blaðið - 21.12.2005, Qupperneq 26
26 I HÖWWUN
MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 blaöiö
Óskar hannaði þennan sófa árið 1962 Erla só|vejg hannaði Dímon árjð 2003
Feðgin sýna í Hönnunarsafni íslands:
Lík húsgögn þó áratugir skilji að
Á sýningunni Eplið og eikin
í Hönnunarsafni íslands við
Garðatorg kemur berlega í ljós að
orðatiltækið „Eplið fellur sjaldan
langt frá eikinni" á við rök að
styðjast. Á sýningunni sýna Óskar
Lárus Ágústsson og dóttir hans,
Erla Sólveig Óskarsdóttir verk sín
og hægt er að sjá tengsl eða lík-
ingu með húsgögnum feðginanna
þótt áratugir hafi liðið frá því að
Öskar hannaði og smíðaði sín verk
og þar til Erla Sólveig kom fram
með sitt.
Óskar Lárus er menntaður húsgagna-
smiður sem hannaði og smíðaði
húsgögn og Erla Sólveig dóttir hans
er iðnhönnuður sem hefur vakið
töluverða athygli fyrir húsgögn sín.
Tilefni sýningarinnar er 85 ára af-
mæli Óskars og Erla segir að það hafi
vakið töluverða athygli að þau skyldu
opna sýningu rétt fyrir jól. „Mörgum
finnst þessi tímasetning asnaleg, að
opna sýningu fjórum dögum fyrir jól,
en mér fannst skemmtilegt að þetta
99.........................
Ég hefmest veríð að
hanna húsgögn og fyrír
nokkrum árum fór ég
að skoða það sem faðir
minn hafði gert og þá
sá ég tengsl þar á milli.
•••••••••••••••••••••••••
yrði i tilefni af 85 ára afmælis föður
míns. Hann er fæddur 20. desember
1920 og þess vegna er sýningin frá 20.
desember til 20. janúar.“
Handverk breytist lítið
Erla segir að það hafi komið henni á
óvart að sjá tengsl á milli sinna verka
og föður síns. „Ég hef mest verið að
hanna húsgögn og fyrir nokkrum
árum fór ég að skoða það sem faðir
minn hafði gert og þá sá ég tengsl þar
á milli. Faðir minn smíðaði húsgögn
á sínum tíma, auglýsti í Visi og seldi.
Það má þvi segja að hann hafi verið
að hanna og framleiða húsgögn þó
hann hafi ekki haft menntun sem
hönnuður. Faðir minn er hættur að
hanna í dag en aðstoðar mig mjög
mikið og hefur nóg að gera í því.
Svona handverk tapast ekki og það er
í raun ótrúlegt hvað það breytist lítið
í grundvallaratriðum, þótt það komi
vitanlega ný efni og slíkt. Ég hef
leitað mikið til hans með samsetn-
ingar, styrkleika og annað enda er ég
ekki iðnaðarmaður. Faðir minn er yf-
irleitt sá fyrsti sem ég leita til og hann
hjálpar mér að gera frumgerðir."
Nostalgíusýning
Erla segir að hún hafi nú ekki getað
fundið öll húsgögn föðurs síns sem
hún hefði viljað. „Sýningunni er
mjög bróðurlega skipt á milli okkar,
ég held að við séum með næstum
því jafn mikið af húsgögnum. Við
sýnum þau húsgögn föðurs míns
sem við náðum í. Ég hefði nú kosið
að ná í ýmislegt sem hann hefur
verið að segja mér frá en það gekk
ekki alltaf upp. Á þessum tíma voru
engar myndir teknar þannig að það
hefur verið erfitt að finna gamalt
efni. Þess vegna langaði mig að safna
þessu sáman, sem var þó hægt að ná
í, og mynda það almennilega. Þessar
heimildir eru þá til, þó ekki væri
nema fyrir okkur fjölskylduna."
