blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 14
14 I ÁLIT
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaöi6
blaðið—
Útgáfufálag: Ár og dagur ehf.
Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson.
Ritstjóri: Karl Garðarsson.
TVEGGJA TURNA HJAL
Síðastliðin ár hafa íslenskir stjórnmálaskýrendur margir hverjir
velt því fyrir sér hvort dagar fjórflokkakerfisins væru á enda,
hvort íslensk stjórnmál myndu framvegis einkennast af „turn-
unum tveimur" - Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu - og jafnvel að innan
seilingar væri tveggja flokka kerfi.
Þessar vangaveltur voru ekki úr lausu lofti gripnar. Samfylkingin hafði
alla burði til þess að vera stór flokkur vinstra megin við miðju stjórnmál-
anna, sem veitt gæti Sjálfstæðisflokknum verðuga samkeppni.
Ný skoðanakönnun IMG Gallup sýnir að Samfylkingin nýtur aðeins
stuðnings 25,3% Reykvíkinga, en höfuðborgin hefur verið höfuðvígi
flokksins og formanns hans, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Miðað við
síðustu þingkosningar lætur nærri að þriðji hver kjósandi Samfylkingar-
innar hafi-snúið við flokknum baki. Að því leyti er tómt mál að tala um
turn þegar Samfylkingin er annars vegar. Á hinn bóginn virðist Sjálfstæð-
isflokkurinn hafa bætt við risíbúð ofan á sinn turn og mælist með 55%
stuðning Reykvíkinga.
En jafnvel þó svo vígstaðan í dag væri ekki með þessum hætti væri hjalið
um turnana tvo markleysa ein. Stjórnmál snúast ekki um skoðanakann-
anir, heldur eru þær einungis mælitæki. Á endanum snúast stjórnmál um
skoðanir og fólk og eina marktæka niðurstaðan um stuðning borgaranna
fæst í kosningum.
Getur nokkur haldið því fram með haldbærum rökum að átakalínur ís-
lenskra stjórnmála liggi á milli Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar öðrum
fremur? Þegar litið er til veigamikilla málaflokka, hvort sem er í Reykjavík
eða landinu öllu, má fremur halda því fram að þær liggi á milli Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks annars vegar og Vinstri grænna hins vegar.
Afstaða Samfylkingarinnar í höfuðviðfangsefnum stjórnmálanna er ekki
skýrari en svo að mönnum veitist nær ómögulegt að staðsetja hana.
Fyrrnefnd skoðanakönnun IMG Gallup bendir til þess að í Reykjavík hald-
ist Vinstri grænum vel á sínu fylgi og geti enn bætt við sig. Þar ræður skýr
stefna flokksins vafalaust miklu um. Þá er ekki síður athyglisvert að þar
eru teikn um að framsóknarmenn séu að snúa vörn í sókn, að því er virð-
ist í krafti ungs og fersks frambjóðanda, Björns Inga Hrafnssonar.
Það skyldi þó ekki vera að kjósendur kærðu sig enn um frumlegar hug-
myndir og frambærilegt fólk? En turnarnir, þeir standa ekki lengur en
þeir gerðu í Babel forðum, sérstaklega þegar hver talar sinni tungu, sumir
tveimur og enginn skilur neitt.
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingan Bæjarlind 14-16,201 Kópavogur.
Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711.
Netföng: vbl@vbl.is. frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is.
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur.
Canon Ixus zoom
T
5.0 milljón pixlar
2,4x opliskur aödráttur
video með hljóöi
16 tökustillingar
| 1,8" skjár
Kodak V530
Tengivagga og
hleöslurafhlaða fylgir
5,0 milljón
3x optískur aðdráttur
"on screen myndvinnsla"
20 tökustillingar
2.0" skjár
Samsung L-50
hleðslurafhlaða fylgir
btdu og
5,0 milljón pixlar
3 x opiskur aðdrátfur
Video með hljóði
einföld og þœgileg
2,5" skjár
Hleðslutœki og
hleðslurafhlaða fytgir
*meö þessu
b minniskort fylgir
m vélum á meöan byrgöir endast
Álfabakka 14 - 557 4070
www.myndval.is
Tí-títot, wú in bátvi to vm oe
sja táoRt Getí mtírn
FVríE MÉR flp Gl/b sé Til!
