blaðið - 01.02.2006, Side 13
blaöið MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
VIÐTALI 13
lingar séu vissulega til í Islam rétt
eins og í öðrum trúarbrögðum. Minn
skilningur á þannig fólki er einmitt
að það sé ekki bókstafstrúað, því
þeir sem lesa t.d. Biblíuna eða Kóran-
inn og skilja þau rit bókstaflega ættu
að finna þann frið, fegurð og mann-
gildi sem þar eru predikuð. Hinir
svonefndu bókstafstrúarmenn lesa
hinsvegar Biblíuna og Kóraninn með
sérstöku hugarfari, sem miðar að því
að leita að illu í heiminum, frekar en
fegurð í kristinni trú, íslam eða gyð-
ingdómi - leita að hlutum sem valda
þjáningu annarra. Ef boðskapur
þessa bókstafstrúarmanna er skoð-
aður má sjá að hann er svipaður, burt-
séð frá því hvaða trú þeir aðhyllast.
Þetta eru einstaklingar sem telja sig
hafa einkarétt á Guði, einkarétt á því
að túlka spámenn hans og einkarétt
á því að dæma aðra. íslam er falleg
trú, sem boðar frið, sátt og samlyndi
í mannlegu samfélagi.
Að láta sér detta í hug að allir mús-
limar séu hatursfullir bókstafstrú-
armenn er furðulegt - fimmtungur
mannkyns eru múslimar og þú getur
rétt ímyndað þér ástandið ef fimmti
hver maður sem þú hittir væri geggj-
aður morðingi. Til er snargeggjað
fólk innan íslam sem drepur sak-
laust fólk í nafni trúarinnar, rétt eins
og til er snargeggjað fólk í kristni,
líkt og ástandið í írak, Afghanistan
og Palestínu bendir til - stríðin þar
eru gerð í nafni lýðræðis og krist-
inna gilda. Vandamálin verða til
þegar einhver þjóðfélagshópur þyk-
ist æðri en aðrir og ætlar sér sérstakt
hlutverk af hálfu guðs - þá gleymist
auðmýkt og undirgefni gagnvart ná-
unganum sem boðuð er í flestum
trúarbrögðum."
ísrael í hag að sverta múslima
Telur þú að íslam og arabaheim-
urinn séu sýnd í réttu Ijósi í vest-
rœnumfjölmiðlum?
„Nei, það held ég ekki, ekki síst í ljósi
ástandsins sem er búið að vera sið-
asta áratuginn milli vesturheims og
Islam. Dregin er upp svört mynd af
ástandinu í arabaheiminum sem er í
raun ekki rétt - og svo má spyrja af
hverju fréttaflutningurinn var ekki
svipaður fyrir fimmtíu árum, þegar
ástandið hvað varðaði menntun og
pólitík var mun verra. Það eru nátt-
úrulega gamlir nýlenduherrar sem
stýra þessari umfjöllun mikið og
hún litast líka af vandanum milli
ísraels og Palestínu; það er klárlega
ísrael i hag að sverta múslima. Það
er ítrekað einblínt á það versta í
fréttaflutningi sem tengist Islam og
fjölmiðlar gerast ítrekað uppvísir af
því að taka viðtal við fáfróða og illa
upplýsta fjallabúa í Afghanistan, þar
sem lífið hefur ekki breyst í 1400 ár.
Og þessir menn, ásamt hryðjuverka-
mönnum eru gerðir að fulltrúum ís-
lam í vestrænum fjölmiðlum, meðan
staðreyndin er sú að innan íslam
þrífst öflugt fræðasamfélag sem
vinnur að upplýsingu. Þess má svo
geta að íslam vaxa örast allra trúar-
bragða í heiminum - vill fólk trúa
því að allir sem ganga trúnni á vil
séu svona vitlausir?“
Tjáningarfrelsi fylgir ábyrgð
Hver er þín afstaða til teiknimynd-
anna af Múhameð spámanni
sem danska dagblaðið Jyllands-
Posten birti á sínum tíma og
hefur vakið mikla ólgu innan
múslimaheimsins?
„Mér þykir athæfi dagblaðsins
danska vera mjög ámælisvert. I Is-
lam er bannað að teikna myndir og
gera styttur af spámönnum eða guð-
legum verum - ekki Múhammeð,
Jesú, Móse eða neinum öðrum. Það er
litið svo á að þetta sé heilagt fólk sem
við getum aldrei gefið rétta mynd af.
Ég er mjög hlynntur óheftu tjáningar-
frelsi og öllu sem því fylgir - það þarf
að virða og varðveita - en því fylgir
ábyrgð. Þó ég búi við tjáningarfrelsi
þýðir það ekki að ég þurfi vísvitandi
að móðga náungann með því.
