blaðið - 01.02.2006, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÖAR 2006 blaAÍ6
16 I FERMINGAR
Metþátttaka í borgaralegri fermingu í ár:
Styrkjast sem ábyrgir borgarar
Borgaraleg ferming er valkostur
sem sífellt fleiri börn ákveða að nýta
sér ár hvert. „Borgaraleg ferming
er valkostur í stað kirkjulegrar
fermingar fyrir unglinga sem eru
ekki kristnir en vilja samt halda upp
á þessi tímamót í lífinu,“ segir Hope
Knútsson, upphafsmaður borgara-
legra ferminga á íslandi. Fyrst var
fermt með þessum hætti hér á landi
árið 1989. „Ég var búin að heyra af
þessu frá öðrum Norðurlöndum,
einkum Noregi þar sem þetta
hefur farið fram frá því snemma á
6. áratugnum," segir Hope um það
hvernig hún kynntist borgaralegum
fermingum. „Ég skrifaði grein í dag-
blað hér á landi þar sem ég sagði
frá því að börnin mín ætluðu sér
að fermast borgaralega, útskýrði
hvernig þetta væri gert í Noregi og
spurði hvort það væru fleiri hér á
landi sem hefðu áhuga á þessu. Sím-
inn byrjaði að hringja og hefur ekki
stoppað síðan. Það sem ég ætlaði að
gera einu sinni, fýrir börnin mín,
er orðið að ævistarfi mínu. A.m.k.
hugsjónastarfi,“ segir Hope og hlær.
I kjölfar fermingarinnar 1989 fór
Hope ásamt öðrum að leggja grunn-
inn að stofnun félags í kringum
borgaralegar fermingar og ári síðar
var Siðmennt, félag siðrænna húm-
anista á Islandi, sett á laggirnar og
er Hope formaður þess. Hún segir
fjölda þeirra sem fermast með
borgaralegum hætti sífellt vera að
aukast og er metþátttaka í ár, en nú
eru börnin 129 talsins. Er það 40%
aukning frá síðastliðnu ári, sem var
einnig metár.
Læra að vera ábyrgir borgarar
Hope segir að þátttakendur í borg-
aralegri fermingu þurfi fyrst að
sækja 12 vikna námskeið. „Nám-
skeiðið snýst aðallega um siðfræði
og mannleg samskipti. Við fræðum
börnin um hvað það þýðir að vera
fullorðin manneskja og reynum að
kenna þeim að taka ábyrgð á eigin
Glæsilegar lermíngarveíslur lyrír litla sem stóra hópa,
hvort sem er í salarkynnum okkar eða út í bæ
VEISLUÞJOIMUSTA
S.5S5-4477ogS55-1857 * gaflinn;,gaflinn.is • (jaflinn.is
aa/vjcvóv/s/
J/)/íyuí/>o/v/ • .s'/ini/•/>/•<n/<)';to/a • .\//ia/'c//a//aii/io/'4
/a/^///ad/>or<) • /a// />(>/•<) • t/a/s// /l/ad/o/'d
■s/xv/t.s/'/ /i/ail/o/'il • au.s/a/'/t.s// /t/ail/oril
/x/.s/'i://i/' .s/ci/arA/ail/o/'o • .syáoa/•/•<•//a/'//a<J/o/'<)
■S/<>/ 'OCI.s/ll/o/'d
Frá borgaralegri fermingarathöfn í fyrra
Hope Knútsson
hegðun og skoðunum," segir Hope.
Hope segir að merking orðsins ferm-
ing sé „styrking“ og það sé nákvæm-
lega það sem þau séu að gera; að
styrkjast í þeirri ákvörðun að verða
ábyrgir borgarar.
„I athöfninni taka svo börnin sjálf
mjög virkan hátt. Þau koma fram
og spila á hljóðfæri, lesa ljóð, flytja
ávörp og öll athöfnin er mjög hátíð-
leg og falleg. Við fáum líka tvo utan-
aðkomandi ræðumenn sem flytja
ávörp um þýðingu þessara tíma-
móta og rétt fólks til þess að vera
öðruvísi," segir Hope.
