blaðið - 23.11.2005, Blaðsíða 24
24 I HEILSA
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Hægt að vera
íbúi í Heilsu-
húsinu
Heilsuhúsið starfrækir vild-
arklúbb sem nefnist Ibúar
Heilsuhúsins og hefur gert slíkt
um ío ára skeið. Þeir sem kjósa
að gerast íbúar fá mánaðarlegt
fréttabréf með margs konar
fróðleik og gefst um leið kostur
á sérstökum tilboðum. Kapp-
kostað er að hafa afslátt íbú-
anna ríflegan og bjóða aðeins
upp á úrvalsvörur. Heilsuhúsið
segir að tilgangurinn með
hinu mánaðarlega fréttabréfi,
Heilsupóstinum, sé sá að geta
miðlað fróðleik um heilnæman
lífstíl til þeirra sem sækjast eftir
slíkum upplýsingum. Þetta sé
fyrst og fremst„félagsskapur
fyrir fólk sem hugar að heils-
unni og hefur ánægju af því
að matreiða hollan og góðan
mat.“ Frekari upplýsingar er
hægt að nálgast á heimasíðu
heilsuhússins, www.heilsa.is
Matur á
meðgöngu
Miklar breytingar verða á
meltingakerfi líkama kvenna
á meðgöngu. Mikilvægt er að
matarræði kvenna innihaldi
prótein ríkulega, sem og vít-
amín og steinefni fyrir bæði
móður og barn. Ef verðandi
móðir hefur hugað vel að hollu
og góðu matarræði og heil-
brigðri hreyfingu fyrir getnað
verða breytingar á Ííkama
hennar ekki eins miklar og ann-
ars. Ef líkamanum hefur ekki
tekist að koma sér upp góðum
næringarefnaforða eru konur
á meðgöngu í aukinni hættu á
næringartengdum sjúkdómum.
Konur skyldu þó hafa í huga að
þó líkaminn þarfnist aukinnar
næringar á meðgöngu er ekki
hægt að segja að ófrískar konu
ættu að borða fyrir tvo. Það er
ekki magnið sem gildir heldur
gæðin. Þú ert það sem þú
borðar og því mikilvægara en
ella að huga að góðu matar-
ræði þegar nýtt líf er í mótun.
Ungbarna-
mjólk
innkölluð!
Stórfyrirtækið Nestlé hefur
innkallað þurrmjólk og bland-
aða mjólk fyrir börn vegna
þess að leifar af bleki fundust i
ff amleiðslunni að því er ffam
kemur í ffétt á doktor.is. Þar
segir að samkvæmt talsmanni
Nestlé hafi um tvær milljónir
11 tra verið afturkallaðar á Itallu,
Frakklandi, Portúgal og Spáni.
Mjólkin sem um ræðir heitir
Nidina í og Nidina 2. Ekki er
talið að efnið sé hættulegt en
til þess að gæta fyllsta öryggis
var ákveðið að innkalla vöruna.
Góð heilsa
Margvíslegar upplýsingar um
heilsutengt efni er að finna vlða
á veraldarvefnum enda eru
margar slíkar vefsíður með allra
vinsælustu á vefnum. Breska
ríkisútvarpið heldur úti vönd-
uðum vef um ýmis málefni en
á heilsuvef þeirra má nálgast
margvíslegar upplýsingar um
hverskyns heilsubresti, næringar-
ff æði, sálræna sjúkdóma og ým-
islegt fleira. Heilsuvefinn er að
finna á slóðinni: www.bbc.co.uk
Einbeittu þér að andartakinu
Skipuleggðu slökun í vinnunni
Á síðustu árum hefur hraði sam-
félagsins aukist og stress og álag
einkennir líf nútímamannsins.
Sjúkdómar þessu tengdir verða
sífellt algengari en margir hafa
gripið til aðgerða til að halda hug-
arró þrátt fyrir mikinn þrýsting.
Góð leið til að halda geðheilsunni
undir miklu og viðvarandi álagi
er að gera slökunaræfingar i
vinnunni.
„Til að virkja fólk til að gera slökun-
aræfingar á vinnutímanum er mik-
ilvægt að einhver hafi yfirumsjón
með því og fylgi því eftir,“segir Sig-
rún Viktorsdóttir umsjónarmaður
starfsmannahalds hjá Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur. Sigrún
segir starfsfólki á skrifstofu VR hafi
aðgang að æfingum sem séu inn á
tölvunum. „Það er þvi miður ekki
góð reynsla af þessu og svo virðist
sem meira hópefli þurfi til að fólk
geri æfingar. Þriggja mánaða heilsu-
átak í gangi hjá starfsmönnum skrif-
stofu VR núna en þar gefst starfs-
fólki færi á að stunda líkamsrækt í
vinnutímanum. Þetta hefur mælst
vel fyrir og bæði karlar og konur
notfæra sér þetta,“ segir Sigrún. Hún
segir mismunandi hvort fólk fari í
líkamsrækt, jóga eða slökun í vinnu-
tímanum en markmiðið er að átakið
skili sér í auknum vinnuafköstum,
færri veikindadögum og skapi meiri
vinnugleði. Sigrún segir að hver
og einn haldi hreyfidagbók
og segir nauðsynlegt að hafa
markmið og mælingar í upp-
haf og endi svona átaks.