Myndirnar í Jyllands-Posten fara
langt handan þess að vera einfaldar
skopmyndir, jafnvel sé litið hjá því
að með því athæfi einu að birta þær
eru forsvarsmenn blaðsins að ganga
vísvitandi móti boði sem við teljum
heilagt. Þetta eru fordómafullar
myndir og í þeim er pólitískur boð-
skapur, það er það sem er pirrandi
við þetta allt saman. Hvaða tilgangi
eiga þær að gegna? Upplýsa fólk og
fræða? Nei, með þessum myndum er
einungis verið að ýta undir fordóma
gagnvart stórum hluta mannkyns.
Hvað ertu að segja um múslima
þegar þú teiknar mynd af helsta spá-
manni þeirra með túrban sem er eins
og sprengja í laginu? Hvaða skilaboð
gefur það? íslam er bara sprengjur og
morð? Og nú verður að gæta að því
að upp undir 5% Dana eru múslimar
- hvaða skilaboð eru myndirnar til
þeirra?
Ég sýni mitt tjáningarfrelsi í verki
með því að kaupa ekki danskar vörur
og með því er ég ekki að móðga
neinn - bara tjái mig og það á mjög
meinlausan máta, því ég er ekki að
segja neitt um Dani eða danskar
vörur með því. Ég vona að fólk læri
af þessu, læri að tjáningarfrelsi fylgir
ábyrgð. I sumum löndum þykir ekki
athugavert að brenna þjóðfána, en ég
er hræddur um að einhverjir myndu
yggla sig ef ég færi niður á Lækjartorg
og tendraði fána þar, eðlilega. Það sem
ég er að reyna að segja er að þjóðir og
hópar hafa sína siði, venjur og hefðir
sem taka verður tillit til, eigum við
að geta lifað í sátt og samlyndi. Og ég
held að það sé vel gerlegt.“
Stoltur af palestínsku þjóðinni
Salman er sem áður sagði Palestínu-
maður að upplagi og heimsækir fóst-
urjörð sína reglulega. Hann á þar
enn fjölskyldu og vini, þrátt fyrir að
hafa flust burt á unga aldri („Við fjöl-
skyldan héldum reyndar ættarmót
á Snæfellsnesi í fyrrasumar, það var
voðalega gaman.“). Hann segist vera
stoltur af palestínsku þjóðinni vegna
nýafstaðinna kosninga, þar sem
Hamas-samtökin sigruðu með yfir-
burðum. „Þetta voru frábærar kosn-
ingar,“ segir Salmann, „það var allt
að 80% kjörsókn á vissum stöðum og
hún fór hvergi undir 70%. Ég tel þetta
sýna að palestínska þjóðin er nægi-
lega þroskuð til þess að eignast eigið
ríki, fái hún tækifæri til þess. Með
því að kjósa Hamas var þjóðin að
losa sig við spillingu sem hafði grass-
erað og koma sér vonandi upp sterkri
stjórn sem er í stakk búin til að takast
á við vandamálið með ísrael. Fráfar-
andi stjórn var allt of eftirgjöful, nú
held ég að komin sé sterk stjórn sem
kannski knýr Israel til samninga.
Allt tal um að Hamas séu hryðju-
verkasamtök er á röngum forsendum,
held ég. „Við höfum okkar ályktanir
frá Sameinuðu þjóðunum og við
förum,“ segja þeir - og ég held að það
eigi að taka mark á því. Ekki fleiri
útúrsnúninga. Mér sýnist sem íslend-
ingar séu loks farnir að sjá að þetta
ástand fyrir botni miðjarðarhafs
gengur ekki til lengdar og að ísrael er
í mörg ár búið að ljúga og plata þá og
aðrar þjóðir með því að lýsa Palestínu-
mönnum sem árásaraðilum í þessari
deilu. Við höfum misst okkar heimili
og land, helmingurinn af þjóðinni er
ennþá í flóttamannabúðum eftir 50
ár. Núna vilja þeir hræða heiminn
með því að kalla Hamas hryðjuverka-
hóp. Fólk þarf að vita hið sanna. Man-
dela var einu sinni kallaður hryðju-
verkamaður. Ghandi líka.“
haukur@vbl.is
Úrval Ijósa á frábæru verði!
14.980-
Verð áður: 19.970-
990-
Verð áður: 1.990-
/
1.990-
Verð áöur: 2.990-
1.990-
Verð áður: 2.890-
\ i-
\ / \
2.990-
Verð áður: 3.890-
11.740-
Verð áður: 18.850-
5íT® tnmnl
jitnT pLmrnnB
Rafkaup
Ármúla 24 • S: 585 2800
Opið lau.; 11:00 -16:00
4.990-
Verð áður: 6.960-
2.990-
Verð áður: 3.890-