blaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 8

blaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 8
8 I ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 biaöiö Frakkland Lögreglulið í viðbragðs- stöðu Sjóræningjaplága við Sómalíu Ekkert lát á sjóránum við Sómalíu. Talið er að um 100 manns séu í gíslingu vel vopnaðra sjórœningja Lögreglumenn í Frakklandi eru nú í viðbragðsstöðu vegna ótta við að óeirðir blossi upp á ný yfir helgina. Ólga meðal fátækra innflytjenda í úthverfum Parísar hefur farið dvínandi frá því um síðustu helgi en yfirvöld í Frakklandi óttast að hún muni vaxa á ný. Gripið hefur verið til margra öryggisráðstafana til að draga úr hættunni og t.a.m. hafa lögregluyfirvöld í París sett blátt bann við að fólk kaupi sér bensín á brúsum. Það er ekki af ástæðulausu að gripið er til þessara aðgerða þar sem á undanförnum dögum hafa ótal skilaboð, þar sem hvatt er til ofbeldisverka, verið að ganga um á heimasíðum sem og milli farsíma. Þá hafa fjölmargir einstaklingar verið handteknir með bensínsprengjur í fórum sfnum undanfarna daga. Sjórán úti fyrir ströndum Sómalfu héldu áfram í vikunni en um síðustu helgi komst skemmtiferðaskipið Sea- bourn Spirit naumlega undan árás sjóræningja. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hefur nú hvatt ríki í þessum heimshluta til að grípa til að- gerða til að koma f veg fyrir frekari rán. Um 32 árásir hafa verið skráðar síðan í mars og m.a. hefur verið gerð tilraun til að ræna flutningaskipum á vegum SÞ sem voru að flytja mat- væli og hjálpargögn. 100 manns í gíslingu Fimm skip urðu fýrir árás í vik- unni en fjögur þeirra komust naumlega undan eftir æsilegan elt- ingarleik. Skipið sem féll sjóræningj- unum í skaut er það níunda á aðeins nokkrum mánuðum og talið er að FRJÁLSl ij 1*1 f?!*] [»n íslenskt Skemmtiferöaskipið Seabourn Spirit í Port Victoria eftir að hafa komist naum- lega undan sjóræningjum. þeir haldi nú yfir 100 manns í gísl- ingu. Hin fönguðu skip eru skráð í Tælandi, Taívan, Möltu og Úkraníu. Að sögn yfirvalda í Kenía, nágranna- ríkis Sómalíu, ríkir nánast skálmöld innan landhelgi Sómalíu og fleiri og fleiri stríðsherrar þar í landi horfa AUSTFtALIA TORTURING Mótmæli gegn ullariðnaði til sjórána sem leið til að fjármagna stríðsrekstur sinn. Dularfullt móðurskip Augu heimsins beindust að þessu hafsvæði í sfðustu viku þegar sjó- ræningjar gerðu tilraun til að kló- festa skemmtiferðaskipið Seabourn Spirit en um borð í þvf voru um 150 vestrænir ferðamenn. Skipstjórinn komst þá naumlega undan með því að breyta um stefnu. Sjóræningjarn- ir nota hraðbáta og eru vopnaðir vél- byssum og flugskeytum og gera út frá móðurskipi sem aðeins örsjaldan hefur sést. Sfðast sást til þess þegar árásin á Seabourn Spirit átti sér stað. Yfirvöld í Kenía leita nú logandi ljósi að þessu móðurskipi og telja að ef þeir nái að koma höndum yfir það muni draga verulega úr sjóránum. þvottaefni fyrir allan þvott Dýraverndunarsinnar í Ástralíu mót- mæltu í gær áströlskum ullariðnaði. Konan á myndinni hefur málað ástralska þjóðfánann á líkama sinn og er útötuð í gerviblóði til að undirstrika kröfu sina um betri meðferð á dýrum. Hin árlega götuhátíð í Köln i Þýskalandi var haldin i gær. Konan á myndinni lét ekki sitt eftir liggja og skreyttist fagur- grænum lit enda býður hefðin upp á að fólk