blaðið - 15.11.2005, Síða 11
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005
ERLENDAR FRÉTTIR I 11
Grænfriðungar vekja athygli á hlýnun jarðar:
Kolum sturtað í Downingstræti
Umhverfisverndarsamtökin Green-
peace létu í gær sturta mörgum
tonnum af kolum við Downing-
stræti ro í London og lokaði þar með
þremur aðkomuleiðum að aðsetri
forsætisráðherra Bretlands.
Grænfriðungar telja að Tony Blair,
forsætisráðherra landsins, hafi ekki
gert nóg í baráttunni gegn hlýnun
jarðar og ekki staðið við skuldbind-
ingar um að uppfylla ákvæði Kyoto-
bókunarinnar um að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. Vörubíll
sturtaði kolunum á götuna en ann-
ar vörubíll sem einnig var hlaðinn
kolum var stöðvaður af lögreglu áð-
ur en bílstjóranum tókst að losa sig
við farminn. ■
Kolabingur framan við Downingstræti 10 í gær.
Taka ekki
sæti á þingi
Félagar í flokki George Weah, for-
setaframbjóðanda og knattspyrnu-
hetju, hafa hótað því að þeir muni
ekki taka sæti á þingi Líberíu sem
þeir unnu í síðasta mánuði til að
mótmæla úrslitum seinni umferðar
forsetakosninganna sem fram fóru
þann 8. nóvember. Þeir telja að kom-
ið hafi verið í veg fyrir kosningasig-
ur Weah með svindli. Ellen Johnson-
Sirleaf vann afgerandi sigur á Weah
í kosningunum. Alþjóðlegir eftirlits-
menn segja kosningarnar almennt
hafa farið vel fram og leiðtogar í
Afríku lýst yfir ánægju sinni með að
þær skuli hafa verið frjálsar og rétt-
látar. Búist er við að endanleg úrslit
þeirra verði tilkynnt í lok vikunnar.
Þrír farast
í Kabúl
Þýskur friðargæsluliði og
tveir óbreyttir borgarar létu
lífið í tveimur bílsprengjum
uppreisnarmanna talibana í
Kabúl, höfuðborg Afganistans, í
gær. í báðum tilfellum var um
sjálfsmorðsárásir að ræða. Alls
hafa 18 Þjóðverjar farist við
friðargæslustörf í landinu. Peter
Struck, varnarmálaráðherra
Þýskalands, sagði að árásin
væri staðfesting á því að ástand-
ið væri enn ótryggt, jafnvel í
höfuðborginni og því væri enn
full ástæða til að hafa áfram
alþjóðlegar hersveitir í landinu.
Samskipti Mexíkó
og Venesúela stirð
Stjórnvöld í Mexíkó hótuðu að kalla
heim sendiherra sinn í Venesúela
á sunnudaginn eftir að Hugo Cha-
vez, forseti Venesúela, réðst með
skömmum og svívirðingum á Vi-
cente Fox, starfsbróður sinn í Mexí-
kó. Spenna hefur aukist mjög á milli
ríkjanna að undanförnu. Fyrir fáein-
um dögum sakaði Chavez, Fox um
að vera kjölturakki bandarískrar
heimsvaldastefnu fyrir stuðning
hans við stefnu bandarískra stjórn-
valda á fundi Ameríkuríkja í Arg-
entínu. í sjónvarpsávarpi á sunnu-
dag jós Chavez fleiri svívirðingum
yfir Fox. Framganga forsetans kom
yfirvöldum í Mexíkó í opna skjöldu
enda höfðu utanríkisráðherrar land-
anna tveggja fallist á að reyna að
gera út um þann ágreining sem upp
kom á fundinum. fkjölfar sjónvarps-
ávarpsins hótaði ríkisstjórn Mexíkó
að kalla heim sendiherra sinn í Ve-
nesúela og draga verulega úr sam-
skiptum þjóðanna nema formleg
afsökun kæmi frá stjórnvöldum í
Venesúela. ■
Hugo Chavez, forseti Venesúela, réðst
harkalega á Vicente Fox, forseta Mexíkó, í
sjónvarpsávarpi um helgina.