blaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 24
24 I MENNING
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Rachel Barton Pine leikur með Sinfóníuhljómsveit íslands
Undrabarnið sem horfðist
í augu við dauðann
Rachel Barton Pine. Erfiður uppvöxtur í sárri fátækt, sú ábyrgð sem iögð var á herðar
óhörðnuðum unglingi og ekki síst sú skelfilega lífsreynsla að horfast í augu við dauðann
en sleppa naumlega hefur sett mark sitt á lif hennar.
Á næstu tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands, nú á fimmtudags-
kvöld, verða flutt tvö verk sem
aldrei hafa hljómað á tónleikum hér
á landi áður. Þetta eru Fiðlukonsert
nr. 2 í d-moll, op. n, eftir Joseph Joac-
him og Sinfónía nr. 6 í es-moll op.
ni eftir Sergej Prokofíev. Fiðluleikar-
inn Rachel Barton Pine leikur með
hljómsveitinni.
Lífshlaup Rachel má kalla flest
annað en hefðbundið. Hún ólst
upp í mikilli fátækt í Irving Park
hverfinu í Chicago með foreldrum
sínum og tveimur yngri systkinum.
Þriggja ára gömul sat hún messu
í kirkju hverfisins ásamt fjölskyld-
unni og þar heillaðist hún af ungum
stúlkum sem komu fram og léku á
fiðlur. Hrifningin var þó aðallega
vegna kjólanna sem þær klæddust,
en engu að síður heimtaði Pine að fá
sams konar hljóðfæri. Eftir nokkurt
suð unga barnsins var henni komið
fyrir í námi og svo heppilega vildi
til að nágranni fjölskyldunnar var
fiðlukennari sem samþykkti að taka
við henni. Það sem foreldrar hennar
töldu fyrir víst að yrði aðeins
stundargaman snérist upp í ástríðu.
Unga stúlkan helgaði sig nám-
inu af svo mikilli elju og áhuga að
undrun sætti. Fljótlega fékk hún
einkatíma hjá Roland og Almitu
Valmos og vegna óvenjulegra hæfi-
leika stúlkunnar og ákveðni hennar
í að ná langt, var nauðsynlegt fyrir
hana að æfa í allt að átta klukku-
stundir á dag. Því varð úr að Pine
hætti í skóla en foreldrar hennar
tóku við menntun hennar. Föður
hennar gekk illa að halda vinnu
og fjölskyldan fór því að reiða sig á
tekjur stúlkunnar ungu sem smátt
og smátt varð ábyrg fyrir matarinn-
kaupum og húsnæðislánum. Aðeins
14 ára gömul var Pine orðin fyrir-
vinna fjölskyldunnar, lék á fiðluna
í brúðkaupum, veislum og á hvers
kyns mannamótum; gætti þess
alltaf að farða sig hressilega og ljúga
aðeins til um aldur.
Segja má að árið 1995 hafi minnstu
munað að fiðlan drægi Pine til
dauða í bókstaflegri merkingu. Dag
nokkurn, þegar hún einu sinni sem
oftar gerði sér ferð með lestum Chic-
ago-borgar vildi ekki betur til en
svo að fiðlutaskan hennar festist í
lestardyrum með þeim afleiðingum
að Pine dróst niður á lestarteinana.
í þessu hörmulega slysi missti hún
vinstri fót og skaddaðist alvarlega
á þeim hægri. I kjölfar þess höfðaði
hún mál á hendur Chicago Metra-
transaportation agency og voru
henni dæmdar milljónir dollara í
skaðabætur.
Erfiður uppvöxtur í sárri fátækt,
sú ábyrgð sem lögð var á herðar
óhörðnuðum unglingi og ekki sist
sú skelfilega lífsreynsla að horfast í
augu við dauðann en sleppa naum-
lega hefur sett mark sitt á líf Rachel
Barton Pine og ekki síst viðhorf
hennar til þess. I dag þjónar Rachel
Barton Pine þeirri köllun sinni að
breiða út klassíska tónlist hvar sem
hún kemur og hefur vakið athygli
fyrir aðferðir sínar við að ná eyrum
yngri hlustenda. Sjálf er hún mikill
unnandi þungarokks og nýtir sér
það til þess að kynna klassíska tón-
list. Hún heimsækir til að mynda
rokk-útvarpsstöðvar fyrir ungt fólk,
leikur þar jöfnum höndum Metall-
ica og Mozart og hrífur fólk með sér
með hæfileikum sinum og óbilandi
trú á lífið. ■
Tilnefningar til Vidur-
kenningar Hagþenkis
Höfundarnir sem tilnefndir eru til Viðurkenningar Hagþenkis.
Hagþenkir og Reykjavíkur
Akademían hafa tilnefnt tíu athygl-
isverðustu fræði- og kennslubækur
síðasta árs. I lok febrúar verður
síðan tilkynnt hvaða bók úr þessum
hópi hlýtur Viðurkenningu Hag-
þenkis fyrir árið 2005. Verðlauna-
hafinn hlýtur 750.000 krónur og
viðurkenningarskjal.
