blaðið - 23.11.2005, Blaðsíða 12
12 I FERÐALÖG
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ
íslendingar herja á
Austur-Evrópu
Boðið upp á beintflug til Búlgaríu
apss^ss^lWí
í' Iflít '2: ÍS®5®«
*m mm mm * ■ WÍ
Golden Sands strandleggjan er stórglæsileg.
Búlgaría er að verða einn af
mest vaxandi ferðamanna-
stöðum í Evrópu, enda er
þar að finna skemmtilega blöndu af
nútímaþægindum vestursins og blæ-
brigða gömlu austurblokkarinnar.
Ferðaskrifstofan Terra Nova til-
kynnti um síðustu helgi að hún ætl-
aði, fyrst íslenskra ferðaskrifstofa,
að bjóða upp á beint flug til þangað.
Gífurlega góð viðbrögð
Flogið verður til Golden Sands, sem
samkvæmt fréttatilkynningu ferða-
skrifstofunnar býður upp á allt sem
góður sumarleyfisstaður á að bjóða
upp á: langar sandstrendur við krist-
altært Svartahafið, fjölbreytt útval í
afþreyingu og sportiðkun og að sjálf-
sögðu fjörugt næturlíf.
Björn Hrafn Ingólfsson, markaðs-
stjóri Terra Nova, segir að ástæða
þess að þeir eru að hefja beint flug
á þennan áfangastað sé fyrst og
fremst sú að verið sé að bjóða íslend-
ingum upp á nýjungar. „Búlgaría
er frábær áfangastaður þannig að
við erum einfaldlega að fara inn
á þennan markað út af því,“ segir
Björn og bætir við að verðlag í Búlg-
aríu sé ótrúlega hagstætt og mun
ódýrara en víðast hvar í Evrópu. Því
er allt uppihald og almennur rekstur
mun hófsamari og það ætti að vera
hægt að lifa sem kóngur í mat og
drykk á meðan á dvölinni stendur
án þess að sitja uppi með risavaxinn
krítarkortareikning þegar að heim
er komið. Auk þess sem verðlagið
gerir það vitaskuld handhægara að
ferðast um landið ef fólk er þannig
þenkjandi. Sala ferðanna hófst á
sunnudaginn síðasta og seldust þá
yfir 300 sæti sem var langt fram úr
björtustu vonum söluaðilans. Við-
brögðin benda því til þess að þetta sé
valmöguleiki sem Islendingum líkar
vel við. Samkvæmt Bjarna þá kostar
svona pakki, ef flogið er út fyrsta
júni og dvalið í íbúð, um 39.995 kr. á
mann ef miðað er við fjölskyldu, tvo
fullorðna og tvö börn.
Ekkert útilokað í framtíðinni
Þegar Bjarni er spurður hvort það
sé á dagskrá ferðaskrifstofunnar
að bjóða uppá fleiri áfangastaði í
Austur-Evrópu segir hann að enn
sem komið er sé ekkert slikt fyrir-
liggjandi. „Það er ekkert sem við
ætlum að ýta úr vör núna. 1 framtíð-
inni er þó ekkert útilokað." Bjarni
segir þó að Terra Nova hafi nýverið
sett á markað sérferðaráætlun sína
fyrir næsta sumar, en sérferðirnar
eru skipulagðar hópferðir með 20-
40 manna hópa þar sem skoðaðir
eru ákveðnir áfangastaðir undir
leiðsögn fagmanna með þekkingu á
aðstæðum. „ Við ætlum til dæmis í
tengslum við þetta Búlgaríuflug að
bjóða upp á sérferðir til Búlgaríu
og Tyrkland og Búlgaríu og Grikk-
land sem eru alveg sérstaklega
spennandi ferðir. Svo erum við með
ferðir um Norður-Spán, þar sem
pílagrímaleiðin til Santiago De Com-
postella er farin. Auk þess erum við
með skútusiglingu um Adríahafið,“
en strandlengjan þar og hafið sjálft
þykir eitthvað það fallegasta sem
fyrir finnst við Miðjarðarhafið. í
þessum ferðum er siglt um á skútu í
viku og svo er seinni vikan notuð til
að skoða staði í Slóveníu og Króatíu.
Það er því ýmislegt spennandi í boði
hjá Terra Nova um þessar mundir.
Skíðaferðir á komandi
vetri
Ferðir erlendis
íslendingar hafa þurft að fara
erlendis til þess að svala skíða-
fíkn sinni á fullnægjandi hátt
á undaförnum misserum enda
viðvarandi snjóleysi verið á Is-
landi síðustu ár. I ár er boðið
upp á fjöldan allan af slíkum
ferðum að venju. Úrval Útsýn
býður til dæmis upp á fjöl-
breyttar skíðaferðir í vetur.
Þar ber helst að nefna nýjung
í þeirra þjónustu þar sem að
nú gefst tækifæri á beinu leigu-
flugi til Aspen og Vail í Color-
ado í Bandaríkjunum til að
sinna skíðafíkninni við kjörað-
stæðuríKlettafjöllunum. Farið
verður 26. febrúar og stoppað í
9 nætur. Áfram verður haldið
að bjóða upp á ferðir til itölsku
alpanna sem hafa verið vinsæl-
ustu áfangastaðir ferðaskrif-
stofunnar til fjölda ára. Þar
eru fyrsta flokks skíðastaðir
með brekkum við allra hæfi.
Þá verður áfram flogið með
skíðaáhugamenn til frægustu
skíðastaða Evrópu í austur-
rísku ölpunum enda eru afar
góð skilyrði til skiðaiðkunnar
í Austurríki hvað varðar lands-
lag og veðurskilyrði.