Aðspurð að því hvort hún hafi
verið að feta í fótspor föðurs síns
þegar hún lærði iðnhönnun segir
Erla að það hljóti eiginlega að vera.
,Það er oft sem maður áttar sig ekki
á því fyrr en eftir á, þegar maður
sér samhengi í hlutunum. Ég hugs-
aði alls ekki um það þegar ég fór í
námið en svo sé ég það seinna meir
að ég kem úr einhverju ákveðnu um-
hverfi,“ segir Erla og bætir við að
þessi sýning sé mjög sérstök í hennar
augum. „Yfirleitt hefur maður verið
að halda fagsýningar eða sölusýn-
ingar en það má eiginlega segja að
þetta sé meiri nostalgía.“
svanhvit@vbl.is
íslendingur í danskri bók um silfursmíð
Mikil viðurkenning
í Koldinghus-safninu er stærsta safn
silfurmuna frá 20. öldinni í Evrópu
en að sögn Péturs Trygga á safnið
einnig mikinn fjölda muna frá fyrri
öldum. 1 bókinni Dansk sölv pá
Koldinghus eru einungis myndir og
umfjöllun um verk silfursmiða frá
síðustu öld. Verkin eru 24 talsins
eftir 18 silfursmiði og hönnuði en
þar af eru ellefu látnir. Meðal þeirra
silfursmiða sem eiga verk í bókinni
auk Péturs Tryggva er Georg Jensen
sem flestir þekkja. Pétur Tryggvi
blandar saman ýmsum efnum í
verkum sínum, allt frá silfri, gulli
og platínu yfir í steinsteypu, ryðgað
járn og fleira.
Silfursmíði sem byggist
á dönskum hefðum
Pétur Tryggvi segir það ákaflega
mikla viðurkenningu fyrir sig að
hafa verið valinn til að eiga verk í
bókinni góðu þar sem hann er félagi
í danska silfursmiðafélaginu auk
þess sem silfursmíði hans byggist á
dönskum silfursmiðahefðum. Pétur
Tryggvi stundaði nám í Institut
for Ædelmetal í Kaupmannahöfn
1981-83 og setti upp eigið verkstæði
í Kaupmannahöfn 1985 og starfaði
þar fram til ársins 2002 þegar hann
fluttist heim og þá til ísafjarðar.
Pétur Tryggvi verður í Epal i Skeif-
unni alla þessa viku og mun kynna
fyrir gestum og gangandi ýmsa silf-
urmuni en þar er meðal annars að
finna mikið úrval af skartgripum
eftir listmanninn.
íslenski silfursmiðurinn Pétur
Tryggvi Hjálmarsson var þess
heiðurs aðnjótandi að vera valinn
í hóp 18 silfursmiða sem fjallað
er um i bókinni Dansk sölv pá
Koldinghus en Koldinghus er
safn í Kolding á Jótlandi. Fram-
lag Péturs Tryggva til bókarinnar
er glæsileg silfurkanna sem var
smíðuð árið 1997.
99...................
Pétur Tryggvi blandar
saman ýmsum efnum
í verkum sínum, allt
frá silfri, gulli og plat-
ínu yfir í steinsteypu,
ryðgað járn og fleira.
Verslun
Lámarks álagning
Miklð úrval
Búsáhöld- jólavörur- klukkur
Ljós- leikföng- sjöl- skartgripir
slæður- úr- verkfæri- veski ofl. ofl.
Flottur fatnaður á
alla fjölskylduna
á sama verði og erlendis!
Allt í jólapakkann
fæst hjá okkur
B.MAGNÚSSON
Austurhrauni 3,Gbæ/ KAYS (nóg af bílastæðum)
www.bmagnusson.is bm@bmagnusson.is sími: 5552866
Opið virka daga 10-18 Þorláksmessa 10-19
Aðfangadag 10-12
PéturTryggvi hefur sömuleiðis hannað mikið úrval skartgripa.