blaðið - 03.01.2006, Síða 2
2 I INWLEWDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 blaöið
blaði
Bæjariind 14—16,201 Kópavogur
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
Gamlárskvöld:
Alltaf eitthvað
um skemmdir
Á gamlárskvöld hópuðust menn út á
götur landsins til þess að sprengja í
burtu gamla árið og taka á móti því
nýja. Aldrei áður hefur eins mikið
magn af flugeldum fuðrað upp og í
ár ef marka má fréttir. Blaðinu lék
því forvitni á að vita hvort skemmdir
af völdum flugelda væru miklar
þessa nótt. Hjá VÍS fengust þær upp-
lýsingar að ávallt væri nokkuð um
skemmdir af þessum völdum ekki
síst á bifreiðum sem standa nálægt
þegar sprengt er. Bifreiðaeigendur
sem eru með bílinn sinn í kaskó
þurfa þó ekki að örvænta hafi bíll-
inn laskast í hamaganginum, því
nái tjónið sjálfsábyrgð er það bætt
að fullu af tryggingunum. Ekki
fengust upplýsingar um hvernig
þetta gamlárskvöld 2005 hefði verið
i samanburði við önnur, þar sem
nokkurn tíma taki oft fyrir fólk að
láta vita af tjóninu. Því líða nokkrir
dagar áður en þetta kemur í ljós.
Hinsvegar sagði talsmaður trygg-
ingafélagsins að þó tjón af þessum
völdum væri alltaf eitthvað, væri
það í langflestum tilvikum litið og
næði oft ekki sjálfsábyrgðinni. ■
Daníelsslippur og Mýrargötusvœðið
Skipta þarf um tugi þúsunda
rúmmetra af menguöum jarðvegi
Byggja á upp íbúðabyggð á svœðinu. Framkvœmdastjóri Faxafóahafna segir enga hœttu á
ferðinni, enformaður Útvegsmannafélags Reykjavíkur óttast að ekki verði nóg að gert.
Fjarlægja þarf tuttugu þúsund
rúmmetra af menguðum jarðvegi í
tengslum við uppbyggingu á svoköll-
uðu Mýrargötusvæði. Mengunin er
í kringum gamla Daníelsslippinn
og er mengunin rakin til starfsemi
hans. Að sögn Gísla Gíslasonar,
framkvæmdastjóra Faxaflóahafnar
er jarðvegurinn, sem fjarlægður
verður, ríkur af þungmálmum. Fyr-
irhugað er að byggja íbúðahúsnæði
á svæðinu sem um ræðir.
Ókræsilegt byggingarsvæði
„Við erum að fara í verulega dýpkun
á vesturhöfninni og í heildina verða
þar fjarlægðir 80.000 rúmmetrar af
efni. Gert er ráð fyrir að um 10.000
rúmmetrar af því séu mengaður
jarðvegur og síðan þarf að fjarlægja
annað eins af menguðum jarðvegi í
landi“, segir Gísli.
Hjörtur Gíslason, formaður
Útvegsmannafélags Reykjavíkur
segir að jarðvegurinn sé mengaður
af hættulegum spilliefnum.
„Þarna hefur alla tíð verið brúkuð
á skip málning sem eyðir botngróðri,
Blaólö/lngó
Skipta þarf um tugi þúsunda rúmmetra af menguðum jarðvegi í kringum Slippinn við
Reykjavlkurhöfn.
þ.e. efni sem aftra því að gróður lifi
á botni skipa. Þessi efni hafa safnast
saman í jarðveginum þau fjölmörgu
ár sem Slippurinn hefur verið starf-
ræktur" segir Hjörtur. Hann er efins
um að fyrirhugaðar aðgerðir dugi til
að afeitra svæðið.
„Ég hef heyrt að mengunin nái
alveg niður á klöpp. Ég hefði talið
það hyggilegast að hlífa þessum reit
við að byggja á honum. Mér sýnist
það öruggast að setja ekki manna-
byggð á svæðið. Þá þyrfti ekki að
velta þessu fyrir sér. Mér sýnist það
allavega nokkuð ókræsilegt að ætla
að setja fjölda íbúða á svona svæði“.
Ekkert sem kemur á óvart
Gísli Gíslason er þessu ekki sam-
mála. „Það sem er kjarninn í málinu
er að þetta er í sjálfu sér ekki meira
en reikna má með miðað við þá starf-
semi sem þarna er. Þetta er ekki
eitthvað sem kom á óvart og er ekki
það magn að erfitt verði að koma
þessu burtu. Þarna á eftir að standa
öruggt svæði. Það er pottþétt að það
verður ekki farið í neinar byggingar-
framkvæmdir fyrr en svæðið verður
sem nýtt“, segir Gísli. Hann bendir
á að jarðvegurinn verði fluttur
og urðaður í samræmi við reglur
Umhverfisstofnunar og að alla tíð
hafi legið fyrir að í slíkar aðgerðir
þyrfti að fara áður en íbúðabyggð
risi á svæðinu.
