blaðið - 12.11.2005, Blaðsíða 36
36 I TÓNLIST
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 blaöið
Nýr safndiskur með meistara Johnny Cash
Spannar 50
ára feril
Erfið ár
Það var svo árið 1955 sem Johnny
náði athygli tónlistarútgefenda og
fljótlega i kjölfarið gaf hann út sitt
fyrsta lag ásamt tveimur félögum
sínum í hljómsveit sem bar nafnið
Johnny Cash and the Tennessee
Two. Lagið bar nafnið Cry, Cry, Cry
og náði nokkrum vinsældum. Árið
1956 náði lagið I Walk the Line með
þeim félögum miklum vinsældum
og eftir það var ekki aftur snúið.
Félagarnir þrír héldu áfram að gefa
út tónlist með góðum árangri allt
til ársins 1958 þegar W.S. Holland,
trommuleikari, slóst í hópinn.
Þrátt fyrir velgengni í tónlistinni
var persónulífið ekkert allt of gott
hjá Johnny. Hann skildi við konu
sína árið 1961 og hóf neyslu fíkni-
efna í kjölfar mikils álags á tónleika-
ferðalögum hans um þessar mundir.
Eftir að hafa fundist nær dauða en
lífi i smábæ í Georgíu árið 1967 náði
Cash hins vegar að rétta úr kútnum.
Til að gera langa sögu stutta bjó
hann til sína frábæru tónlist allt þar
til hann lést þann 12. september árið
2003.
Lagalisti: Ring Of Fire: The
Legend Of Johnny Cash
[01] RingOfFire
[02] IWalkThe Line
[03] Jackson
[04] Folsom Prison Blues
[05] A Boy Named Sue (Live)
[06] Big River
[07] Get Rhythm
[08] Cry Cry Cry
[09] Hey Porter
[10] AThing Called Love
[11] GuessThingsHappenThatWay
[12] San Quentin (Livej
[13] TheMan In Black
[14] The Highwayman
[15] TheWanderer
[16] l've Been Everywhere
[17] RustyCage
[18] Personal Jesus
[19] Give My Love To Rose
[20] One
[21] Hurt
Safnplatan Johnny Cash - ring of
fire: The legend of Johnny Cash
kemur út á mánudaginn. Á diskn-
um er að finna 21 lag sem spanna
allan tónlistarferil meistarans sem
stóð frá árinu 1995 til 2003. Meðal
laga á disknum eru þekktasta lag
hans frá upphafi, A Boy Named
Sue sem kom út árið 1969 og Man
in Black sem Johnny gerði árið 1971,
en nafnið á laginu hefur verið viður-
nefni hans síðan.
Lífshlaup
Johnny Cash fæddist inn í fátæka fjöl-
skyldu í Arkansas í febrúar árið 1932.
Þar bjó hann til þriggja ára aldurs
þegar fjölskyldan flutti sig til, reynd-
ar innan Arkansasfylkis, í von um
betri tíð og einnig betri tekjur. Þar
hóf fjölskyldan búskap sem Johnny
vann við um leið og hann hafði ald-
ur til. Hugur hans var þó ekki við
búskapinn heldur við tónlistina sem
átti hug hans allan frá unga aldri.
Hann var aðeins 12 ára gamall þegar
hann orti sitt fyrsta lag. Lagið bland-
aði saman þeirri sveita- og blústón-
list sem Johnny var alinn upp við. I
júlí árið 1950 skráði hann sig i flug-
herinn. Stuttu áður en hann hóf
feril sinn í hernum hitti hann hina
sautján ára gömlu Vivian Liberto og
skrifuðust þau á meðan Johnny var
í hernum og í framhaldnu giftu þau
sig, nánar tiltekið í ágúst árið 1954.
Frábær mynd með ógleymanlegum persónum
fyrir alla fjölskylduna. Fullur diskur af aukaefni.
TRYGGÐU ÞÉR EINTAK STRAX í DAG!
SAM MYNDIR