blaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 20

blaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 20
28 I VIÐTAL ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2006 blaðið / mörgu að snúast i tónlistarlífinu Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson er landsmönnum vel kunnur en hann hefur um árabil verið áberandi við tónlistarframleiðslu, lagasmíðar og uppsetningu hinna ýmsu söngleikja, auk veru sinnar í hljómsveitinni Todmo- bile. Þá birtist hann áhorfendum Idol-Stjörnuleitar á skjánum síðastliðið ár sem formaður dóm- nefndar en hann sagði skilið við þáttinn og hafa þeir Einar Bárða- son og Páll Óskar fyllt hans skarð. Hann er þessa dagana önnum kafinn við starfsemi eigin tón- vinnsluskóla auk þess sem hann leggur lokahönd á nýja barna og fjölskyldusöngleikinn „Hafið Bláa“ sem hann semur í samstarfi við Kristlaugu Sigurðardóttur, en þau sömdu einmitt Ávaxtakörf- una saman. Þorvaldur gaf sér tíma til að spjalla við Blaðið um tónvinnslu- skólann, rísandi stjörnur okkar íslendinga og íslenskt tónlistarlíf yfirhöfuð... „Það er alveg nóg að gera við skól- ann og sýninguna Hafið Bláa sem frumsýnd verður i5.febrúar,“ sagði Þorvaldur þegar Blaðið náði af honum tali fyrir skemmstu. Skólinn, sem ber nafnið Tón- vinnsluskóli Þorvaldar Bjarna, er að hefja starfsemi að nýju núna í janúar. „Við erum með hin ýmsu nám- skeið í boði, bæði við alhliða hljóð- versnám.sem við köllum tónvinnslu og söngkennslu almennt þar sem farið er vel í framkomu á sviði og hvernig fólk þurfi að bera sig t.d. í áheyrnarprufum og við upptökur í hljóðveri. Mest erum við í dægur- lagageiranum, en einnig er hægt að læra djass og blús hjá Andreu Gylfa. Kennt er á gítar, bassa og trommur en þar er valinn maður í hverju rúmi við kennsluna." Kennarar skólans hafa flestir vakið mikla athygli síðastliðin ár. Þar má til dæmis nefna Selmu Björnsdóttur, Vigni Snæ, Hrannar Ingimarsson, Roland Hartwell, Birg- ittu Haukdal, Jón Jósep auk fleiri þekktra listamanna. „Þetta eru allt saman mjög góðir kennarar. Á söngnámskeiðunum fyrir yngstu kynslóðina leiða saman hesta sína Jón Jósep, Birgitta Hauk- dal og Heiða sem söng í Idol-inu, en öll hafa þau misjafnar áherslur og móta kennsluna hver á sinn hátt. Svo finnst yngsta fólkinu auðvitað ekki verra að læra söng undir leið- sögn þessara einstaklinga," segir Þorvaldur en hann rekur skólann ásamt Vigni Snæ, lagahöfundi írafárs. Margir reyna alla sína ævi að koma sínum lögum að í tónvinnslunámi skólans er farið yfir allt frá lagasmíðunum sjálfum yfir í það að gera lagið útgáfuhæft. Þor- valdur segir tónvinnslukennsluna afar góða fyrir þá sem leggi stund á tónsmíðar. „Margir hafa hæfileikana í að semja lag og texta en það stoppar svo bara þar. Sjálfur þurfti ég að reka mig á marga veggi þegar ég var að byrja og eyddi mörgum árum í að læra hvernig standa skuli að þessu. Fólk þarf að halda rétt á spöðunum, bæði hvað fjármagn varðar og svo auðvitað þarf að fara í gegnum mikið ferli hreinlega til þess að ná almenni- legum hljómi. Fyrir fólk sem er að byrja getur þetta tekið áratugi og margir reyna alla sína ævi. Nám sem þetta kennir mönnum sem vilja koma sínum lögum á framfæri að vinna lagið í heimastúdíói, en við kennum á helstu forritin sem notuð eru. Svo vorum við að hefja samstarf við Sýr- land, en þeir eru með besta stúdíó á landinu og hluti námskeiðsins fer þar fram. Alveg frábær nýjung.“ Nú eruð þið með þekkta söngvara á ykkar snœrum í söngkennslunni. Er þetta sérsniðið fyrir þá sem dreymir um að klífa metorðastigann íþessum bransa? „Þetta er auðvitað mjög sniðugt fyrir þá sem vilja það, enda er nám- skeiðunum beint aðallega að dægur- málabransanum. Ef þig langar að stíga á stokk sem poppsöngkona þá geturðu fengið góðan undirbún- ing hjá Selmu til dæmis, en hún er auðvitað með víðtæka reynslu og búin að fara vel í allar hliðar á þessu. Þetta er auðvitað ekki bara spurning um tækni, heldur líka hvernig fólk á að bera sig og hvaða leiðir þarf að fara. Við eigum alveg nóg af efni- legu tónlistarfólki og það er mikill áhugi í tónlistarlífinu, sem er alveg frábært. Margar nýjar stjörnur að koma fram.