blaðið - 21.12.2005, Blaðsíða 18
18 I VIÐTAL
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaAÍÖ
Eru allir femínstar með krikaloð og Harry Potter Klippingu?
Karlmenn hafa rétt á
að sýna tilfinningar sínar
Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, erfélagi í ungliðahreyfingu Femínistafélags íslands. Hún er ein afþeim sem
dreifa Krónu konunnar íþjóðfélaginu. Steinunni langar til að hrœra í kynjakerfinu eins og hún kallar það. Hún
þekkir stráka sem vilja það líka. Margrét Hugrún Gústavsdóttir tók hana tali.
Hvers vegna kallarðu þig Gyðu- og
Guðjónsdóttur?
,Þetta er eitthvað sem ég tók upp
þegar ég var bara smákrakki,
kannski í níu eða tíu ára bekk. Ég
var með einhverja pælingu í gangi af
hverju börn væru bara dætur feðra
sinna en ekki mæðra og þá tók ég
bara upp á þessu að kalla mig Gyðu
-og Guðjónsdóttur.
Það má ætla að ég hafi verið í femi-
nískum pælingum þegar ég var barn
þó það hafi verið mjög ómeðvitað.
Fólki finnst þetta mjög óvenjulegt
svona almennt, enda eru nýjungar
oft framandi, en þegar það venst
þessu þá finnst því þetta bara hið
besta mál.“
Hvernighefur gengið að dreifa Krónu
konunnar?
,Það hefur gengið ofsalega vel. Upp-
haflega vorum við með þúsund
merki sem seldust á innan við viku.
1 sömu viku afhentum við forsætis-
ráðherra merkið og höfðum sam-
band við nokkra fjölmiðla sem gerðu
þessu skil. Nú erum við búnar að fá
nýja sendingu af krónum og erum
að bíða eftir að bæklingurinn komi
úr prentun. Krónurnar eru til sölu
í Hljómalind en við stefnum á að
koma merkinu í fleiri búðir, svona
þegar við erum búnar með prófin."
Hvað kom til aðþiðgerðuðþetta?
,Síðastliðið sumar hittust meðlimir
ungliðahreyfingar Femínistafélags-
ins vikulega í þeim tilgangi að fá
hugmyndir að einhverju sem gæti
lagt málstaðnum lið. Við vildum
vera með aðgerðir og vissum að
kvennafrídagurinn væri í vændum.
Aðalháherslan á kvennafrídaginn
var á launamun kynjanna og hvað
væri til ráða í þeim efnum.
Við erum náttúrlega ungliða-
hópur og ungt fólk hefur vanalega
spáð lítið í þennan launamun, enda
búið að vera í skóla alla ævi nánast
og ekkert að vinna neitt að ráði.
En auðvitað kemur okkur þetta
við af þvi við stefnum á atvinnu-
markaðinn á endanum. Það má
kalla þetta fyrirbyggjandi aðgerðir
fyrir okkur sjálfar.
Króna konunnar kemur reyndar
upphaflega frá Finnlandi, enda
er þetta alþjóðlegt vandamál. Við
fórum í það að fá leyfi frá Seðlabank-
anum til að nota íslensku krónuna í
þessum tilgangi. En þetta eru samt
ekki alvöru krónur heldur bara af-
steypur,“ segir Steinunn og hlær.
Og nú stendur til að halda þessu
áfram?
,Já, markmið okkar er að hafa þessa
krónu í umferð áfram. Við seljum
hana á táknrænu verði, rétt til að
eiga upp í kostnað og framleiða fleiri
krónur. Hvað þennan 35% launa-
mun varðar þá höfum við hingað til
miðað við skattskýrslur og tekið mið
af þeim. Þar getur maður séð launa-
muninn svart á hvítu, bæði hjá fólki
sem vinnur hjá ríki og borg, í heil-
brigðisgeiranum og á einkamarkaði.
Þetta er vissulega stærra úrtak en
það sem VR gerir og niðurstöður
okkar sýna fram á að það er raun-
verulega 35% munur á launum fólks
eftir því hvort það er fætt karl eða
kona. Þetta er náttúrlega ekki hægt
að sætta sig við og því stefnum við
á að hafa krónu konunnar í umferð
þar til skattskýrslur sýna fram á að
við getum hætt að framleiða hana.“
Nú ert þú í ungliðahreyfingu Femín-
istafélagsins, eru strákar í félaginu
Itka?
„Já, það eru strákar í hópnum. Þeir
eru reyndar hlutfallslega færri en
stelpurnar en engu að síður eru
þeir virkir. Þetta eru strákar sem
hafa verið að pæla í þessum málum
og vilja leggja málstaðnum lið. Þeir
líta á þetta frá nokkurn vegin sama
sjónarhorni og við stelpurnar. Við
höfum öll pælt töluvert í uppeldi
á strákum og stelpum, hvernig
uppeldi stefnir okkur í fyrirfram
ákveðna hegðun. Ég held að ég megi
fullyrða að við sem erum í hópnum
höfum öll áhuga á að hræra í kynja-
kerfinu. Breyta því hvernig við erum
öll mótuð í stöðluð hlutverk karla
og kvenna. Baráttan fram til þessa
hefur þó að mestu leyti snúist um
að rétta hlut kvenna og strákarnir
sjá hag sinn í þvi,“ segir Steinunn
ákveðið.
