blaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 4
4 I IWWLEWDAR FRÉTTIR
1
Leyfðar verða veiðar á 909 hreindýrum í ár, en f fyrra mátti skjóta 800 dýr.
Hreindýraveiðar
Rúmlega 1.200 um
sóknir hafa borist
í gær höfðu rúmlega 1.250 einstak-
lingar sent inn umsókn um að fá að
skjóta eitt af þeim 909 hreindýrum
sem leyft verður að skjóta á hausti
komanda. Að sögn Jóhanns G. Gunn-
arssonar, starfsmanns Hreindýra-
ráðs á Egilsstöðum eru þetta heldur
fleiri umsóknir en borist höfðu á
sama tíma í fyrra. Þá var slegið met
í fjölda umsókna þegar um 1.600
umsóknir bárust vegna þeirra 800
dýra sem þá var leyft að skjóta. Segir
Jóhann að allt stefni í að umsókn-
irnar í ár verði fleiri en á móti komi
að leyft verði að fella rúmlega 100
dýrum meira í ár en á síðasta ári.
Fáir erlendir veiðimenn
Þeir sem hafa áhuga á að komast á
hreindýraveiðar næsta haust eru
ekki ennþá orðnir of seinir að sækja
um veiðileyfi, því það er hægt að gera
fram til 14. febrúar næstkomandi. Jó-
hann segir að flestir noti tækifærið
þegar veiðiskýrslum er skilað inn
rafrænt til veiðimálastjóra til að
sækja um leyfi en fleiri leiðir séu
færar, m.a. að senda beiðni um leyfi
á netfangið hreindyr@hreindyr.is.
Undanfarin ár hefur nokkuð verið
rætt um fjölda erlendra veiðimanna
sem hingað koma til hreindýraveiða.
Á tímabili voru bundnar nokkrar
vonir um að hægt væri að markaðs-
setja veiðarnar erlendis og byggja
upp ferðamannaiðnað í kring um
þær. Það virðist hinsvegar lítt hafa
skilað sér þar sem aðeins 10 til 15
erlendir veiðimenn komi hingað til
lands á hverju ári, og ekki stefnir
í að breyting verði þar á. Jóhann
segist ekki hafa skýringar á þessu,
nema hugsanlega þær að úthlutun-
arkerfið fæli erlenda veiðimenn frá.
Hver sem uppfyllir skilyrði getur
sótt um leyfi, en síðan er einfaldlega
dregið úr innkomnum umsóknum,
í einskonar happdrætti. Það er gert
um mánaðamótin febrúar og mars,
og það er því ekki fyrr en þá sem
veiðimenn vita hvort þeir fái veiði-
leyfi eða ekki. Jóhann segir að sú
óvissa sem i kerfinu felist gæti fælt
erlenda veiðimenn frá.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Fríhöfnin ekki í
samkeppni við
íslenska verslun
Samtök verslunar og þjónustu
(SVÞ) telja óeðlilegt að fríhöfnin á
Keflavíkurflugvelli skuli vera i sam-
keppni við einkareknar verslanir
um snyrtivörur, rafmagnsvörur,
leikföng og aðra sérvöru. Kalla sam-
tökin á breytingar á tollalögum sem
takmarki vöruúrval það sem er á
boðstólum í komuverslun flugstöðv-
arinnar. f frétt á vefsíðu samtakanna
kemur fram að þau hafi lengi krafist
þess að fyrirkomulagi verslunar í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar(FLE)
verði breytt þannig að vöruúrvalið
verði einskorðað við áfengi og tóbak.
Að mati samtakanna verða versl-
anir í Reykjavík af viðskiptum auk
þess sem rikið verður af tekjum af
þeim viðskiptum. Einnig segir að
verði ekki fljótlega af þessari breyt-
ingu hafi samtökin fullan hug á því
að fylgja málinu eftir á vettvangi
EFTA.
Flugstöðvarmenn mótmæla
FLE brást við þessum ummælum í
gær og í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu segir, að það sé mat FLE að
helstu samkeppnisaðilar komuversl-
unarinnar í flugstöðinni séu ekki
verslanir í landinu. Hins vegar er frí-
höfnin að þeirra mati í samkeppni
við aðrar fríhafanarverslanir á
erlendum flugvöllum. Með því að
bjóða upp á góða og samkeppnis-
hæfa fríhafnarverslun hér á landi
sé því verið að færa verslun frá út-
löndum og til Islands. „Um leið er
það til ómældra þæginda fýrir ferða-
menn að þurfa ekki að ferðast með
tollfrjálsan varning í flugi á milli
landa ef þeir geta keypt hann á jafn-
góðum eða betri kjörum í komuversl-
uninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar,“
eins og segir í tilkynningu. Önnur
rök sem FLE beitir fyrir sig í mál-
inu eru tollamörk. Þeir benda á að
aðeins sé hægt að versla fyrir 46 þús-
und krónur í hverri ferð og má verð-
mæti hvers hlutar ekki vera meira
en 23 þúsund krónur.
m
s I
A endanum
velur þú Corolla
Corolla tiifinningin er góð
Síðustu 20 árin hefur Corolla verið mest keypti bíllinn. íslendingar treysta
Corolla og bera til bílsins tilfinningar sem gera það að verkum að þeir kaupa
hann aftur og aftur. Kannski er svarið við spurningunni, af hverju Corolla, sú
að Corolla er einstaklega ódýr bíll í rekstri, öruggur, þjónustan við eigendur
er frábær - og svo er auðvitað gott að keyra hann. Kannski er svarið
flóknara. Kannski eru það hinir óendanlegu möguleikar. Þvf þótt þú veljir
Corolla þá er valið fjölþættara. Hvaða gerð af Corolla viltu, hvaða búnað,
hvaða lit, hvaða skiptingu? Spurningarnar eru fleiri. Corolla er bíllinn þinn,
þú ræður hvernig hann er.
Á endanum velur þú Corolla.
Toyota Toyota Akureyri Toyotasalurinn Toyotasalurinn
Nýbýlavegi 4 Baldursnesi 1 Njarðarbraut 19 Fossnesi 14
Kópavogur Akureyri Reykjanesbær Selfoss
Sími: 570-5070 Sími: 460-4300 Sími: 421-4888 Sími: 480-8000