blaðið - 30.11.2005, Side 2
2 I INNLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaöiö
SUSHI
TRHin
OPNAR1. DESEMBER
[LÆKJARGATA]
Heilbrigðisráðherra:
Ný reglugerð
felld úr gildi
Jón Kristjánsson, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra,
ákvað í gær að afturkaUa reglu-
gerð þá sem hann setti ffam
í október síðastliðinn. Þetta
þýðir að ákvörðuninni um að
fella niður bætur og innheimta
að fullu ofgreiddar bætur til
aldraðra og öryrkja er frestað
þar til liggur fyrir niðurstaða
frá starfshópi sem ráðherra
hefur ákveðið að skipa. Þeir
sem hefðu að óbreyttu ekki
fengið neinar greiðslur í des-
ember, vegna skerðingar, fá nú
bætur greiddar. Starfshópurinn
hefur það hlutverk að fara yfir
málið í heild sinni og gert er
ráð fyrir að hann setji fram
tillögur til breytinga á eftir-
litsþætti Tryggingastofnunar,
endurreikningi og niðurfell-
ingu bóta. 1 tilkynningu frá
ráðuneytinu kemur fram að
haft verði samráð við samtök
öryrkja og aldraðra í málinu.
Anægja með ákvörðunina
Viðsnúningur ráðherra í
málinu kemur í kjölfar mikilla
mótmæla ffá forsvarsmönnum
aldraðra og öryrkja. Félag
eldri borgara í Reykjavík sendi
kvörtun til umboðsmanns
Aþingis vegna málsins og brást
umboðsmaður við með þvi
að inna ráðuneytið svara um
hvernig skerðingarákvæðið
samrýmdist stjórnarskrá og
þeim sáttmálum sem íslend-
ingar eiga aðild að. Landssam-
band eldri borgara krafðist
þess einnig að reglugerðin yrði
dregin til baka. í samtali við
Blaðið sagðist Sigursteinn Más-
son, formaður Öryrkjabanda-
lagsins, vera með ánægður
með ákvörðun ráðherra, enda
væri hún í samræmi við
þær kröfur sem bandalagið
hafi sett fram í málinu.
Laugardalshöllin:
Viðbyggingin tekin i notkun
Blaíið/Frikki
í gær var formlega tekin í notkun
viðbygging við Laugardalshöllina.
Byggingin er um tíu þúsund fer-
metrar og er um að ræða fullkomið
fjölnota hús fyrir frjálsar íþróttir,
sýningar og ráðstefnur. Steinunn
Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri,
opnaði húsið formlega. Hún segir
að ákaflega vel hafi tekist til með
viðbygginguna við gömlu höllina
sem fagnar 40 ára afmæli sínu þann
4. desember. Steinunn Valdís segir
að húsið verði mikil lyftistöng fyrir
íþróttaviðburði, sýningar og aðra
stórviðburði. Laugardalshöllin er í
eigu íþrótta- og sýningarhallarinnar
ehf. Að félaginu standa Reykjavíkur-
borg og Samtök iðnaðarins og þakk-
aði Steinunn Valdís samtökunum
fyrir gott samstarf.
10.000 manna tónleikasalur
Með tilkomu viðbyggingarinnar er
Lau’gardalshöllinn alls rúmir 16.000
fermetrar að flatarmáli. I nýbygging-
unni er 5.000 fermetra salur sem er
sérhannaður fyrir frjálsar íþróttir,
auk sýninga og stærri viðburða.
Nýi salurinn rúmar 7-10 þúsund
manns á tónleikum og viðlíka við-
burðum og er þvi kærkomin viðbót
í tónleikasalaflóru landsins. Einnig
er fullkomin innandyra funda- og
ráðstefnuaðstaða og þar má taka
á móti 120 ráðstefnugestum í sæti.
Framkvæmdir við verkefnið hófust
í júlí 2003 og er heildarkostnaður
við bygginguna um 1,5 milljarður
króna.
Blaðið/Frikki
Guðni tekur á móti Mjólku-pósti
Það bar vel í veiði hjé Guðna Ágústssyni í gær þegar hann tók á móti mjólkurpósti I
ráðuneyti sínu. Þar var um að ræða boðskort af sérstæðari gerðinni, en á föstudaginn
mun Mjólka taka mjóikurstöð sína formlega í notkun og býður til sín gestum við það
tækifæri. Guðni greip tækifærið og teygaði mjólkina af áfergju eins og sést á myndinni.
Visa-ísland
VISA kort
ekki afrituö
VISA ísland hefur ekki þurft að inn-
kalla nein krítarkort í kjölfar korta-
misnotkunar í Bandaríkjunum.
Talsmenn fyrirtækisins telja að
umrædd misnotkun beinist að
þessu sinni fyrst og fremst
að Masterkortum og því
geti VISA korthafar
andað léttar.
Lentu í hlið-
stæðu máli
Blaðið sagði frá því í gær
að fyrirtækið Kreditkort
hf. hefði innkallað um
200 innlend Masterkort af
öryggisástæðum þar sem grunur lék
á að þau hefðu orðið bandarískum
kreditkortasvindlurum að bráð.
Þórður Jónsson, sviðsstjóri korthafa-
sviðs hjá VISA fsland, segir að ekki
sé talið að VISA kort hafi verið mis-
notuð í þessu tilfelli. „Það er ekkert
á þessari stundu hjá okkur í þessu
máli. Við lentum í svipuðu máli
fyrr á árinu í febrúar og mars
og þurftum að loka um
39, til 40 kortum. En
það er ekkert núna
pkkar megin enda er
ekkert sem segir að
þetta þurfi endi-
lega að haldast
í hendur á milli
vörumerkja."
Þórður segir
kortafalsara oft
vinna í hvert skipti með
ákveðna kortategund og flakki þá
lítið á milli tegunda. Þá segir hann
að fylgst sé með öllum óeðlilegum
kortanotkunum í gegnum ákveðið
eftirlitskerfi og út frá visbendingum
og í þessu tilfelli bendi ekkert til
þess að VISA kort hafi verið afrituð
eða misnotuð.
•a
„... eropinská, leiftrandi og
heillandi... Hér er vissulega
um eigulega bók að rœða,
ekki aðeins fyrir aðdáendur
Lennons, heldur alla þá sem
.. láta sigsögu dægurtón-
listar einhverju varða.“
Sveinn Guðjónsson, Mbl.
Frábær bók sem varpar
nýju ljósi á eina helstu
rokkstjörnu 20. aldar.
SKRUDDA
Eyjarslóft 9 - 101 Reykjavík
s. SS2 8866 - skrudda£)skrudda.is
(3 Heíðskírt (3 Léttskýjað Skýjað Alskýjað
Rignlng, litilsháttar /'/' Rigning 9^9 Súld íjc Snjókoma
‘ Snjókoma r—7 siydda r"7 Snjóél r—7
* V V V
Skúr
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
NewYork
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublin
Glasgow
05
12
12
00
04
-03
02
02
///
///
2° ///
3
13 Veðurhorfur í dag kl: 18.00
08 Veðursíminn
07 Byggt á upplýslngum há Veðuretofu íslands
*
'/A /// v 40 • -1° morgun
40 I » -2‘ AÓ u