blaðið


blaðið - 03.01.2006, Qupperneq 8

blaðið - 03.01.2006, Qupperneq 8
81 ERLENDAR FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006 blaöiö Abbas hvattur til að fresta kosningum Leiðtogi Palestínumanna íhugar aðfresta kosningum ef ísraelsmenn koma í vegfyrir kosn- ingar í Jerúsalem. Háttsettir félagar í Fatah-hreyfingunni hvöttu hann ennfremur til að fresta þeim í Ijósi ófremdarástands á Gasaströnd. Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínu- manna, sagði í gær að hann myndi fresta þingkosningum í Palestínu ef ísraelsmenn koma í veg fyrir að Pal- estínuarabar í Jerúsalem geti kosið. Þetta var í fyrsta sinn sem forsetinn gaf í skyn að hann kynni að fresta kosningunum. „Við erum öll sam- mála um að Jerúsalem eigi að vera með í kosningunum. Ef hún er ekki með eru allir aðilar sammála um að það verði engar kosningar," sagði Abbas. ísraelskir embættismenn segja að enn hafi engin ákvörðun verið tekin um hvort leyfa skuli 200.000 Palestínumönnum í Jerú- salem að ganga til kosninga. Það er einkum þátttaka Hamas-samtak- anna í kosningunum sem veldur andstöðu þeirra við að kosið verði í borginni. Líklegt þykir að mála- miðlun náist um málið þar sem ísra- elsmenn vilja ekki bera ábyrgð á þvi að kosningarnar fari út um þúfur. Háttsettir félagar í Fatah-hreyf- ingu Mahmoud Abbas bvöttu hann í gær til að fresta fyrirhuguðum þing- kosningum í landinu i ljósi ótryggs ástands á Gasaströnd og hótana ísra- elsmanna um að koma í veg fyrir að íbúar í Jerúsalem geti kosið. Kosn- ingar fara fram þann 25. janúar. Ófremdarástand á Gasaströnd Ófremdarástand hefur ríkt á Gasa- strönd að undanförnu og hafa meðal annars vopnaðir hópar lagt undir sig kosningaskrifstofur, lög- regla lokað landamærastöðvum og útlendingar teknir sem gíslar. Síðast í gær lögðu um 200 lögreglumenn undir sig nokkrar opinberar bygg- ingar tímabundið í því skyni að mótmæla vangetu palestínskra yfir- valda við að koma á lögum og reglu á svæðinu. Lögreglu hefur reynst erfitt að halda aftur af því ofbeldi og stjórnleysi sem hefur geisað á svæðinu síðan Israelsmenn hurfu á braut í september. I síðustu viku var lögreglumaður skotinn til bana þegar átök brutust út á milli tveggja fjölskyldna. Mahmoud Abbas þykir hafa skað- ast á stjórnleysinu á Gasasvæðinu og innan Fatah-hreyfingarinnar óttast menn að helsti keppinautur hennar, Palestínskir lögreglumenn lögðu undir sig stjórnsýslubyggingar á Gasaströnd í gærtil að mótmæla því ófremdarástandi sem þar hefur ríkt á undanförnum vikum og mánuðum. Hamas-samtökin, muni auka fylgi sitt. ■ Sléttueldar ógna byggð: Úthverfi Oklahoma- borgar rýmd Sléttueldar ógnuðu húsum í úthverfi Oklahomaborgar í Bandaríkjunum í gær og voru íbúar þeirra beðnir um að yfirgefa þau. Eldarnir hafa valdið miklu tjóni á landi og mannvirkjum í Oklahomaríki og Texas undan- farna daga og kostað að minnsta kosti fjögur mannslíf. Slökkviliðs- menn hafa barist ötullega við eldana og sagði fulltrúi slökkviliðs í Texas í gær að tekist hefði að hefta frekari útbreiðslu þeirra. Brad Henry, ríkis- stjóri