blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 2

blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 2
2 I ÍNNLENDAR TRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaöiö blaöiðH Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur Sími: 510 3700 •www.vbl.is FRÉTTASÍMI: Jólaverslun: Mikil aukning á kortaveltu Velta krítarkorta hjá Kreditkort hf. í desember eykst um iy% milli ára. Samdráttur í krítar- kortaveltu útlendinga á íslandi. (jjöftíLjólcv, fi'á' ulUnióðju/ Óla/ / <o GullsmiJja Óla ísmáralind 510 3799 netfang: frettir@bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Kjaradómur: Ráðamenn fá launahækkun Forseti íslands fær 6% launa- hækkun nú um áramót en ráð- herrar og æðstu embættismenn fá um 8% hækkun. Þetta kom fram í tilkynningu frá kjaradómi í gær. { ákvörðun dómsins segir að grund- vallarbreytingar hafi verið gerðar á launakerfi embættismanna i maí 2003. Breytingin hafi það í for með sér að dómurinn sjái til þess að laun embættismanna séu í „sam- ræmi við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem sambærilegir geta talist með tilliti til starfa og ábyrgðar." Það er því álit dómsins að nú um áramótin beri að hækka launin í samræmi við breytinguna. Einnig er bent á að laun á almennum vinnumarkaði hækki um 2,5% um áramótin. Laun forsetans hækka um rúmar 90 þúsund krónur, eða um 5,7% og verða um 1,7 milljónir effir hækkun. Laun ráðherra og æðstu embættismanna hækka hins vegar um 8,16% og til dæmis hækka laun forsætisráðherra um 75 þúsund krónur og verða tæpar 990 þúsund krónur. Olíufélögin: Bensín lækkar Olíufélögin Esso, Skeljungur og Olís lækkuðu í gær verð á bensíni hjá sér um tæpar 0,3 krónur og kostar lítrinn af 95 oktana bensíni nú 106,8 til 108,3 krónur. Atlantsolía lækkaði í fyrradag lítraverð hjá sér niður í 106,9 krónur og kemur lækkun félaganna þriggja í beinu framhaldi af þeirri lækkun. Kortavelta innanlands í desember er um 17% meiri í ár en í fyrra sam- kvæmt samantekt Kreditkorts hf yfir veltu sinna viðskiptavina. Á tímabilinu jókst velta erlendis um rúm 29% og kortavelta fyrirtækja um 21,8%. Þá jókst krítarkortavelta innanlands hjá Kreditkort hf. um rúm 20% á fyrstu ellefu mánuðum þessa árs og debetkortavelta um tæp 30%. Erlend eyðsla íslendinga eykst Tölur Kreditkorta hf. ná yfir alla kortaveltu viðskiptavina þeirra sem fer í gegnum posa frá 1. til 16. des- ember 2005 og nemur heildarveltan á tímabilinu rúmum 2,6 milljörðum króna og eykst um 17,37% milli ára. Sé horft til einstakra liða má sjá að velta matar- og drykkjarliðar eykst um 12,46% miðað við sama tímabil í fyrra. Þá er einnig aukning á lið sem tekur til fatnaðar um tæp 19%. Mesta aukningin á milli ára er um 52,84% í byggingavörum en einnig er athyglisvert að sjá að velta sem snýr að rekstri farartækja eykst um 29,4% og gefur það eflaust ágætis mynd af aukinni bílaeign landsmanna. Þá hafa íslendingar verið duglegir að nota krítarkortin sin eríendis á þessu tímabili og nemur aukningin þar rúmum 29%. Hún var tæpar 350 milljónir í fyrra en nam nú rösklega 460 milljónum. Neysla útlendinga hér landi dregst aftur á móti saman um 0,14% á því tímabili sem samantektin nær yfir og munar mest um rúmlega 39% samdrátt í þjónustuliðnum uppá rúmar fimm milljónir króna. At- hygli vekur að þrátt fyrir þennan samdrátt eykst neysla útlendinga hérlendis hvað varðar mat og drykk um 1,5 milljón eða um 44,34%- Þá kaupa útlendingar einnig meira af fötum hérlendis og nemur aukn- ingin þar um 31%. Var um 4 millj- ónir en er nú rúmar 5 