blaðið - 30.11.2005, Qupperneq 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 blaAÍÖ
Mikill niðurskurður er framundan
hjá lyfjarisanum Merck & Co.
Merck segir upp
7.000 manns
Lyfjafyrirtækið Merck &
Co. hyggst segja upp 7.000
starfsmönnum (um 10% allra
starfsmanna fyrirtækisins) og
leggja niður fimm verksmiðjur.
Ekki hefur verið greint frá því
hvaða verksmiðjum verður
lokað en alls rekur fyrirtækið
31 verksmiðju. Aðgerðirnar,
sem voru kynntar á mánudag,
eru liður í endurskipulagningu
fyrirtækisins á heimsvísu og
segja talsmenn þess að þær
miði að því að auka samkeppn-
ishæfni þess og skilvirkni. I
kjöfar tilkynningarinnar féll
gengi hlutabréfa í fyrirtækinu
um 4,6% í kauphöllinni í New
York. Gengi hlutabréfa í Merck
hefur fallið á undanförnum
árum og er það nú aðeins
um tveir þriðju þess sem það
var fyrir fimm árum. Rekstur
fyrirtækisins hefur ekki gengið
sem skyldi og hefúr það meðal
annars fengið á sig fjölda
lögsókna út af lyfinu Vioxx
auk þess sem það hefur tapað
einkaréttarvernd á mikil-
vægum vöruflokkum og þróun
nýrra lyfja hefur ekki sídlað
þeim árangri sem vonast var til.
Þúsundasta aftakan í Bandaríkjunum
í vikunni fer fram þúsundasta aftakan í Bandaríkjunum siðan lög um dauðarefsingu voru
endurvakin fyrir nœrri 30 árum. Dauðadómum hefur fcekkað á undanförnum árum og
sífellt færri Bandaríkjamenn eru hlynntir dauðarefsingu.
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði fyrr á árinu að ekki sé hægt að dæma fólk til dauða fyrir glæpi sem það framdi á unglingsárum.
Sá úrskurður hefur orðið 71 manni til Iffs.
Þúsundasta aftakan frá því að dauða-
refsing var tekin upp á ný árið 1976
mun að öllum líkindum fara fram
í Bandaríkjunum í vikunni. 997
manns hafa verið teknir af lífi síðan
Hæstiréttur Bandarfkjanna batt enda
á bann við dauðarefsingum sem var f
gildi frá 1967-1977. Aftökur fimm ein-
staklinga eru fyrirhugaðar í vikunni
þannig að ljóst er að tala þeirra sem
hafa verið teknir af lífi mun fara yfir
1000.
David Elliot, sem er í forsvari fyrir
samtök sem berjast fyrir afnámi
dauðarefsingarinnar, segir að nú sé
runnin upp stund yfirvegaðrar en
dapurlegrar íhugunar. Hann fagnar
því þó að Bandaríkin virðast smátt og
smátt að hverfa frá dauðarefsingunni.
„Dauðadómum hefur fækkað um
50% síðan síðla á tíunda áratugnum
og eru nú um 150 á ári. Aftökum
hefur fækkað um 40% síðan þær náðu
hámarki árið 1999 en þá voru þær 98,“
sagði hann.
64% hlynntir dauðarefsingu
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurð-
aði fyrr á þessu ári að ekki mætti
dæma fólk til dauða fyrir glæpi sem
það hefði framið á unglingsaldri.
Úrskurðurinn leiddi til þess að 71
maður slapp við dauðarefsingu.
Árið 2002 komst rétturinn að því
að það bryti í bága við stjórnarskrá
að taka glæpamenn af lífi sem væru
þroskaheftir.
64% Bandarikjamanna eru
hlynntir dauðarefsingunni sam-
kvæmt könnun sem Gallup lét gera
í síðasta mánuði. Stuðningur við
hana hefur ekki verið jafn lítill í
27 ár en mestur var hann árið 1994
þegar 80% Bandaríkjamanna sögð-
ust vera hlynntir dauðarefsingunni.
Almenningur hefur ennfremur
orðið tortryggnari á undanförnum
árum og dregur oftar en ekki í vafa
hvort þeir sem eru dæmdir til dauða
séu í raun og veru sekir. Meira en
helmingur þeirra aftaka sem átt
hafa sér stað síðan 1977 hafa farið
fram í fylkjunum Texas, Virginíu
og Oklahoma. I Texas-fylki einu
hafa 355 manns verið teknir af lífi á
þessum tíma. ■
VOLVOS40 VOLVOV50 VOLVO S60 VOLVO V70 VOLVO S80 VOLVOXC70AWD VOLVO XC90 AWD
VELDU VOLVO V50 FYRIR NOTAGILDIÐ
Volvo V50 er stærðfræðileg snilld, sportlegur og fullur af
lífsorku. Hann er sparneytinn og slær keppinautum sínum
við fyrir glæsileika, aksturseiginleika og tæknibúnað. Áratuga
umhyggja Volvo fyrir öryggi fjölskyldunnar og þörfum hennar
kristallast í Volvo V50. Áhersla á markvissa hönnun skutbíla
setur Volvo V50 á stall hjá fjölskyldufólki sem leitar að réttu
samræmi rýmis og hleðslu, þar sem rétt þyngdardreifing
skerðir ekki aksturseiginleika skutbllsins. Veldu sér-
hannaðan herragarðsbíl frá Volvo: Volvo V50. Þú finnur
notagildið sem hann færir þér og þlnum í leik og starfi.
Mikill staðalbúnaður einkennir Volvo
Þú færð mikinn staðalbúnað í Volvo V50: WHIPS bak-
hnykksvörn, SIPS hliðarárekstrarvamarkerfi, stöðugleikastýr-
ingu og spólvörn, ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun,
4 loftpúða auk hliðarloftpúða, tölvustýrða loftkælingu með
hitastýringu, hágæða hljómflutningstæki með 8 hátölurum,
rafdrifnar rúður, upphituð sæti, 16“ álfelgur og margt fleira.
Þú velur um skemmtilegar vélar í Volvo V50. Hinar geysi-
öflugu 170 og 220 hestafla vélar mörkuðu tímamót í bíl-
greininni fyrir nýstárlega hönnun og tæknibúnað. Nú færðu
Volvo V50 með óvenjusprækri 1 25 hestafla 1,8 lítra vél og
enn meiri búnaði en áður. Komdu I Brimborg.
Heimsbíll ársins í fyrsta sinn í sögunni
Volvo V50 var tilnefndur sem „Heimsbíl ársins 2005“ og
bætist tilnefningin við flóru viðurkenninga Volvo V50 og
Volvo S40 en Volvo S40 er m.a. bíll ársins á íslandi. Öryggi
er lúxus. Veldu Volvo!
Komdu I Brimborg. Spurðu söluráðgjafa Volvo á íslandi um
verð og gæði. Við gerum þér gott tilboð um staðgreiðsluverð
fyrir gamla bílinn.
Finndu fegurðina sem býrígæðum einfaldleikans. Skoðaðu nýtt
stjórnborðið sem ekki átti að vera hægt að framleiða.
WORLD
car or
THEYEAR
AWARDS
Volvo V50 bensín.
Verð frá 2.545.000 kr*
Volvo V50 dísil.
Verð frá 2.845.000 kr.‘
* Brimborg og Volvo áskilja sér rótt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.