blaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 16

blaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 16
I HEIMILI MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaöið Spennandi markaður: Húsgagnasmíði ennþá vinsæl: Flott búsáhöld á 50-100 krónur stykkið Á Mýrargötunni er nú starfræktur markaður með mörgum athyglis- verðum hlutum. Það er kristilega út- varpsstöðin Lindin sem er að selja þessar vörur en þær eru af lager sem tilheyrði verslun Þorsteins Bergmanns. „Við hörfum verið að selja vörur af lagernum en það er mikið eftir enn,“ segir Magnús Kristinsson, starfsmaðurLindarinnarogmark- aðarins. „Ég reikna með að við verðum að selja þetta í desember en við verðum að hafa tæmt lager- inn fyrir lok næsta mánaðar. Fólk hefur sýnt þessu mikinn áhuga en markaðurinn er opinn föstudaga og laugardaga frá klukkan 11-18“ segir Magnús og bætir við að átta starfs- menn þurfi til að anna fjöldanum sem kemur í búðina á opnun- artímum. Magnús segir elstu hlutina úr lagernum vera um 30 ára eða eldri. „Þegar við tókum upp úr köss- unum sáum við að eitthvað af vör- unum var vafið inn í dagblöð frá því fyrir 1970. Þarna er að finna heilu matar- og bollasettin sem ekki sér á. Við reynum að stilla verði varanna í hóf en þær fara á 50-100 krónur stykkið. Það eru þó einstaka vörur sem eru aðeins dýr ari. Sem dæmi um þær vörur sem við erum með eru hnífapör, bolla- stell, matarsett og kökudiskar. Allt eru þetta nýjar vörur en frá mis- j ö f n u m tímum. Við erum með mikið c- * af vörum frá áttunda og ní- undaáratugnum. Þarna er að finna mikið af tekkvörum, brauð- bretti, framburð- arbakka og plast- vörurásamtljósum og lömpum,“ segir Magnús. „Eitthvað af lagernum hafði blotnað í geymslu og því þurftum við að þvo upp hluta af leirtauinu en það sést ekki á nokkrum hlut,“ segirMagnús. Markaðurinn er staðsettur á Mýrargötunni gengt Viðskiptablaðshúsinu. Ein vinsœlasta heimilis- og gjafavöruverslun Danmerkur á íslandi: Söstrene Grene í Smáralind „Við erum fyrsta land utan Dan- merkur sem opnum þessa skemmti- legu verslun," segir Kristín Reynis- dóttir, annar eigandi Söstrene Grene á Islandi. Þessi verslun hefur verið vinsæl í Danmörku fyrir fjölbreytt vöruúrval og lágt verð. Þá kannast margir Islendingar við verslunina af Strikinu. „Við munum bjóða upp á smekk- lega hannaðar og nytsamlegar heim- ilis- og gjafavörur sem koma víðs- vegar að úr heiminum. I versluninni er hægt að fá margvísleg búsáhöld, dúka, föndurvörur, tréleikföng, kör- fur, kerti, servíettur, baðvörur, te, ar- abískt kaffi og spennandi matvöru svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Kristín. Hún segir verslunina einnig bjóða upp á vandaðar vörur fyrir lista- menn s.s. trönur, striga, áhöld og málningu. „Söstrene Grene ber með sér fjöl- þjóðlegan blæ og kemur viðskipta- vinum sínum sífellt á óvart með nýjum vörum og vörutegundum. Stofnendurnir, Grene systur, leggja mikla áherslu á að litir, form og tónlist skapi sérstaka og jákvæða stemmningu og verður verslunin hér engin undantekning. Hún verður í klassískum Söstrene Grene- stíl hvað varðar útlit, framsetningu, verð og vöruúrval," segir Kristín. Til að skapa afslappaða stemmningu í búðinni verður spiluð klassísk tón- list. „Allar vörutegundir verða verð- merktar og við leitumst eftir að vera með lágt vöruverð," segir Kristín. Jóhanna Einarsdóttir mun reka verslunina ásamt Kristínu en versl- unin verður opnuð 2. desember. hugrun@vbl.is