Wýtt ár með Vinstri grænum
Framundan er jólahátíð en líka kosn-
ingavetur og kosningavor. Þar gefst
okkur vonandi tækifæri til að skerpa
meginlínur og leggja grunn að öfl-
ugri félagshyggjustjórn í Reykjavík-
urborg á næsta Ícjörtímabili. Vinstra
fólk í borginni, femínistar og um-
hverfisfólk á nú skýran valkost í
V-listanum. Akurinn sem R-listinn
skilur eftir gefur okkur tækifæri
til að sá fjölda fræja í frjóan svörð.
Nú er að skoða fræin, flokka þau og
nýta sérjarðveginn sem bíður.
Línur skýrast, óháðir verða
háðir, fulltrúi breiðfylkingar
félagshyggjuaflanna í borginni
verður bundinn flokki, ráðu-
neyti senda út snöfurmannleg
og hönnuð, brosandi framboð
sem samstundis afneita uppruna
sínum og tengslum við afleita rík-
isstjórn. Stóri hægri flokkurinn
býður fram hugmyndalítill en
hress, frambjóðendur allnokkrir
af sjaldséðu kyni, syngjandi odd-
viti og kátur skemmtikraftur í
valnum. Borgarbúar sjá fram-
boðin ganga fram fyrir tjaldið
eitt af öðru, Vinstri græn búin
að kjósa í sín efstu sæti, ekkert
auglýsingaskrum þar, létt, leik-
andi og hratt. V-listinn verður
svo kynntur í fullri lengd á félags-
fundi 5. janúar.
Gleðileg jól?
í aðdraganda jólanna erum við
minnt á það hversu brýnt er að
muna eftir því að hægja á okkur,
slaka á neyslubrjálæðinu og draga
úr kapphlaupinu. Tíminn með börn-
unum, vinunum, hvert öðru, róin og
kjarninn skiptir máli og rifjast upp
mitt i ösinni, kösinni, ljósunum og
posunum.
Ekki er síður brýnt að muna
eftir því að fyrir marga eru jólin
erfiður tími. Ef ekki er nóg milli
handanna, ef fólk á við veikindi,
fötlun, einsemd eða fátækt að
stríða. Það er samfélagsins að
tryggja öllum rétt á lífi með reisn
og möguleikanum á sjálfsvirð-
ingu. Þessi skylda samfélagsins
verður enn ljósari þegar nálgast
jól. Fjöldi fólks hefur ekki nóg
til hnífs og skeiðar, er gert að lifa
á smánarupphæðum sem eru
undir fátæktarmörkum, sama
við hvaða mælikvarða er miðað.
Fyrir þetta fólk er jólin erfiður
tími, tími vonbrigða og depurðar.
Fjöldi barna býr sömuleiðis við
erfiðar aðstæður, líka í Reykjavík,
höfuðborginni okkar.
Fyrir umhverfi, lýðræðið og fólkið
Hinir þungu og krefjandi hags-
munir eru gjarnan hagsmunir fjár-
magnsins, neyslunnar, þeirra sem
nóg eiga fyrir. I samfélagi markaðar
og neysluhyggju er litið á þessa hags-
muni sem mikilvægari og sterkari.
Heilu stjórnmálaöflin og kátir fram-
bjóðendur hafa þar að auki tekið að
sér að gæta sérstaklega hagsmuna
þeirra aðila sem þegar hagnast á lög-
málum markaðarins, geta keypt sér
öryggi, forréttindi. Stjórnmálafólk
með hugsjónaeld i augum, titrandi
af réttlætiskennd talar um réttinn
til að kaupa sér forréttindi, eins og
um mál málanna sé að ræða. Mikil-
vægast af öllu sé að fólk geti keypt
sér stærra, meira, fleira og oftar.