Líka hægt að
skíða á Islandi
Ekki er þó nauðsynlegt að ferð-
ast til útlanda til þess að kom-
ast í góða skíðaferð enda virðist
svo vera að snjórinn sé að snúa
aftur í skíðabrekkur íslend-
inga að einhverju leyti. I HHð-
arfjalli er til' að mynda fyrir-
mynda skíðasvæði rétt við
bæjardyr Akureyrarbæjar. Þar
hefur verið opið að undaförnu
og fýrsta snjóvélin var ræst
þar í síðustu viku. Samkvæmt
heimasíðu skíðasvæðisins á
hún að skila af sér „nýföllnum
jólasnjó" sem hlýtur að hljóma
vel í eyrum skíðaáhugamanna.
Þá kemur einnig fram að stefnt
sé að því að taka fleiri slíkar í
gagnið á næstu dögum þegar
fer að frysta meira. Skíða-
svæðin á suðvesturhorninu
eru þó enn sem komið er lokuð
vegna snjóleysis.
Er vegabréfið þitt i iagi?
Þegar fólk er að leggja út í ferða-
lög milli landa þá er nauðsynlegt
að vegabréfamál séu á hreinu.
Það er enda fátt verra en að leggja
upp í Iangferð og stranda á því
að vegabréfið þitt er annað hvort
útrunnið eða uppfyllir ekki þær
kröfur sem að Iandið sem heim-
sótt er gerir.
Muna að endurnýja tímanlega
Það fer reyndar eftir því hvert við-
komandi er að fara hvort hann þurfi
vegabréf yfir höfuð. Ef ferðast er
innan gamla norræna vegabréfasam-
bandsins þá er í raun alveg ónauð-
synlegt að hafa í höndum vegabréf
eða önnur þar til gerð ferðaskilríki.
Þetta á við ef verið er að fara til
Danmerkur, Finnlands, Noregs eða
Svíþjóðar. Þó er vert að hafa í huga
að mikilvægt er að taka með sér ein-
hvers konar persónuskilríki. Þegar
ferðast er til annarra landa en ofan-
greindra þá verður hins vegar að
vera með vegabréfið I lagi og eru þar
ýmsir þættir sem vert er að taka til-
lit til.
Vegabréf þeirra sem eru yngri
en 18 ára gilda til fimm ára í senn
en þeirra eldri helmingi lengur, eða
í 10 ár. Oft er það svo að fólk áttar
sig ekki almennilega á því hvenær
það á að endurnýja vegabréfin. Því
er nauðsynlegt að hafa það I huga
að Útlendingastofnun, umsjónar-
aðili vegabréfaútgáfu, áskilur sér
rétt til þess að taka sér 10 virka daga
til að afgreiða vegabréfin. Þá fer verð
vegabréfanna eftir aldri umsækj-
anda en vegabréf barna og eldri borg-
ara kosta 1.900 kr. og annarra 5.100
kr. Það er því ljóst að til að vera alveg
öruggur þá ættu væntanlegir ferða-
langar að sækja um endurnýjun í
síðasta lagi tveimur vikum fyrir
áætlaða brottför. Vissulega er hægt
að fá vegabréf afgreidd með styttri
afgreiðslufresti, meira að segja sam-
dægurs, en fólk ber að hafa það í
huga að slík afgreiðsla kostar tvöfalt
meira en venjuleg afgreiðsla og því
skarð fyrir skildi í fjárhagslegum
skilningi ef gleymist að endurnýja
tímanlega.
Ekki sömu reglur í gildi um
ferðir til Bandaríkjanna
Þeir sem hyggjast ferðast til
Bandaríkjanna eru hvattir sérstak-
lega til þess að vera meðvitaðir um
að síðastliðið sumar tók gildi ný
reglugerð sem krefst þess að allir
tæir sem ætla að ferðast þangað frá
slandi verði annað hvort að bera
tölvulesanleg vegabréf eða fá þar
til gerða áritun i bandarísku sendi-
ráði. Öll íslensk vegabréf sem gefin
eru út eftir 1. júní 1999 eru tölvules-
anleg og því eru það sér í lagi þeir
sem eru með eldri vegabréf en það
sem þurfa að veita þessu sérstaka
athygli. Samkvæmt upplýsingum
frá bandaríska sendiráðinu á Islandi
þá þurfa þeir sem þarfnast slíkrar
áritunar að bóka viðtal á heimasíðu
sendiráðsins, www.usa.is, áður en
að áritunin er veitt. Ef að allt gengur
vel og engin vandamál eru til staðar
þá er það oftast þannig að gengið er
frá árituninni samdægurs eða í síð-
asta lagi næsta dag eftir hádegi. Þó
ber að hafa það í huga að það kostar
100 dali að fá áritunina og er
hægt að inna greiðsluna af hendi í
íslenskri mynt eða með dölum eftir
því sem hentar ferðalanginum best.
t.juliusson@vbl.is
Göguskíða-
ferðir
Gönguskíðaáhugamenn eru þó
ekki undaskildir framboðinu
þar sem að íslenskir fjallaleið-
sögumenn bjóða upp á skíða-
ferðir inn á hálendið og upp á
jökla á komandi vetri sem fyrr.
Samkvæmt heimasíðu þeirra
er um að ræða gönguskíða-
ferðir með mismikilli áherslu
á líkamlega áreynslu, enda eigi
svona ferðir að vera ferðalag,
frí og skemmtun allt í einuni
pakka. Atvinnuleiðsögumaður
sér um að allir fái sem mest
út úr ferðinni og að þeir sem
fari í ferðirnar læri að nýta sér
möguleika sína og landsins
auk þess sem þeir halda utan
um útbúnað og annan undir-
búning. Frekari upplýsingar
um ferðir og kostnað er hægt
að nálgast á heimasíðu þeirra,
www.mountainguide.is