blaðið - 23.11.2005, Blaðsíða 28
28 I FYRIR KOWUR
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 2005 blaöiö
Hannar og saumar
kjóla úr
hreindýraskinni
Hannaði kjól Þorgerðar Katrínarfyrir Edduverðlaunahátíðina
,Ég sauma fatnað úr hreindýraskinni
og vinn mest eftir pöntunum,“ segir
Signý Ormarsdóttir fatahönnuður
á Egilsstöðum. Signý hefur unnið
með hreindýraskinn í ío ár og á
þeim tíma hefur hún þróað vinnu
sína.
„Upphaflega var ég með fólk í
vinnu og æltaði að vera með fram-
leiðslu en nú er ég í annarri vinnu
og sauma aðeins eftir pöntunum.
Hreindýrahúðir eru takmarkaðar
og þvi betra að framleiða á einstak-
inga en flíkur sem ætlaðar eru til
sölu í búðum. Þá þarf sérstakar
saumvélar til að sauma leðrið sem
ekki eru til víða. Ég er hætt að gera
snið en máta þess í stað flíkina á
þá sem ég er að sauma á. Það er
misjafnt hvort fólk er með fyrirfram
ákveðnar hugmyndir um flíkina eða
lætur mig um að ráða en mér finnst
mun skemmtilegra að hafa frjálsar
hendur. Ég spái í vaxtarlag og per-
sónuleika fólks áður en ég ákveð
snið og liti flíkurinnar," segir Signý
og bætir við að yfirleitt treysti fólk
henni fyrir útliti flíkurinnar. Signý
segir hreindýrahúðirnar misjafnar
en vinnu-
ferlið sé
alltaf svipað.
Signý kaupir
húðirnar
beintafveiði-
mönnum og
síðan eru
þær sendar
í sútun og
litun til Ak-
ureyrar. Það
er engin húð
einsogSigný
lætur húð-
ina ráða ferð-
inni þegar hún teiknar flíkurnar.
„Það er misjafnt hvað fólk þarf að
panta flík með löngum fyrirvara en
það eru t.d. alltaf tarnir fyrir jól. Ég
næ ekki að klára fleiri flíkur fyrir jól
en þegar eru pantaðar en oft er lítið
að gera í upphafi árs. Ætli meðalbið-
tíminn sé ekki um einn mánuður en
hann getur verið skemmri og lengri,“
segir Signý. Hún segir föt úr hrein-
dýraskinni vera tímalaus þótt auð-
vitað sé eitthvað um tískusveiflur í
þessari framleiðslu eins og öðrum.
Signý hannaði kjól Þorgerðar
Katrínar menntamálaráðherra sem
hún skartaði á Edduverðlaunahátíð-
inni. „Þegar ég vann kjól Þorgerðar
ákvað ég að snúa húðinni öfugt
miðað við hvað ég geti venjulega
þannig að leðrið sneri inn. Ég set
aldrei fóður í kjóla þannig að húð
dýrsins nemur við húð þess sem
ber flíkina. Með þessu fær flíkin
aukin þokka og nær persónulegri
blæ,“ segir Signý. Hún segir verð
kjólanna vera á bilinu 150-170 þús
krónur og fer verðið eftir því hversu
efnismiklir kjólarnir eru.
Fleiri myndir af kjólum úr
hreindýraskinni munu birtast í
Blaðinu á næstu dögum
hugrun.sigurjonsdottir@vbl. is
,Mér fannst ég vera orðin algjör
letingi nýlega. Datt úr rútínunni
minni að stunda skokk og göngu-
túra og rækta þannig líkama og sál.
Hef verið mikið heimavið og lítil
framkvæmdamanneskja í nokkurn
tíma. Nenni varla framúr á morgn-
ana. Þetta á ekki við mig og ég
skammast mín fyrir ástandið. Það
eina góða við þetta hefur verið að á
meðan ég kúri inni í letikasti þá les
ég mikið. Og það er af nógu að taka.
Fullt af góðum bókum að koma út.
En ég hef haft miklar áhyggjur
af þessu - ætlar þessari leti aldrei
að linna? Hvar er orkan? Hvar er
víkingakonan í mér og íslenski
eldmóðurinn?
Ég var farin að hafa af þessu
nokkrar áhyggjur ög þar sem ég trúi
á gildi þess að tjá sig - og held upp
á máltækið „Segðu það steininum
heldur en engum,” þá nefndi ég
þetta við vinnufélaga og vini. Og viti
menn - þeir höfðu einmitt verið að
burðast með sama vandamálið. Leti,
meiri leti, slappleiki, orkuleysi. Og
eftir að hafa barmað okkur hvert í
kapp við annað komumst við að því
að þetta er ekki leti.
Það er ekki hægt að halda dampi
árið um kring þrátt fyrir myrkur,
breytilegt veðurfar, álag og ábyrgð
sem við flest berum. Múmínálf-
arnir leggjast í dvala á veturna. Sól-
bakaðir Spánverjar taka sér hádegis-
hvíldina síestu. En við, sem erum á
nagladekkjum með rúðuþurkurnar
á fullu í myrkri, hvort sem er á leið
í eða úr vinnu - ætlumst til þess að
halda kraftinum allt árið. Þegar ég
sá að þetta er til of mikils ætlast,
jafnvel af hraustasta íslendingi, þá
fór mér strax að líða betur. Orkan
fór að aukast. Ég fann fyrir vaxandi
framkvæmdagleði. Þetta er allt að
koma. Maður þarf bara að leyfa sér
að vera þreyttur og ekki til stórræð-
anna í nóvember (eða hvenær vetrar
sem myrkrið gerir mann helst
lúinn). Þegar maður sættist við
þetta þá fer landið að rísa.
