blaðið - 12.11.2005, Side 48
48 I AFÞREYING
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 2005 Maðiö
■ Skemmtigarður á íslandi
Nýrnahettur
í yfirvinnu
Adrenalín myndast í nýrna-
hettunum sem veldur auknu
blóðflæöi til vöðva, aukinni
hjartavirkni, hækkuðum
blóðþrýstingi og aukinni los-
un glúkósa í blóðið. Þaö má
með sanni segja að Adrena-
língarðurinn við Nesjavelli
standi vel undir nafni.
Garðurinn hóf starfsemi í júlí síðasta sum-
ar og hefur hróður hans verið að berast
út síðan þá. Boðið er upp á dagskrá fyrir
hópa, allt frá fimm manns upp í u.þ.b. eitt
hundrað. Aðaláherslan hefur verið lögð á
fyrirtækjahópa þótt eitthvað sé um að vina-
hópar taki sig saman og eyði einum degi í
faðmi náttúrunnar með taugarnar þandar.
Hópar geta valið um þrjár mismunandi
dagskrár þótt ein þeirra sé aðallega ætluð
fyrirtækjum í hópefli. Annars vegar er
hægt að velja um að klífa klifurvegg og sigr-
ast á ótta sínum með því að klífa frístand-
andi trjádrumb og hoppa svo fram af. Síð-
ast en ekki síst fá allir að róla sér í stærstu
rólu landsins sem hefur hið frumlega nafn
risarólan. Sé fólk ekki búið að fá nóg eftir
þetta er hægt að velja Háloftabrautina að
auki en þar er aldurstakmarkið 14 ár og
hæð þátttakenda má ekki vera undir 150
cm. I háloftabrautinni fá þátttakendur að
þræða hinar ýmsu þrautir í rúmlega 10
metra hæð en það er á við þriggja hæða
blokk.
” Nánari upplýsingar um garðinn má finna
r. á www.adrenalin.is.
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
- -..
• s
um ramma
'1
Saga Sigríðar Þorvaldsdóttur leikkonu
l yijíííutti ramma
0&0
Sat/a
Sit/ruhv
'(iltl'llr'l (u
(i 'tkkoHH
r‘f%.
^ j&z
:
Skemmtileg bók um bjartsýna og jákvæða konu
sem hefur sannarlega þurft á þeim eiginleikum að halda í lífinu.
2. sæti á metsölulista* - og þó nýkomin í verslanir.
*Mál og menning, Eymundsson, Penninn - Ævisögur - Sala 2.-8. 11 2005
Tivoli á íslandi
Adrenalíngarðurinn er í tæplega
klukkutíma fjarlægð frá höfuð-
borgarsvæðinu sem er gífurlega
þægilegt. Úr fjarlægð mætti halda
að einhver rugludallur hafi ákveðið
að reyna að komast í heimsmetabók
Guinness með þvi að gera heimsins
stærstu trönur þar sem Adrenalín-
garðurinn er en þegar nær dregur
sér maður að mun meira er í staðinn
spunnið. Strax í upphafi er manni
gert ljóst að hér skal hópurinn vinna
saman og öryggið er fyrir öllu. Fyr-
ir þá sem hafa ekkert mjög gaman
af miklum hæðum er þetta mjög
traustvekjandi.
Stokkið í algleymið
Til að byrja með er klifurveggurinn
tæklaður, hann er með þremur mis-
erfiðum brautum þannig að flestir
eiga góða möguleika á að komast
upp. Það verður að viðurkennast að
erfiðari klifurveggir eru til en þetta
er þó ágætis upphitun og prýðilegt
fyrir lofthrædda. Þrátt fyrir að ein-
ungis fáir í hópnum geti klifið í einu
er passað upp á að enginn sitji auð-
um höndum á meðan. Þeir sem ekki
eru í loftinu eru uppteknir við að
tryggja að ekkert komi fyrir hina á
meðan með því að halda í líflínuna.
Næsta stopp er staurinn, lóðrétt-
ur trjádrumbur. Markmiðið þar er
að klifra upp hann allan, standa
svo uppi á toppnum, snúa sér í hálf-
hring og fara með stöku rétt áður en
maður stekkur fram af og vonar það
besta. Þetta hljómar nógu einfalt
en það er merkilegt hversu erfiðar
hversdagslegar aðgerðir eins og að
tala verða þegar maður stendur níu
metra uppi í loftinu og undirstað-
an neitar að vera kyrr. Hópurinn
okkar náði allur að klára verkefnið
en samkvæmt Óskari leiðbeinanda
heyrir það til undantekninga. Þetta
sannaðist þegar næsti hópur kom
og fyrsti maður fraus áður en hann
kom á toppinn, það þótti okkur kvik-
indislega skemmtilegt.
Þriðji hluti var Risarólan, allur
hópurinn sameinast um að toga
einn upp þar sem það er undir rólu-
manninum sjálfum að toga í spotta
og fara þar með í stærstu rólu sem
ég hef séð. Tilfinningin á leiðinni
niður er óþægilega skemmtileg þar
sem adrenalínið spýtist út í blóðið.
Háloftabrautin
Eftir róluna er ekki nokkur leið að
hætta leiknum svo ákveðið var að
skoða háloftabrautina. Þá tók við
ræða um öryggisatriði og hvernig
þau ættu að vera í lagi þegar upp
í tíu metrana var komið. Eftir á
að hyggja var þetta sennilega það
mikilvægasta sem við heyrðum all-
an daginn því án þessa hefði getað
farið illa. Það er nefnilega þannig að
í Háloftabrautinni er maður á eigin
vegum þótt maður hafi reyndar allt-
af einn til tvo félaga með sér í liði.
Maður sér sjálfur um að festa sig í ör-
yggisfestingar en gerir það þó aldrei
án samþykkis félagans.
Háloftabrautin opnar nýjan heim
fyrir þeim sem prófa hana. Það er
ótrúleg tilfinning að standa hátt
fyrir ofan mölina og taka ákvörðun
um að leggja af stað yfir kaðalbrú
án þess að hafa nokkuð sér til stuðn-
ings. Fyrst um sinn er maður skít-
hræddur en undir lokin vill maður
helst ekki fara heim, rétt eins og i
afmælum þegar maður var lítill.
Adrenalíngarðurinn er ekki ódýr
skemmtun, kostar annað hvort 4.900
eða 6.900 krónur á mann eftir því
hvað maður velur. Það er þess vegna
sem flestir ættu að vona að yfir-
maður þeirra ákveði að fara með fyr-
irtækið þangað á starfsmannadegi.
Fyrir aðra er þó tvímælalaust hægt
að mæla með því að sleppa einni bíó-
ferð, borða heima í viku og sleppa
áfengisdrykkju og nota peningana
svo frekar í adrenalínferð. Útiveran
gerir manni ekkert annað en gott
auk þess sem maður kemur endur-
nærður heim eftir krefjandi dag.
agnar. burgess@vbl. is
Ti
Remington 870 Express Magnum
pumpa
kr. 36,900.-
Byssuskápar
6-10 byssur, læst innrahólf,tvöföld læsing
kr. 27,900,-
Byssuskápar
8-13 byssurjæst innrahólf,tvöföld læsing,
Verð kr. 36,900,-
Ný sending af Benelli hálfsjálvirkum
og pumpum,einnig glæsilegar
í
\A
U
1
w
Bettinsoli tvíhleypur.
Vesturröst
Serverilun veiðl mannílnj
Laugavoai 178-10$ Royfcjavik
Utnur 551 «770 & 553 3380 Fm 581 3751