“ Hættur í Idol-Stjörnuleit Eins og flestir vita sem fylgst hafa með Idol-Stjörnuleit vék Þorvaldur frá skjánum í nýjustu þáttaröðinni, en hann hafði verið formaður dóm- nefndar frá byrjun þáttanna. Hann segist hafa afráðið að hætta þar og snúa sér að öðru, enda margt á takteinunum í skólanum og tónlistarstarfinu. „Það er eiginlega tvennt sem réði úrslitum varðandi brotthvarf mitt úr þáttunum. Ánnars vegar fannst mér eins og ÉG PERSONULEGA væri kom- inn upp undir þak í þessu, svona ef ég tala fyrir sjálfan mig. Það var alveg frábær útkoma síðast - tvær frábærar söngkonur sem stóðu í lokin og maður var stoltur að geta varpað ljósi á þær. Idol-Stjörnuleit hefur verið gríðarlega vinsæll þáttur og það var eiginlega bara spurning hvort maður hefði nokkru við að bæta í þessu,“ segir hann en bætir svo við að sökum mikilla anna hefði eitthvað þurft að láta í minni pok- ann. „Aðalmálið er kannski það að ég er að frumsýna söngleik eftir 6 vikur og annar tekur við í kjölfarið. Það hefði því verið erfitt að koma endum saman ef maður hefði einnig verið í Idol-inu“ En hvernig líst þér á dómnefndina eins oghún erskipuð núna? „Þó svo að ég sé hættur er ég alls ekki að segja að þetta geti ekki virkað áfram. Mér finnst bæði Einar og Páll vera að standa sig helvíti vel - Einar kemur með skemmtilegan nýjan vinkil á þetta og vinnur út frá allt öðru sjónarhorni en ég gerði. Páll sér svo um að halda þessu svona hæfilega skemmtilegu og setur óneit- anlega glimmer á keppnina,“ segir hann og bætir við að það hafi verið frábært að taka þátt í uppbyggingu þáttarins. Nú hafið þið í Todmobile komið nokkrum sinnum saman eftir að þið lögðuð upp laupana hér um árið. Er stefnt að áframhaldandi samstarfi á nœstunni? „Já, við ætlum að leggja i nýja plötu. Eftir að við komum saman með Sin- fóníuhljómsveitinni fundum við að enn er eitthvað ósagt eða sungið frá þessari hljómsveit, þannig að okkur rennur blóð til skyldunnar að klára dæmið....þ.e.a.s. ef svona samstarf er einhvern tímann þurrausið. Alla- vega getum við; ég, Andrea og Eyþór varla beðið eftir því að byrja og erum reyndar farin að semja og spinna.“ Segir ekki nei við Sylvíu Nótt Auk þess að sinna skólastarfinu og setja upp sýninguna Hafið Bláa kemur Þorvaldur með innlegg í íslensku Evróvisjón keppnina, en þar verður lag hans flutt af sjón- varpskonunni og sprelligosanum Silvíu Nótt. Aðspurður um tilurð þessa samstarfs segist Þorvaldur ekki hafa þorað öðru en að taka já- kvætt í beiðni Silvíu. „Ég hafði nú hugsað mér að nota annan í þetta en hún bara þjarmaði að mér og maður segir auðvitað ekki nei við Silvíu Nótt.“ Hvernig hefur samstarfið við þessa vœgastsagt merkilegu dömugengið? „No comment11! Fólk verður bara að sjá hvernig þetta kemur út, en ég tjái mig ekkert um samstarfið sem slíkt.“ Það er greinilega nóg að gera hjá Þorvaldi um þessar mundir, en hann segist þó hafa náð að slappa vel af um jólin ásamt konu sinni og börnum. „Við flúðum í hús okkar undir Hestfjalli á Þorláksmessu og mér fannst alveg ofsalega gott að komast í sveitina. Maður losnar við streit- una og fær að vera í hreinni íslenskri náttúru. Það var einnig mjög gaman að fylgjast með yngri dóttur okkar, en hún er í 1á árs og er því að upp- lifa jólin í fyrsta skiptið raunveru- lega. Þetta er ferlega skemmtilegur timi í hennar þroska - spennan að magnast og henni er farið að finnast gaman að fá pakka,“ segir hann að lokum, sem nú er komin til byggða á ný og hellir sér í verkefnin. „ Já, nú fer maður bara að koma sér í gírinn eftir afslöppunina yfir jólahátíðarnar!“ halldora@vbl.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.