blaðið - 30.11.2005, Blaðsíða 28
28 I MENWING
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005 Maðift
Tónlistarhátíð
á jólaföstu í Hallgrimskirkju
Að venju verður boðið upp á glæsi-
lega dagskrá í Hallgrímskirkju á að-
ventunni. Laugardaginn 3. desember
kl. 17 verða jólatónleikar Mótettu-
kórsins endurteknir en frumflutn-
ingur var í gærkvöldi. Einsöngvari
á tónleikunum verður hinn tólf ára
gamli drengjasópran, ísak Ríkharðs-
son, sem hefur vakið mikla athygli
fyrir engiltæra rödd og fagran söng.
Annar góður gestur á tónleikunum
verður saxófónleikarinn vinsæli Sig-
urður Flosason. Hann hefur löngu
sannað að fáir standa honum á
sporði við að spinna fallegan vef i
kringum þekkta sálma og mun efna
til spennandi tónaleiks með Mótettu-
kórnum þar sem jólalögin taka á sig
nýjar og óvæntar myndir. Hið glæsi-
lega Klaisorgel Hallgrímskirkju
mun að sjálfsögðu einnig leggja sitt
til málanna og auka hátíðarbrag tón-
leikanna með hjálp Björns Steinars
Sólbergssonar, organista. Stjórnandi
verður að venju Hörður Áskelsson,
kantor Hallgrímskirkju.
Á tónleikum sínum í Hallgríms-
kirkju, sunnudaginn 4. desember
kl. 17, mun Björn Steinar Sólbergs-
son leika glæsilega orgeltónlist frá
ýmsum tímum tengda aðventu og
jólum með áherslu á franska jóla-
tónlist, m.a. frá barokktíma. Efn-
isskráin er fjölbreytt, aðgengileg
og afar hátíðleg og gefur organist-
anum ríkuleg tækifæri til að nýta
sér hljómauðgi Klaisorgelsins,
stærsta hljóðfæris landsins. Meðal
99..................
Um er að ræða fyrsta
heildarflutning á
verkinu með fullskip-
aðri barokkhljómsveit
hér á landi, kantötur
l-lll verða fluttar á
tvennum tónleikum og
kantötur IV-VI á einum.
höfunda verkanna má nefna Louis-
Claude Daquin, Claude Balbastre
og Felix Alexandre Guilmant.
Jólaóratóríu Johann Sebastian
Bach þarf vart að kynna. Hún er
þekktasta og stórbrotnasta tón-
verk sem samið hefur verið í til-
efni af fæðingarhátíð Krists og er
sjálfsagður hluti af hátíðarbrag
jólanna um allan heim. Um er
að ræða fyrsta heildarflutning á
verkinu með fullskipaðri barokk-
hljómsveit hér á landi, kantötur
I-III verða fluttar á tvennum tón-
leikum og kantötur IV-VI á einum.
Kammerkórinn Schola cantorum,
sem mun syngja óratóríuna undir
stjórn Harðar Áskelssonar, hefur
á stuttum ferli komist í fremstu
Frá jólatónleikum á aðventu 2004.
röð evrópskra kóra og hlotið verð-
laun í alþjóðlegum kórakeppnum.
Einsöngvarar á tónleikunum
verða nokkrir af glæsilegustu full-
trúum yngri kynslóðar íslenskra
söngvara, þau Hulda Björk Garð-
arsdóttir, sópran, Sesselja Krist-
jánsdóttir, alt, Eyjólfur Eyjólfsson,
tenór, og Ágúst Ólafsson, bassi.
Með þessum fríða flokki söngvara
leikur Alþjóðlega barokksveitin
í Den Haag. Hún er skipuð frá-
bærum hljóðfæraleikurum frá 20
þjóðlöndum, sem hafa sérhæft sig
í flutningi barokktónlistar. Jóla-
óratórían verður flutt laugardag-
inn 10. desember kl. 17 (kantötur
I-III), sunnudaginn 11. desember
kl. 15 (kantötur I-III) og kl. 18
(kantötur IV-VI). B
SÖLUMENN
ÓSKAST
Vegna aukinna umsvifa óskar
Blaðið eftir sölumönnum i
fulla vinnu.
Um er að ræða skemmtilegt
starf hjá fyrirtæki í örum
vexti með skemmtilegu
fólki. Góðir tekjumögu-
leikar fyrir gott fólk.
Blaðiö
Bæjarlind 14-16
201 Kópavogur
Ævintýrið um Auga-
stein á Akureyri
og í Reykjavík
Leikhópurinn Á senunni sýnir Æv-
intýrið um Augastein eftir Felix
Bergsson í Samkomuhúsinu á Ak-
ureyri og í Tjarnarbíói í Reykjavík
nú fyrir jólin. Sýningar verða á Ak-
ureyri dagana 10. - 12. desember
og í Reykjavík dagana 14. -18. des-
ember. Sýningarnar á Akureyri eru
í samstarfi við Leikfélag Akureyrar.
Barnabókin Ævintýrið um Auga-
stein fékk glimrandi viðtökur fyrir
jólin 2003 og seldist í þúsundum
eintaka. Útgefandi var Mál og
menning.
Ævintýrið um Augastein var
frumsýnt i London árið 2002 og i
Reykjavík 2003. Verkið er leikið
af höfundi og það byggir
á hinni sígildu
sögu um Grýlu og jólasveinana en
ævintýrið er tekið lengra og sagan
um litla drenginn, sem nefndur er
Augasteinn, verður miðpunktur
leikritsins. Augasteinn lendir fyrir
tilviljun í höndum hinna hrekkj-
óttu jólasveina. Sveinarnir skrýtnu
eru hræddir við lítil börn en þeir
læra smám saman að elska litla
drenginn og annast hann. Skyndi-
lega kemst Grýla á snoðir um
tilveru barnsins og við tekur æsi-
spennandi flétta.
Umsóknir sendist á atvinna@vbl.is