðl-
ungs hljóm-
sveitir. Hann
segist þó kunna vel við Franz Ferd-
inand og Kaiser Chiefs en segir Bloc
Party vera hræðilega grúppu. „Eng-
in þessara hljómsveita er að reyna
að „meika það“ og verða bestu
hljómsveitir í heimi. Þetta er bara
indie skitur." Hann talaði líka um
tónleikaferðalagi sem Oasis hefur
verið á með áströlsku hljómsveit-
inni Jet og sagði hann þá vera mjög
góða. „Bassaleikarinn fór heim með
skottið á milli lappanna af því að
hann var að reyna að drekka hljóm-
sveitina mína undir borðið.“ Oasis
er að hefja fjögurra daga ferð í Jap-
an en spilar svo á sex tónleikum í
Ástralíu.
Lemúr skírður í höíuðið á
John Cleese
John Cleese hefur orðið þess heið-
urs aðnjótandi að ákveðin tegund
lemúrs, eða refapa, sem nýlega var
uppgötvaður hefur verið skírður í
höfuðið á honum. Hinn litli loðni
Avahi Cleesei lifir á laufum og finnst
í Madagaskar, samkvæmt dagblað-
inu The Mirror. Nafnið er til komið
vegna vinnu Cleese og áhuga á frið-
un dýra, þar sem hann hefur meðal
annars gert heimildamynd um
loðna lemúra. Urs Thalmann frá
háskólanum í Zurich, sem uppgötv-
aði tegundina, segir að langir fætur
lemúrsins séu eina einkennið sem
dýrið og Monty Python-leikarinn, fræg, eigi sameiginlegt. Hún sagði: almennilega en þeir eru svo sannar-
sem gerði þar kjánaleg göngulög „Loðnir lemúrar geta ekki gengið lega góðir í að stökkva kjánalega.“
Útgáfutónleikar
Hjálma
1 kvöld verða útgáfutónleikar
Hjálma, sem haldnir eru í fiélags-
heimilinu á Flúðum, í beinni út-
sendingu á Rás 2. Sænsk-íslenska
reggí-hljómsveitin Hjálmar ætlar
að fagna útgáfu annarrar breið-
skífu sinnar Hjálmar sem kom út
21. október síðastliðinn.
Platan var einmitt hljóðrituð í
félagsheimilinu á Flúðum þannig
að segja má að tónleikarnir séu
haldnir á heimavelli. Það eru Flúða
Blaðið/Steinar
sveppir sem leggja Rás 2 lið við
þessa útsendingu.
Fyrsta plata Hjálma, Hljóðlega
Af Stað, kom út í fyrra og hefur
selst í næstum 6.000 eintökum.
Rúnar Júlíusson útgefandi og eig-
andi Geimsteins-útgáfunnar mun
afhenda Hjálmum gullplötur fyrir
plötuna á tónleikunum og auðvitað
i beinni á Rás 2. Miðasala er í versl-
unum Skífunnar og BT um allt land
og á midi.is.
Rebecca er kaupóSur lygalaupur sem heillar lesendur meS
meinfyndnum uppótækjum og dagdraumum sem ná
ekki nokkurri átt... eSa hvaS?
I / ■
Salka ArmúI.T 20 • sími 552 1122 • \v\v\v.sálkaforJa'fi.is
Hefurðu keypt þér
eitthvað sætt nýlega?