Oklahoma, hvatti fólk til að fara varlega með opinn eld en talið er að rekja megi upptök sumra sléttu- eldanna til ógætilegrar meðferðar á eldi. Hann hvatti jafnframt George Bush, forseta landsins til að lýsa yfir neyðarástandi í ríkinu. ■ Býli brennur í grennd við Guthrie í Okla- homa. »»> Aflffa þurfti á fimmta tug hvala sem syntu upp í fjöru á Suðurey á Nýja Sjálandi. Á fimmta tug hvala aflífaöir Aflífa þurfti um 40 hvali, sem synt höfðu upp í fjöru á Suðurey á Nýja Sjálandi, þegar útséð var um að ekki tækist að koma þeim aftur á haf út. Alls syntu 49 hvalir upp í fjöru í grennd við Fare- well Spit um helgina og þar af drápust 8 á ströndinni. Þetta var í annað sinn á m STYRKING OG SLOKUN FRIDUR OG RÓ Í FULLKOMINNI AÐSTÖÐ GRUNNNAMSKEIÐ HEFST 9. JANUAR ANNA BJORNSDOTTIR YOGAKENNARI YFIR 25 ÁRA YOGAREYNSLA stuttum tíma sem stór torfa syndir upp í fjöru á þessum slóðum. „I ljósi þess að það var vonlaust að geta komið hvölunum aftur í sjó- inn var okkur mest í mun að koma í veg fyrir þjáningu þeirra og að þeir dræpust löngum og kvalafullum dauðdaga,“ sagði Greg Napp dýra- verndarfulltrúi á svæðinu. Hann sagði enn fremur að hvalrekinn væri að öllum líkindum ótengdur öðrum slíkum í siðasta mánuði þegar nærri 130 hvalir syntu upp í fjöru í grennd- inni. Þá tókst að koma rúmlega 100 dýrum aftur á haf út en 21 drapst. ■ Kona ornar sér við eld í flóttamanna- búðum í borginni Muzaffarabad I Pakistan. Úrkoma tefur hjálparstarf Mikil úrkoma tafði hjálparstarf á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan annan daginn í röð í gær og jók enn frekar á ömurlegt ástand þeirra tveggja milljóna manna sem kom- ust lífs af og hafast við í tjöldum og bráðabirgðaskýlum. Nokkur tjöld féllu vegna snjóþunga og sums staðar urðu aur- og grjótskriður en ekki höfðu borist fregnir af neinum meiriháttar slysum. Sums staðar á skjálftasvæðunum mældist rúmlega hálfsmetra snjólag og veð- urstofa landsins varar við frekari úrkomu fram á helgi. Enn fremur er talin hætta á snjóflóðum í kjölfar úrkomunnar en í síðustu viku fór- ust 24 í einu slíku. ■ McDonald's-skyndibitastaðir í Noregi brutu hreinlætisreglur samkvæmt könn- un heilbrigðiseftirlitsins. Hreinlæti ábótavant hjá McDonalds Hreinlæti er stórlega ábótavant hjá veitingastöðum McDonald’s-skyndi bitakeðjunnar í Noregi samkvæml könnun norska heilbrigðiseftirlits ins. 25 af 67 veitingastöðum reynd ust hafa brotið reglur um hreinlæti á tveimur undanförnum árum og á sumum þeirra varð jafnvel varl músagangs. Þá voru matvæli sums staðar ekki geymd eins og reglui kveða á um. Nokkrir viðskipta vinir veitingastaðanna hafa fengið matareitrun á síðasta ári og þurfti að leggja einn inn á sjúkrahús. Foi svarsmenn skyndibitakeðjunnai hafa lofað bótum og betrun er hafna því að matareitrunin eigi upp tök sín hjá þeim. ■ græna iinan Opnunartimi lán-lau 11-20 YOGASTOÐ VESTURBÆJAR WWW.YOGAWEST.IS Rettur dagsins kr.990- Fljótlegt að koma við og taka með sér rétti Graena línan, Bæiarhrauni 4, S:565-2075

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.