blaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 29

blaðið - 03.01.2006, Blaðsíða 29
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2005 DAGSKRÁ I 37 DAGUR EITT OG DAGUR TVÖ Fyrsti dagurinn án tóbaks leið stór- áfallalaust og reyndi lítið á staðfest- una. Ég hellti mér upp á kaffi um hádegi þegar við elsta dóttir mín stauluðumst úr rekkju. Kaffið var ilmandi og gott - sérleg jólablanda af Suðurnesjum. Það var svo gott að ég saknaði þess alls ekki að sleppa smóknum. Fyrir nýjungagirnina eina saman reyndi ég að smjatta Sýn, 22:10 X-Games 2005 Mögnuð þáttaröð þar sem íþróttir fá nýja merkingu. I aðalhlutverkum eru of- urhugar sem ekkert hræðast. Tilþrif þeirra eru í einu orði sagt stórkost- leg. Kapparnir bregða á leik á vélhjól- um, reiðhjólum, brimbrettum og hlaupabrettum. Hér er samt alvara á ferðinni því ofurhugarnir keppa um fleira en heiðurinn. ...nátthrafna Stöð 2 bíó, 00:00 Pennsylvan- ia Miner's Story (Námuslysið) Sannsöguleg sjónvarpsmynd. Árið 2002 varð námuslys í Pennsylvan- íu í Bandaríkjunum. Hópur verka- manna lokaðist inni og var ekki hugað líf. Björgunarmenn reyndu sitt besta í kapphlaupi við tímann. Aðalhlutverk: Graham Beckel, Dyl- an Bruno, Marisa Ryan. Leikstjóri, David Frankel. 2002. á sykurlausu nikótíntyggjói með mentolbragði en varð að skyrpa því eftir stutta stund. Þvílíkur viðbjóð- ur! Það má vel vera að sígaretturnar bragðist ekkert sérlega vel og lykti en verr, en tyggjó með nikótíni hljómar eins illa og það smakkast. Ég ætla þó að geyma tyggjópakk- ann ef svo skyldi fara að ég versnaði í skapinu eftir því sem á bindindið líður. Við mæðgurnar skelltum okkur svo á bíó að sjá Narníu og það var ótrú- lega ljúft að hafa tíma til að fara á salernið og í sjoppuna í hléinu í stað þess að híma úti við reyking- ar í rigningunni. Kvöldið leið álika átakalaust fyrir sig en upp úr mið- nætti helltist nikótínþörfin yfir mig af fullum styrk. Ég gramsaði í skáp- um og skúffum eftir afgangsrettum. Ég fann ýmislegt sem ég hafði verið að leita að vikum saman en ég hafði verið svo blessunarlega forsjál að losa mig við hverja eina og einustu sígarettu. Annars hefði líklega farið illa þennan fyrsta dag. Ég fór í rúm- ið örlítið skömmustuleg yfir stjórn- leysinu en ánægð með að vera kom- in þangað án þess að reykja. Dagur tvö ilmaði strax betur. Kaffi- bollinn jafngóður án smóksins, jafn- vel betri. Til vonar og vara ákvað ég að skella á mig plástri fyrir vinnu- daginn. Það er fínt að hafa komist í gegnum fyrsta daginn án hjálpar- meðala en það borgar sig ekki að vera of öruggur með sig. Litla æð- iskastið um hirslur íbúðarinnar kvöldið áður sannaði að ég þarf á hjálp að halda. Wrigley's Extra Euc- alyptus gerir líka sitt gagn og er tölu- vert bragðbetra en níkótíngúmmíið. Plásturinn er alveg að skila sínu. Mér líður nánast eins og ég sé í dömubindaauglýsingu. Léttari og frjálsari. Líkaminn og andinn alveg í takt. Þvílíkur draum- ur. Af hverju er ég ekki löngu hætt? Ég er alltént hætt núna. Ég er frjáls. R.J Reynolds, þú getur ét- ið það sem úti frýs. Skutlur á skautum er þaö nýjasta í raunveruleikasjónvarpi I dag. Skautaskutlur á skjánum Enn og aftur verður allt vitlaust vestan hafs vegna raunveruleika- sjónvarpsþáttar. Nýjasti þáttur þeirra sömu og eiga heiðurinn að baki MTV þáttarins Laguna Beach sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Sirkus ber nafnið Skautaskutlur (Rollergirls) og var fyrsti þátturinn sýndur í Bandaríkjunum í gær. í þættinum er fylgst með kon- um á hjólaskautum á skautabraut keppa sín á milli í gamalli íþrótt frá Bandaríkjunum sem var endur- vakin eftir langt hlé snemma eftir aldamótin. Þær Lux, Sister Mary Jane, Punky Bruiser, Miss Conduct, Venis Envy, Cha Cha og vinkonur þeirra gefa allt sitt í leikinn og láta ekki smáatriði eins og reglur koma í veg fyrir sigur sinn. Þeir sem höfðu séð atriði úr fyrsta þættinum áður en hann var sýndur lýstu honum með stikkorðunum: „bjór, vín, tón- list og skutlur“. Aðrir bættu svo við: „sígarettur, stelpuslagir, brjóstaskor- ur, bölv og ragn“. Það er því ekki um mjög dömulegan þátt að ræða og fer það fyrir brjóstið á sumum. Þykir þeim sem þessi samsuða á fjölbragðaglímu og raunveruleika- þáttum á hjólaskautabrautinni eigi e.t.v. heima á Internetinu en ekki í sjónvarpi. Carey vill íara á snjóbretti árið 2006 Mariah Carey er staðráðin í að læra á snjóbretti á árinu, og hefur gert það að áramótaheiti sínu. Stórstjarn- an viðurkennir að hún hafi alltaf verið of löt, og í hvert sinn sem hún hafi farið í frí upp í fjöll hafi hún eytt öllum tímanum í vitleysu því hún nennti ekki fram úr rúminu. Hún segir: „Þetta ár ætla ég að prófa snjóbretti. Ég hef verið að reyna að læra í sex ár, en það hefur bara ekki gerst enn. Mér finnst gott að sofa til 3 þegar ég er í skíðafríi, og lyfturnar loka margar klukkan 4. Þannig að ég fer bara í hátískuskíðagalla, frá Chanel, Dior eða Lagerfeld og fer svo út að versla.“ Pantanir: 577 5775 Veislu og fundarbakkar u pareiL Laugavegur 17 og Kringlunni Sími 552-6744 og 588-6750

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.