klæði sig upp í litríkum fötum og skreyti á sér andlitið. eiginleika íslenska vatnsins. • Þvær við lægra hitastig og inniheldur lífhvata sem vinna fljótt og vel á hvers kyns óhreinindum. • Ber Hvíta svaninn, Norræna umhverfismerkið. p3iöllfrigq Dreifing: BéBé Vöruhús ehf Sími512-3000 hreinlega sterkari Heimsferðum er það sönn ánægja að bjóða eitt glæsilegasta skíðasvæði Austurríkis, Flachau, í hjarta Ski-amadé svæðisins í Salsburg-hérðaði. Þaðan Iiggja leiðir inn á eitt stærsta skíðasvæði Austurríkis, sem er snjóöruggt með góðum brekkum af öllu tagi og net af afbragðslyftum tryggir skíðamönnum það besta sem völ er á. Með einum skíðapassa er hægt að ferðast á milli 5 svæða með 25 þorpum, 865 km. af brekkum og 276 lyftum af öllu tagi. Brettafólk er velkomið á öllu svæðinu og þar er 1,5 km löng flóðlýst brekka, . brettaskemmtigarður og þjónusta við brettafólk. Heimsferðir bjóða einnig | skíðaferðir til eins vinsælasta skíðabæjar í í austurrísku ölpunum, Zell am See. f " boði eru gistiheimili og góð þriggja og 5 fjögurra stjörnu hótel í hjarta Zell, rétt “ við skíðalyfturnar, veitingastaði, versl- anir og kvöldlífið. f Zell er afbragðs aðstaða fyrir alla skíðamenn. 56 lyftur eru á svæðinu og hægt er að velja um allar tegundir af brekkum, allt eftir getu hvers og eins og snjóbretti og göngu- skíði eru þar ekki undanskilin. Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavik, sími 595 1000 • Akureyri, sími 461 1099 Hafnarfjörður, sími 510 9500 • www.heimsferdir.is Mundu MasterCard feröadvísunina/Qt:4: Frá 39.990 kr. Flugsæti með sköttum. Netverð. Frá 66.390 kr. Flug, skattar og gisting, m.v. 2 í herbergi á gististað „án nafns", í Zell am 2æe/Schiittdorf, 4., 11. eða 18. feb., vikuferð með morgunmat. Heimsferðir Sjónvarpsstöð á esperanto f gær bættist við nýr afkimi á Internetinu þegar opnuð var sjónvarpsstöð sem sendir út þætti og annað efni á tungu- málinu esperanto. Það eru áhugamenn um þetta ágæta tungumál sem standa að baki stöðinni, en starfsmenn hennar eru í upphafi aðeins þrír. Esper- anto er tungumál sem pólski eðlisfræðingurinn Dr. Ludwig L. Zamenhof bjó til og birti árið 1887. Hann hafði þá hugsjón að leysa tungumálavanda heimsins með því að hanna tungumál sem væri einfaldara og auveldara að læra en önnur tungumál. Sú tilraun gekk þó vart eftir þvf ákaflega fáir leggja það á sig f dag að læra tungumál Ludwigs, reyndar svo fáir að fleiri tala tungu- málið klingonsku (tungumál sem kynþáttur í geimsápunni Star Trek talar) en esperanto. Fyrir þá sem vilja kynna sér málið er slóðin á hina nýju sjón- varpsstöð http://internacia. tv/. íran Frelsinu fegin Bresk hjón sem hafa verið í gæsluvarðhaldi í fran síðan í lok október var sleppt í gær. Hjónin voru handtekin fyrir að rjúfa ólöglega landhelgi Irans þegar þau voru á siglingu ná- lægt eynni Abu Musa en eyjan hefur verið bitbein frans og Sameinuðu arabísku furstadæ- manna um árabil. Bresk yfir- völd höfðu komist að samkomu- lagi við frani um að þeirn yrði sleppt sl. mánudag og virtist það samkomulag ætla standa þangað til hjónin voru skyndi- lega handtekin á ný í Teheran þar sem þau voru að stíga um borð í flugvél á leið heim. Að sögn breskra yfirvalda líður hjónunum vel effir atvikum en ljóst þykir að þau hafi þurft að þola andlegar pyntingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.