„Viðurkenningin hefur verið við
lýði frá árinu 1987 og hefur fengið
vaxandi athygli en bækur eru nú
tilnefndar til verðlaunanna í fyrsta
sinn,“ segir Viðar Hreinsson fram-
kvæmdastjóri Reykjavíkur Akadem-
íunnar, en hann hlaut viðurkenning-
una árið 2003 fyrir ævisögu Stephan
G. Stephanssonar. „Með þessu erum
við að reyna að auka athygli á fræði-
bókum sem hafa orðið svolitið út
undan í jólabókaflóðinu. Þjóðin er
ekki vel sett nema hún lesi fræði-
bækur. Hún er illa sett ef þær eru
gefnar út og enginn les þær. Ég hef
ekki tölur en félagar mínir í þessum
geira segja að það sé áberandi hversu
sala á góðum fræðibókum hefur
minnkað,“ segir Viðar og bætir
við: „Tilnefndu bækurnar eru úr-
valsbækur og það var fullt af fínum
bókum sem ekki komust á lista.“
Tilnefndar bækur
Margrét Eggertsdóttir: Barokk-
meistarinn.
Kolbeinn Stefánsson og Stefán
Ólafsson: Hnattvœðing og
þekkingarþjóðfélag
Ágúst Einarsson: Rekstrarhag-
frœði
Hrafnhildur Schram: Huldukonur
i íslenskri myndlist.
Guðni Th. Jóhannesson: Völundar-
hús valdsins.
Magnús Þorkell Bernharðsson:
Píslarvottar nútímans.
Þóra Kristjánsdóttir: Mynd á þili.
Helgi Hallgrímsson: Lagarfljót.
Kristín Björnsdóttir: Líkami ogsál.
Jón Þorvarðarson: Og égskal hreyfa
jörðina.
Óttarr Proppé fyrir framan útsöluborðið f bókaverslun Máls og menningar á Laugavegi.
Erlendar
bœkur á útsölu
I bókaverslunum Eymundsson, í
Austurstræti, Kringlunni, Smára-
lind, Mál og menningu á Laugavegi
og Bókvali á Akureyri, er hafin
útsala á erlendum bókum. „Þetta
eru eldri bækur úr búðunum sem
eru á 50 prósent afslætti. Titlarnir
skipta hundruðum, ef þeir fara
ekki yfir annað þúsundið, og eru
úr öllum bókaflokkum,“ segir Ótt-
arr Proppé vörustjóri erlendra bóka
hjá Eymundsson. Hann segir að sala
á erlendum bókum sé jöfn og góð
yfir árið. „Erlendu bækurnar bæta í
götin sem íslensk útgáfa getur ekki
fyllt upp í. Þau ár eða áratugi sem
ég hef verið í þessum bransa er salan
alltaf að aukast. Sífellt fleiri treysta
sér til að lesa ensku og meðan gefnar
eru út bækur um alla skapaða hluti
þá finnst alltaf fólk sem hefur áhuga,“
segir Óttarr. Útsalan stendur fram í
miðjan mars og á þeim tíma mun
bætast við fjöldi nýrra titla.
Sjálfsmynd þjóðar
Hólmfríður Garðarsdóttur, dósent
í spænsku, flytur erindi í Lögbergi,
stofu 102, fimmtudaginn 2. febrúar
kl. 12.05. Erindið nefnist Sjálfsmynd
þjóðar í skáldskap kvenna, en þar
kynnir Hólmfríður nýútkomna bók
sína: La reformulación de la ident-
idad genérica en la narrativa de
mujeres argentinas (Endurskoðun
sjálfsmyndar kynjanna í ritverkum
argentínskra kvenna). I bókinni
gerir Hólmfríður grein fyrir rann-
sóknum sínum á argentínskum sam-
tímabókmenntum og færir rök fyrir
því að í þeim hefði mátt sjá fyrir upp-
þotin í árslok 2001, þegar hundruð
þúsund manna, undir forystu
argentínskra kvenna gerðu borgara-
lega uppreisn gegn stjórnvöldum. ■
109 SU DOKU talnaþrautir
Lausn siðustu gátu
6 5 3 4 1 8 9 7 2
4 7 9 2 5 6 8 3 1
2 8 1 9 7 3 6 5 4
9 2 8 6 4 5 3 1 7
1 4 7 3 9 2 5 6 8
3 6 5 7 8 1 4 2 9
8 9 6 5 2 7 1 4 3
5 1 2 8 3 4 7 9 6
7 3 4 1 6 9 2 8 5
Su Doku þrautin snýst rnn
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
í hverri línu, hvort sem er
lárétt eöa lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
4 5
4 8 3 1
3 1 5 9
3 1 8
4 1 7 2 3 9
2 9 5
1 9 8 5
7 9 1 4
8 5