Sérstök húsgögn sem ekki sjást í „Nemendur í húsgagnasmíði eru aðallega að smíða sérhúsgögn sem ekki fara í fjöldaframleiðslu," segir Skjöldur Vatnar Björnsson, kenn- ari og sviðsstjóri byggingarsviðs í Iðnskólanum í Reykjavík. Hús- gagnasmíði hefur verið kennd i Iðn- skólanum í Reykjavík í yfir 25 ár og árlega byrja 8-14 nemendur í skól- anum. „Stærstur hluti nemendanna eru konur og margar eru komnar af hefðbundum skólaaldri. Nemendur okkar eru mikið í sérverkefnum við að innrétta þjónustustofnanir og gera húsgögn. Þeir gera líka við hús- gögn en eru ekki mikið í bólstrun. Nemendur í húsgagnasmíði hanna mest skrifborð, borðstofuborð, rúm og kommóður sem eru óhefð- bundnar í laginu. Þetta eru ekki hús- gögn sem fólk sér í búðum og því spennandi að skoða,“ segir Skjöldur og bætir við að föstudaginn 2. des- ember verði sýning á verkefnum nemenda sem er öllum opin. Nemendur hanna sjálfir húsgögn sín, en fá leiðsögn arkitekta sem kenna fagteikningu, formfræði og stílfræði. „Hugmyndaflugið vill oft fara á fulla ferð hjá þeim sem læra húsgagnasmíði en nemendurnir þurfa lika að læra að það er öðruvísi að framkvæma en hugsa. Húsgögnin verða líka að taka mið af þeim efni- við sem við höfum en uppistaðan í flestum húsgögnum er timbur sem síðan er blandað saman við tau, málm eða gler,“ segir Skjöldur og bætir við að fjöldaframleiðsla hús- gagna er hluti af náminu. „Þegar IKEA og fleiri stórar hús- gagnaverslanir með fjöldaframleidd húsgögn litu dagsins ljós hélt fólk að húsgagnadeildin í Iðnskólanum myndi lognast út af en svo hefur ekki verið. Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með þróun hugmynda í verslunum húsgagnasmíðinni í gengum árin,“ segir Skjöldur en hann hefur kennt við deildina frá upphafi. Skjöldur segir húsgagnahönnun skemmtilegt og áhugahvetjandi nám sem reyni á hugmyndaflug og útsjónarsemi einstaklingsins. hugrun@vbl.is Minna stress og meira skipulag: Góð hásráð fyririólm „Mér finnst að fólk eigi að slappa meira af og njóta aðventunnar í stað þess að hugsa alltaf um að kaupa það nýjasta og fínasta,“ segir Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri Hússtjórnarskólans. Margrét segir óþarfa að þrífa loft og veggi eins og áður var og betra að geyma hrein- gerninguna þar til á vorin þegar fólk hættir að vera með kerti sem sóta veggina. „Það er mikið betra að sjá óhreinindin á vorin þegar daginn fer að lengja. Svo ráðlegg ég fólki að vera snemma með smákökubakstur og annað sem það telur sig þurfa að gera til að minnka stressið,“ segir Margrét. Hún leggur áherslu á að fólk taki sér tíma til að föndra með börnunum og fara á aðventukvöld til að finna jólastemmninguna. Margrét segir menntun hústjórn- arskólans vera í fullu gildi ekki síst núna þegar fólk hefur minni tíma og þarf að skipuleggja tíma sinn betur. „Sumt fólk segist ekki hafa tíma til að elda en áttar sig ekki á að það tekur jafnlangan tíma að koma sér út í bíl og bíða á næsta skyndi- bitastað eftir afgreiðslu. Svo er líka mun hollara að borða mat sem er eld- aður heima. Nemendur í Hússtjórn- arskólanum læra undirstöðuatriði í næringarfræði og eldamennsku og gerir þá tilbúna til að fara í flóknari rétti. Þá lærir fólk að þrífa heimilið, prjóna vettlinga og sokka ásamt því að vefa,“ segir Margrét. Hún segir flesta nemendur skólans á aldrinum 18-20 ára og í þeirra hópi eru margir með stúdentspróf. Námið tekur eina önn.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.