Við slíkar aðstæður þarf flokk
sem stendur vörð um rödd þeirra
hagsmuna sem eru fyrir borð
bornir þegar þungi markaðarins
eykst og varðhundar valds og fjár-
magns hefja sinn söng. Þetta eru
hagsmunir umhverfis, lýðræðis-
ins og fólksins. Borgin á að vera
fyrir alla, sameign en ekki mark-
aðstorg þeirra sem þegar njóta
forréttinda.
f umhverfi yfirboða, neyslu og
skrums þarf að huga sérstaklega
að innihaldinu, kjarnanum, rónni.
Þar er andi réttlætisins, samhygð-
arinnar og hlýjunnar. Sá andi á
líka heima í stjórnmálunum því
stjórnmálin fjalla um það hvernig
við viljum skipta auðnum og stjórna
samfélaginu. Stjórnmálin fjalla ekki
bara um hugsjónir og sýn heldur
líka verkefni, forgangsröð og vinnu-
brögð. Þetta er gott að hafa í huga
þegar ljósið sigrar skammdegið.
Höfundur er í 1. sœti á lista
Vinstri grænna í komandi
borgarstjórnarkosningum.
Klippt & skoríð
klipptogskorid@vbl.is
Enn á ný hefur DV
farið ótroðnar
slóðir I blaða-
mennsku sinnl. f fyrradag
varþvíslegið uppáforsfðu
að jólasveinninn væri ekki
til, en sfðan mátti raunar
lesa að þarværi vitnað til síra Flóka Kristins-
sonar, sem hafðl lýst þessari skoðun þegar
ung sóknarbörn spurðu. Þarna fannst mörgum
meira en nóg aö gert hjá DV, en í gær stígur
Jónas Kristjánsson skrefið til fulls og ritar
leiðara undir fyrirsögnlnni „Jólasveinninn
er ekki til". Þar rekur hann rök fyrir þessarí
afstöðu blaðsins og lýkur leiðaranum á þv( að
börnin eigi heimtingu á að vita sannleikann f
málínu. Jamm, DV hlffír sko engum!
Klippara þóttu það nú ekki mikil
tíðindi að Dagur Bergþóruson
Eggertsson tilkynnti um framboð
sitt f prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar I vor. En hins vegar vakti
slagorðiö hjá Degl athygli: „Nýja Reykjavik:
kraftmikil, skemmtlieg, örugg, heilbrigð". Gat
það virkilega ekki verið aðeins lengra? Þetta er
fullhnitmiðað og skýrt hjá honum.
Hltt er svo annaö
mál að Dagur
skuldar borgar-
búum skýringar á hring-
landa sínum f pólitfk og
framboðsmálum. Ekki er
langtsfðanaðhannvarsvo
óháöur að hann mátti vart heyra á aðra flokka
minnst án þess að fá aösvif. Og þó hann lýsti
yfir stuðningi við tiltekinn frambjóðanda í for-
mannskjöri Samfylkingarinnar tók hann skýrt
fram að hann væri enn óháður og alls ekki á
leið inn f Samfylkinguna. Sfðan lýsti hann
þvi yfir að hann væri að hætta f pólitík og tók
því vfðs fjarri að hann gengi i Samfylkinguna
til frekari metorða. En allt þetta virðist hafa
breyst á mettíma. Sem minnir óneitanlega að-
eins á pólitfska guðmóður hans, Ingibjörgu
Sólrúnu Gísladóttur.
Gárungarnlr segja aö þau Dagur
og Ingibjörg geti ekki einu sinni
pantað sér pizzu lengur, sfmsvar-
arnir spyrji á móti hvort þau hætti ekki bara
við þegar flatbakan erá leiðinni!