Heilög stund í vinnunni
Sigfríður Vilhjáms-
dóttir jógakennari
segir að hægt sé að
stunda virka slökun
t.d. sund eða göngu-
túra á vinnutíma
en hvorutveggja er
góð leið til andlegrar
og líkamlegrar heilsu-
bótar. „Slökun gerir
það að verkum að
líkaminn losar sig
við steitu og við það
verður hugarfarið
jákvæðara. Ef við
höldum áfram að
vinna þrátt fyrir að finna til þreytu
göngum við á varabirgðir líkamans.
Hægt er að ná kyrrð og ró með því
að leggjast út af í smá stund, anda ró-
lega og einbeita sér að þvi að vera
í andartakinu. Ég er hrædd um
að það sé ekki nógu mikið næði
á vinnustöðum til að hægt sé
að gera slökunaræfingar og
það krefst líka mikillar sam-
stöðu,“ segir Sigfríður. Hún
segir að á stærri vinnu-
stöðum væri möguleiki
að útbúa lítið herbergi
til slökunar en það þurfi
að vera skilningur á
verkefninu hjá
stjórnendum. Sig-
fríður segir að
jóga og slökun
sé krefjandi lang-
tímavinna ef æfing-
arnar eigi að skila
árangri.
Fróðleiksmolar
um slökun
Á Heilsuhælinu í Hveragerði er boðið upp á hugleiðslustund einu sinni í
viku fyrir starfsfólk stofnunarinnar. Engar formlegar rannsóknir hafa
farið fram á áhrifum þessara vikulegu tíma en þeir sem taka þátt finna
fyrir meiri rósemi og minni steitu.
Bee sem er verkefnastjóri hjúkrunarsviðs á heilsuhælinu segist
hraðan vera farinn að aukast í þjóðfélaginu og það leiði til aukinnar
streitu. Bee sendir nokkra fróðleiksmola um jákvæð áhrif slökunar.
Slökun er góð vegna þess að hún:
1. Minnkar streitu
2. Minnkar líkur á mistökum í vinnu
3. Minnkar líkur á veikindum
4. Lækkar blóðþrýsting
5. Eykur vellíðunarhormónin endorfín og dópamín í heila
Bee segir bestu leiðina til að slaka á svo það gagnist manni að hlusta á
leiðbeiningar um slökun meðan æfingarnar eru gerðar.
Aukinn áhugi á bardagaíþróttum:
Snýst um virðingu, aga og kurteisi
Það er mikil aðsókn í að æfa alls
kyns bardagaíþróttir og eru börn
þar fremst í flokki. Það virðist
ekki skipta máli hver íþróttin
er, svo lengi sem það er bardaga-
íþrótt. En börnin læra ekki
einungis að verjast heldur er oftar
en ekki virðing og agi í fyrirrúmi
á æfingum. Björn Þorleifur Þor-
leifsson hefur æft Tae Kwon Doe
í 16 ár og finnst það alltaf jafn
skemmtilegt. Hann kennir einnig
Tae Kwon Doe í íþróttamiðstöð-
inni Björk.
Björn segist hafa tekið eftir því að
áhuginn á bardagafþróttum er að
aukast. „Ég sé sérstaklega aukningu
hjá krökkum og stelpum í Tae Kwon
Doe. Ég held að foreldrar vilji senda
börnin í íþróttir sem kenna aga og
virðingu. Tae Kwon Doe snýst að
miklu leyti um að kenna börnum
virðingu, kurteisi og aga.“ Björn
segir að börnin, allt niður í fimm
ára, hafi mjög gaman af íþróttinni.
„Við leggjum náttúrlega ekki bara
áherslu á aga og virðingu, þetta
verður að vera skemmtilegt líka. 1
Björk eru margir foreldrar sem æfa
með börnunum sínum enda fá for-
eldrar helmingsafslátt ef þau æfa
með börnunum og það hefur verið
vinsælt. Þau eru þá öll saman í tíma
og þetta er mjög skemmtilegt.“
Bannað að nota Tae Kwon
Doe utan æfingar
Aðspurður hvort það sé engin hætta
á að börn fari að nýta Tae Kwon Doe
í slagsmálum segir Björn að það eigi
ekki að gerast. „Við kennum einmitt
aga, virðingu og kurteisi til að koma
i veg fyrir svoleiðis. Auk þess er
harðbannað að nota Tae Kwon Doe
fyrir utan æfingar nema að það sé í
algerri sjálfsvörn. Ef Tae Kwon Doe
er misnotað þá er fólki vísað úr félag-
inu.“ Björn segir að fólk stundi Tae
Kwon Doe vegna hreyfingarinnar,
til að læra sjálfsvörn og vegna félags-
skapsins. „Þetta er rosalega góð lík-
amsrækt og þol, snerpa og kraftur
eflist.“
svanhvit@vbl.is
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03
YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunar-
æfingar, slökun og hug-
leiðsla.
Sértímar fyrir byrjendur og
barnshafandi konur.
www.yogaheilsa.is
Morgun-, hádegis-,
síðdegis- og kvöldtímar.
NÝTT! Astanga yoga