blaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 13

blaðið - 15.11.2005, Blaðsíða 13
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2005 NEYTENDUR I 13 Kaupendur ættu að kynna sér reglur um skil á vörum Kristín Einarsdóttir hjá Neytenda- samtökunum segir að fólk sé mikið að kvarta yfir verði á matvöru og segir hana hafa hækkað nokkuð á síðustu mánuðum. Þá segir Kristín mikið um að fólk, sem hefur verið að skoða vörur erlendis, segi verð á prenturum og tölvuleikjum mun hærra hér heldur en t.d. í Danmörku. Pantaðar brúðkaupsgjafir geta verið ófá- anlegarílangantíma „Við búum við frjálsa álagningu og því er það samkeppnin sem ræður,“ segir Kristín og segist hafa grun um að samráð um verðlag sé viðhaft á mörgum stöðum en að erfitt sé að hafa eftirlit með því. Sesselja Árnadóttir hjá Neytenda- samtökunum segir hert eftirlit með skilum á bókum eftir að matvöru- verslanir fóru að selja þær. „Þá krefj- ast matvöruverslanir þess að fólk kaupi bækur í stað bóka ef þeim er skilað, þ.a. fólk getur ekki verslað matvöru fyrir bækurnar," segir Sess- elja. Hún segir að eftir jólin undan- farin ár hafi fólk þurft að skila vöru fyrr þar sem útsölur byrja nú fyrr en áður. „Fólk ætti að passa sig á að fá jólagjafamiða á vörurnar sem það ætlar að kaupa til að tryggja að það fái sama verð fyrir hana verði henni skilað,“ segir Sesselja. Hún segir mjög lítið um að verslanir endurgreiði vörur sé þeim skilað en segir þó undantekningar á því og tekur sem dæmi verslunina Duka í Kringlunni og Adams í Smáralind en þar er viðskiptavinum greitt út í hönd ef þeir skila vörum. „Erlendis er þó nokkuð um það að fólk geti fengið greitt í peningum skili það vöru,“ segir Sesselja. Hún segir nokk- urs misskilnings gæta með þetta hér og margir standi í þeirri meiningu að þeir fái endurgreitt við vöruskil. „Þá getur verið bagalegt að geta ekki verslað á útsölu fyrir þá vöru sem er skilað því útsölur eða tilboð af einhverju tagi eru svo stóran hluta ársins," segir Sesselja og bætir við að þetta sé dæmi um þrönga við- skiptahætti. Sesselja nefnir IKEA sem dæmi um verslun þar sem útsala byrjar fyrsta virka dag eftir jól og veit dæmi þess að fólk hefur ekki getað skilað vörum sem voru keyptar fyrir jól nema fá útsöluverð fyrir hana. Mikilvægt er að fólk kynni sér skilmála í verslunumefþað skildi þurfa að skila vöru eftirjólin Matvörur í lágvöruversl- unum hafa hækkað Sesselja segir fólk kvarta yfir að matvara í lágvöruverslunum hafi hækkað á undanförnum mánuð- um. „Fyrir jólin eru allar vörur á háu verði,“ segir Sesselja og nefnir sem dæmi allan fatnað og gjafavör- ur. Hún brýnir fyrir fólki að kynna sér vel reglur um skilafrest á vörum og hvort fólk fái endurgreitt í pening- um eða þurfi að versla í staðinn. „Ég veit dæmi þess að eiginmenn eru að kaupa dýrar gjafir handa konum sínum, t.d. kjóla eða skart- gripi sem síðan þarf að skila og þá er kannski ekkert í búðinni sem eigin- konan kærir sig um,“ segir Sesselja. Hún segir það geta verið erfitt að nota inneignarnótur fyrir svo háar upphæðir í búðum sem fólk er ekki að versla í daglega. Sesselja minnist á brúðkaupslista þar sem fólk óskar eftir vörum úr ákveðinni verslun. „Það kemur fyrir að brúðhjónum er sagt að varan sem það óskar eftir sé væntanleg en síð- an er hún ókomin þegar brúðkaups- gestir ætla að fara að kaupa gjöfina," segir Sesselja. Hún segir þetta geta orðið til þess að fólk sitji uppi með inneignarnótu en enga vöru í langan tíma. Sesselja segir að í þessum tilfellum sé mikil- vægt að til séu skilmálar um að fólk fái endurgreitt sé varan ekki komin innan ákveðins tíma. „Það er brýnt að fólk kynni sér rétt sinn í hvert sinn sem það kaupir vöru, sérstak- lega ef það er gjafavara sem þarf hugsanlega að skila," segir Sesselja. Hún segir að það séu ekki einungis viðskiptavinir sem komi og fái ráð heldur einnig kaupmenn. Sesselja segir Neytendasamtökin vera báð- um megin við borðið og leitast við að ráðleggja fólki hvort sem það er að kaupa eða selja vörur. hugrun.sigurjonsdottir@vbl. is Dýrar vörur s.s. kjólar og skartgripir eru dæmi um gjafir sem erfitt getur verið að skipta í eitthvað annað fái fólk ekki endurgreitt. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sfmi 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | Brimborg Reykjanesbæ: Njarðarbraut 3, sími 422 7500 | www.volvo.is VOLVO for life Öll erum uið einstök, hvert og eitt okkar. Enginn á sinn líkan. Fyrir okkur ert þú miðja alheimsins. Þegarþú ert annars vegar er takmark okkar hara eitt: að uppjylla óskir þinar og þarfir á þann hátt að þú lítir á Brimborg sem öruggan stað til að vera á. Við erum með þér alla leiðl { • brimborg Öruggur stadur til að vora á

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.