Og á meðan ég var að vinna mig
upp úr þessari slöppu stemmn-
ingu notaðist ég við eftirfarandi
hressingarmeðul:
• Sættast við sjálfa mig og
skammdegið
• Hugsa um einn dag í einu
• Toblerone og annað gott súkku-
laði með mjólk
• Heitt kakó og bók á síðkvöldum
• Hlegið með Steinunni Ólínu „I
fylgd með fullorðnum”
• Hlegið með „Silvíu Nótt” á
fimmtudagskvöldum
• Klára Toblerónsúkkulaðið og
horfa á læknaþáttinn „House”
• Aftur sættast við sjálfa mig og
rifja upp að Múmínálfarnir
leggjast í vetrardvala. Þetta
er eðlilegt ástand hjá okkur á
norðurhveli jarðar.
Og viti menn: Þetta virkar. Ég fór að
dansa tangó um helgina, þvoði gard-
ínur, eldaði nýjan rétt, hafði sam-
band við vini í fjarlægum löndum,
breytti einu herbergi... ég veit ekki
hvar þetta endar.
Kveðja,
Sirrý
Signý Ormarsdóttir
Forvarnarverkefni
um kynferðislegt áreiti
Skólum landsins stendur til boða aðfáfrœðslu um efnið
/0*
Hallveig og Helga ásamt brúðunum í brúðuleikritinu
.Brúðuleikhúsið fer rólega af stað
en allir grunnskólar í landinu hafa
fengið upplýsingar um verkefnið
og geta haft samband,“ segir Svava
Björnsdóttir verkefnastjóri Blátt
áfram sem er forvarnarverkefni
UMFI gegn kynferðislegu ofbeldi
barna. Svava fer, ásamt Sigríði systur
sinni, í leik- grunn og framhalds-
skóla landsins ásamt brúðuleikhúsi
og kynnir verkefnið fyrir börnum
og unglingum. Svava lét þýða efni
sem er sérsniðið forvarnarefni fyrir
kynferðislegt ofbeldi og hefur verið
notað í Bandaríkjunum. „Eftir að
bókin hennar Thelmu Ásdísar-
dóttur, myndin af pabba, kom út
hefur verið mikið að gera hjá okkur
og aukin aðsókn í að fá fræðslu.
Thelma hefur sjálf komið með á
kynningar í grunnskólunum og sýnt
áhuga á að taka að sér lífsleiknitíma
í tengslum við verkefnið.
Áður en við sýnum brúðuleikritið
í skólunum viljum við halda fund
með kennurum og starfólki skól-
anna til hægt sé að tala við börnin
eftir sýninguna," segir Svava. Hún
segir að sýningarnar miði við 50
barna hóp og með því að takmarka
fjöldann myndist betra svigrúm
fyrir spurningar. Það eru þær Hall-
veig Thorlacius og Helga Arnalds
sem stjórna brúðunum, en þær eru
vanir brúðurstjórnendur.
„Bestu viðbrögðin sem við höfum
fengið við verkefninu hafa verið af
landsbyggðinni. Þessa dagana er
Sigríður systir mín í ferð um austur-
land þar sem verkefnið verður kynnt
fyrir foreldrum og kennurum.
Fyrir eldri bekkina erum við
með lífsleikni í stað brúðuleikhúss
og síðan er tími fyrir spurningar.
Við svörum öllum spurningum og
skiljum eftir nöfn okkar og síma-
númer til að krakkarnir geti haft
samband við okkur. Krakkarnir
spyrja mikið og þegar ég svara flétta
ég inn í persónulega reynslu mina
af kynferðislegu ofbeldi og bendi
á leiðir til að leita hjálpar,“ segir
Svava. Hún segir áberandi hversu
illa upplýstir unglingar eru um heil-
brigt kynlíf og samskipti og algengt
að stúlkur geri lítið úr þeim vanda
sem þær hafa lent í. Þannig virðast
margar stúlkur ekki gera sér grein
fyrir að það sé verið að brjóta á þeim
ef þær eru snertar utanyfir fötin.
„Það hefur komið fyrir að börn hafa
tjáð sig um kynferðislegt áreiti við
okkur sem ekki var vitað af áður,"
segir Svava. Hún segir mikilvægt
að kennarar og foreldrar skynji
sína ábyrgð því þessi málaflokkur
sé hluti af uppfræðslu barna. „Það
er mikilvægt að halda umræðunni
opinni og við lítum á þetta átak sem
upphaf af áframhaldandi umræðu
í leik og grunnskólum landsins,“
segir Svava og bendir á heimasíðuna
bláttafram.is fyrir þá sem vilja afla
sér meiri upplýsinga um verkefnið.
hugrun.sigurjonsdottir@vbl.is
i HÖFUM OPNAÍ VERSLUN AÐ Y ALLAR VHS MYNl ÓTRÚLEGTTILBC MEÐAN BIRGÐIR ir/ULL AO OÓÐU SAMBAHDlJ^STN.
TAMIEA&) CROTISK VBRSLUN ‘ Ð NÝJA OG GLÆSILEGA ■ILÍÐARSMÁRA 13 í KÓPAVOGI L DIR Á KR. 1250.- (hvergi ódýrari) >Ð Á TITRURUM KR. 500.- ENDAST www.tantra.is i rs
HLÍÐARSMÁR113 S. 587 6969 Opiö virka daga 12-20 FÁKAFENI 11 S. 588 6969 Laugardaga 12-18