milljónir. Minna um vanskil Samkvæmt Ragnari Önundarsyni, framkvæmdastjóra Kreditkorta hf„ gefa þessar tölur nokkuð skýra mynda af neyslu- þróunþó þ æ r nái ekki yfir alla heildina. Þá segir Ragnar mikil krítarkortanotkun alls ekki benda til aukinnar skulda- söfnunar heldur kjósi Islendingar í vaxandi mæli að nota kort fram yfir aðra greiðslumáta. „íslendingar eru, eins og kunnugt er, heimsmeistarar í kortanotkun og þá er voðalega nærtæk sú ályktun að Islend- ingar séu heimsmeistarar í kortaskuldum en svo er ekki. Islendingar borga úttektirnar sína afar vel og ástæðan er m.a. sú að þjóðfélagið er að verða seðlalaust og menn finna með sjálfum sér að kortið verður alltaf að vera í lagi. I lok síðustu efnahagslægðar árið 2002 voru vanskil hjá okkur um 2% af undangenginni 12 mánaða veltu. Núna eru þau um 0,2%. Ástæðan er góðærið, mikil atvinna, yfirvinna, hækkandi fasteignaverð osfrv.“ Skoðanakönnun IMG Gallup í Reykjavík: Sjálfstæðismenn með 55,7% 3 Björn Ingi Hrafnsson nýtur trausts um 30% til þess að vera borgarstjóri í Reykjavík. Sjálfstæðisflokkurinn er með mikinn meirihluta í Reykjavík samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem IMG Gallup gerði í nóvember og desember. Samkvæmt henni hafa framsóknar- menn aukið fylgi sitt verulega frá síð- ustu könnun, en ná þó ekki manni inn. Sérstaka athygli vekur að um þriðjungur svarenda kvaðst treysta Birni Inga Hrafnssyni, sem stefnir á efsta sæti á lista framsóknarmanna, til þess að gegna starfi borgarstjóra. Könnunin var unnin fyrir Franca ehf. en það er almannatengslafyrir- tæki sem vinnur fyrir Björn Inga. Hún leiðir í ljós að fylgi Sjálfstæðis- flokksins er 55,7%, Samfýlkingin fengi 25,3% og Vinstrigrænir 12,3%. Framsóknarflokkurinn fengi 4,8% ef kosið væri nú og næði því ekki inn manni eins og sakir standa. Hins vegar er eftirtektarvert að fram- sóknarmenn fá nú meira en tvöfalt fylgi frá því sem var í samsvarandi könnun IMG Gallup í september. Þá mældist flokkurinn með 2,3% stuðn- ing, en síðan hefur það breyst að Al- freð Þorsteinsson hefur tilkynnt að hann hyggist draga sig í hlé frá stjórn- málavafstri og Björn Ingi kynnt fram- boð sitt. Rétt er að geta þess að regla má heita að Framsóknarflokkurinn fái talsvert meira fylgi í kosningum en skoðanakönnunum. Frjálslyndi flokkurinn naut aðeins stuðnings 1,7% svarenda og önnur framboð 0,2%. Þrátt fyrir lítið fylgi Framsóknar- flokksins í borginni treysta 31,5 pró- sent kjósenda Birni Inga til þess að vera borgarstjóra. Tæpast kemur á óvart að mest fylgi við hann er meðal stuðningsmanna framsóknar (um 95% þeirra), en athygli vekur að lið- lega 30 prósent stuðningsmanna Sjálf- stæðisflokksins treysta honum til að vera borgarstjóri, rúmlega 20% stuðn- ingsmanna Samfýlkingar og tæplega 40% óákveðinna. Fjögurra bíla árekstur varð fyrir framan Smáralindina um fiögurleytið í gær. Tveir ökumannana nokkra bakáverka og einn farþegi varð fyrir meiðslum. Þung umferð var á þessum slóðum í gær. o Heiðskirt 0 Léttskýjað Skýjað Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal NewYork Orfando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vfn Algarve Oublin Glasgow 06 10 01 -13 03 03 -06 02 07 08 13 -20 -02 07 -01 03 -04 04 01 14 08 | Alskýjað ! Rigning, litilsháttar /// Rigning } 9 Súld Snjókoma 5 * 0 ef 2- sfj Slydda Snjóél sjj 0 <H 1° O (H o° Skúr Amorgun Veðurtiorfur i dag kl: 15.00 Véðursíminn Byggt á upptýsingum fré Vaóuretofu islands BUDOKUSHDPIS ‘jólagjöfin 2005 ©6610015

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.