Sjá strákarnirfleiri ástæðurfyrirþví
að leggja baráttunni lið?
„Þegar launamunur kynjanna er
greindur kemur í ljós að konur vinna
oftast styttri vinnudaga en karlar.
Ástæðan fyrir því að við tökum
þennan mun ekki með inn í 35%
töluna, er sú að þegar konur klára
vinnudaginn á vinnumarkaðnum
fara þær heim til sín og halda áfram
að vinna. Vinnan heima fyrir er
ólaunuð á meðan karlar eru lengur
á skrifstofunni og fá jafnvel borgað
fyrir yfirvinnu. Strákarnir í Femíni-
stafélaginu hafa tekið þetta með inn
í myndina, að þeir fái sama skerf af
fjölskyldulífi og barnauppeldi og
konur. Þeir eru til í að breyta hegð-
unarmynstri sínu sem „karlmenn"
og breyta hlutverkum sínum í átt að
jafnræði. Vandinn er nefninlega enn
sá að karlar hafa ekki tekið að sér
hefðbundin kvennastörf á sama hátt
og konur hafa gengið í karlastörf.”
Áður en femínistafélagið var stofnað
var margt fólk sem vissi ekki hvað
orðið femínisti þýddi og ruglaði því
jafnvel saman við femin.is. ímynd
femínista almennt hefur verið tölu-
BlaÖiÖ/SteinarHugi
vert bundin við þetta félag og þær
skoðanir sem það læturfrá sér opin-
berlega. Oftar en ekki hefur félagið
mætt andúð og ímynd félagsins jafn-
velfengið á sig neikvæðan stimpil.
„Já, ég hef mikið hugsað um ímyndina
og þetta umtal. Orðræðan kemur op-
inberlega mest fram á Netinu og ég
verð nánast ekkert vör við þetta fyrir
utan það og ég held að neikvæðnin
sé að miklu leyti ótti við breytingar.
Það að hræra upp í kynjakerfi er
vissulega róttæk breyting og eðlilegt
að mörgum ói við að brey ta mörg þús-
und ára hegðunarmynstri. Hræðsla
karla við femínisma almennt snýst
kannski um ótta við að missa forrétt-
indi. Eins og til dæmis ef laun þeirra
yrðu lækkuð um leið og laun kvenna
væru hækkuð. Persónulega tel ég að
þeir þurfi ekkert að óttast. Þegar jöfn
staða næst þá hafa þeir ekki lengur
þetta forskot sem þeir fá ókeypis með
því að fæðast sem karlar. Það eru
líka réttindi fyrir karla að fá að sinna
sínu heimili og gera það almennilega.
Eins losna þeir við alla þessa vitleysu
um að karlmenn megi ekki hafa til-
finningar og tjá þær eins og konur
mega gera.“
Það hefur líka borið mikið á því, á
Netinu og víðar, að félagar í Femíni-
stafélaginu tjái sig um skoðanir sínar
á kynferðismálum og klámi. Klám er
loðið hugtak sem ekki allir skilgreina
eins, og það sama má segja um
kynferðislega niðurlœgingu. Sumir
hafa dregið afþessu þá ályktun að
femínstar séu leiðinda kerlingar
sem hafa engan áhuga á því sem er
skemmtilegt. Einskonar fúlir siða-
postular. Finnst ykkur ekki erfitt
að eiga við þessi mál á opinberum
vettvangi?
„í Femínistafélaginu höfum við gert
okkar skilgreiningu á orðinu „klám“
og í okkar merkingu þá er þetta ljótt
orð sem við notum þegar kynlíf og
ofbeldi, eða niðurlæging fara saman.
Klám annarsvegar, og erótík eða
myndir af kynlífi hinsvegar, er ekki
það sama i okkar skilgreiningu.
Við höfum ekki tekið að okkur
það hlutverk að ætla að segja fólki
hvað það má og hvað það má ekki
gera í sínu einkalífi og höfum í raun
engan áhuga á því hlutverki. Hins-
vegar eru margir sem vilja tengja
okkur við svoleiðis leiðindi og leggja
okkur þannig orð í munn.“
Eruð þið með eitthvað nýtt á
stefnuskránni?
„Okkur hefur dottið í hug að kort-
leggja kvenkynssöguna, enda
höfum við öll lært mannkynssög-
una og vitum að hún fjallar að
mestu um karla, kónga, trúar -og
stjórnmálaleiðtoga og stríð þar sem
karlmenn eru alltaf í forgrunni og
konur gegna hlutverkum statista
og aukaleikara. Okkur langar til að
saga kvenna, bæði íslensk og erlend,
komi betur fram. Að við fáum að
öðlast meiri þekkingu á sögu þeirra
og stöðu í þjóðfélaginu, en eins og
allir vita eru konur líkt og óhreinu
börnin hennar Evu á spjöldum sög-
unnar og það sama má segja um
fjölmiðla í dag, en nýjar rannsóknir
sýna fram á að konur fái 30% athygli
á meðan karlar fá 70%. Það er enn
langt í land,“ segir þessi unga dugn-
aðarkona að lokum.
margret@bladid. net
JÓLAGJÖFIN HENNAR.
-VEPÍdlsfinn.
v/Laugalæk • sími 553 3755