Ekki var hægt að fá upplýsingar
um hversu mikið fyrirhugaðar fram-
kvæmdir við jarðvegsskiptin eiga
eftir að kosta. Það liggur þó fyrir
að heildarkostnaður við fyrirhug-
aða dýpkun hafnarinnar hleypur á
tugum milljóna og hluti af jarðvegs-
skiptunum er inni í þeirri tölu. ■
Ríkislögreglustjóri:
Afbrotum fækkar á milli ára
Flest auðgunarbrot eiga sér stað á bifreiðastœðum. Fœrri kynferðisbrot skráð.
m
um
Skráðum afbrotum fækkaði
2,4% milli áranna 2003 og 2004, sam-
kvæmt nýrri skýrslu ríkislögreglu-
stjóra um afbrotatölfræði fyrir árið
2004. Um 86.967 afbrot voru skráð í
málaskrá lögreglu árið 2004 en um
89.121 árið 2003.
Líkamsárásum fækkar
I skýrslunni kemur fram að auðg-
unarbrotum fækkaði um 8% árið
2004 samanborið við meðalfjölda
brota frá árinu 2000. Flest auðgunar-
brot eiga sér stað á bifreiðastæðum
eða um 27% þeirra en um 24% í íbúð-
Gamlárskvöld:
Flugvél á sveimi
í sprengjuregni
arhúsnæði. Um 277 kynferðisbrot
voru skráð hjá lögreglu sem er um
7% fækkun miðað við meðalfjölda
undanfarinna ára. Þá fækkaði til-
kynningum vegna nauðgana um 11%
en misneytingum fjölgaði hins vegar
á sama tíma. í skýrslunni kemur
einnig fram að líkamsárásum fækk-
aði um 11% miðað við undangengin
ár en þau voru alls 217 árið 2004. í
heild fækkaði skráðum afbrotum
frá árinu 2001 til 2004 um 11%.
Áhersla á almennt eftirlit
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn rannsóknardeildar lögregl-
unnar í Reykjavík, segir erfitt að
draga of margar ályktanir af þess-
ari skýrslu en vissulega séu niður-
stöður hennar jákvæðar. „Það er
að draga úr í heildina. Þeim er að
fækka ofbeldistilvikum, innbrotum
og auðgunarbrotum yfirleitt. Til-
finningin er þessi og fær stuðning í
þessum tölum. En það er ekkert víst
Blaölö/lngó
Skráöum afbrotum fækkaöi um 11% frá 2001 til 2004 samkvæmt skýrslu ríkislögreglu-
stjóra.
að við hérna í stærsta umdæminu
finnum eitthvað sérstaklega fyrir
þessum fækkunum.“ Hörður segir
margt koma til greina sem hugsan-
leg skýring fyrir fækkun afbrota.
„Ég get bara svarað fyrir okkur
hérna í Reykjavík. Við höfum verið
með áherslu á almennt eftirlit vegna
innbrota og slíks og við höfum enn-
fremur lagt áherslu á að halda uppi
eftirliti á götunni með fíkniefna-
notkun og verslun. Það er eflaust að
skila sér. En þetta eru mörg atriði
og það er svo margt sem kemur inn
í þetta og því erfitt að benda á eitt-
hvað eitt." -
Margir þeirra sem litu til himins
á miðnætti á gamlárskvöld ráku
upp stór augu þegar lítil flugvél
sást á sveimi yfir borginni, mitt í
sprengjuregninu. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Flugmálastjórn eru
engar sérstakar reglur í gildi fyrir
flug á gamlárskvöld og ekki þarf
sérstakt leyfi fyrir flugi sem þessu.
Hins vegar gilda reglur um nætur-
takmarkanir á flugi það kvöld sem
önnur. í handbók Flugmálastjórnar
segir að flugtök séu bönnuð frá 23:30
- 08:00 nema um sé að ræða neyðar-
tilvik. Hjördís Guðmundsdóttir, upp-
lýsinga- og kynningafulltrúi Flug-
málastjórnar segir að ef reglum sé
fylgt og flugvélar fljúgi í þeirri hæð
sem þær eiga að fljúga í yfir byggð,
sé engin hætta fyrir hendi. Hins
vegar geti ákveðin hætta skapast í
flugtaki og við lendingar ef skotið er
í nágrenni flugvallar. ■
UTSALA
GL.I«ILE(ÍITli FATNADl'lí
Á (iól)r VKllDI
Al.I/r AI> 80«« AFSLÁTTI R
VlOIiII) VKI.KO.MIN
Sissa Tískuhús Glæsibæ
Opiö 10-18.00 virka daga og laugardaga 10-16.00 Sími 5625110
(^) Helðskírt 0 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað
!
Rignlng, HUIsháttar Y'' Rlgnlng > ? Súlð *'T' Snjókoma
/ T
*
V
Slydda
^ j Snjóél !
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Frankfurt
Hamborg
Helslnkl
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Mallorka
Montreal
New York
Orlando
Osló
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
Vín
Algarve
Dublln
Glasgow
01
09
02
02
02
-01
-02
02
06
09
12
-09
05
18
-05
04
-05
06
01
14
07
07
eP ’
0° '
*í
v»-
ef
5 5
5
0°
*
-2
1
5 9
5
6
1
5 5
5
Breytileg
Veðurhorfur i dag ki: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýstngum frð Veðurstofu Islands
? 9
1°’
/ //
* *
Ámorgun
*?
-r