Fermingar kirkjunnar of snemma
Hope segir að margs konar ástæður
liggi að baki ákvörðun barna um að
fermast borgaralega. „Flestir eru
ekki alveg tilbúnir að strengja trúar-
heit til lífstíðar og vita ekki nákvæm-
lega hvað þau trúa á, enda ekki
nema 13 ára,“ segir Hope og bætir
við að ekkert sé því til fyrirstöðu að
þeir sem fermist borgaralega taki
trú síðar meir. „í nokkrum tilfellum
hafa börn bæði gengið til prests og
sótt okkar námskeið og ákveðið að
því loknu hvora athöfnina þau vilja
frekar“, segir Hope. „Við berum
mikla virðingu fyrir krökkum
sem fermast í kirkju vegna ein-
lægrar trúar. En annars er það bara
hræsni.“
Hún segir sína skoðun vera að
börn séu of ung til að taka ákvörðun
um að strengja trúarheit þegar
þjóðkirkjan áætlar að þau geri það.
,Okkur finnst að fermingaraldurinn
eigi að vera frjáls svo að krakkarnir
geti gert þetta þegar þau eru tilbúin,"
segir Hope að lokum.
Heimasíða Siðmenntar er á slóðinni
www.sidmennt.is.
Fermingarbörn flykkjast í hárgreiðslu, gervineglur ogförðun:
Fín á fermingardagimi
Fermingardagurinn er mikið
tilhlökkunarefni fyrir flesta ung-
linga, enda táknar hann vígslu í
fullorðinna manna tölu. Það er
þvi heilmikill undirbúningur og
vitanlega vilja blessaðir ungling-
arnir líta sem allra best út. Enda
er líka oftar en ekki farið til
ljósmyndara og teknar myndir
sem síðan eru vitnisburður dags-
ins um alla framtíð. Stúlkur og
drengir flykkjast því í förðun, hár-
greiðslu og jafnvel gervineglur
fyrir daginn mikla.
Samkvæmt Rósu Björk Hauks-
dóttur hjá Neglur og list er alltaf tölu-
vert um það að stúlkur fái sér gervi-
neglur. „Það koma fleiri og fleiri
stúlkur ár hvert en yfirleitt halda
þær ekki nöglunum lengi heldur er
þetta meira bara fyrir fermingardag-
inn sjálfan. Oft eru þetta stelpur sem
naga á sér neglurnar og vilja vera
snyrtilegar.“ Linda Aðalbjörnsdóttir
hjá Heilsu og fegurð tekur undir það
og segir að stelpurnar vilji vera fínar.
,En við setjum ekki hvaða neglur
sem er á fermingarstúlkur, þetta eru
litlar og nettar neglur.“
Strákar og stelpur koma í förðun
Linda talar einnig um að það sé vin-
sælt að koma í förðun fyrir fermingu,
en það á við um stráka og stelpur.
Við förðum fermingarbörn rétt
eins og þau séu ekki með farða á sér.
Sumar fermingarstúlkur fá sér snyrtilegar
og nettar gervineglur fyrir athöfnina.
Strákar sem eru mjög bólóttir koma
líka og fá farða. Stelpurnar eru yfir-
leitt farðaðar með fölbleikum tón
og litlu glossi. En það eru alls ekki
allar stelpur sem koma í förðun,
það er mjög misjafnt." Kristín
Stefánsdóttir, skólastjóri Förðun-
arskóla Rifka segir að útskrifaðir
nemendur hennar fari mikið á
hárgreiðslustofur til að farða ferm-
ingarstelpur. „Þetta er mild förðun
sem dregur fram einkenni þeirra
án þess að þær líti út fyrir að vera
farðaðar og er mikið til gert vegna
myndatökunnar.“
Liðir og uppsett hár
Steinunn Ósk Brynjarsdóttir á hár-
greiðslustofunni Mojo/Monroe
segir að hárgreiðsla fermingar-
stelpna sé frekar látlaus á fermingar-
daginn. „Það er mikið um liði og
eins er allt hárið tekið upp. Þetta
eru voða sætar greiðslur. Það er lítið
um hárskraut núna en í fyrra var
hárið skreytt með svona litlum fiðr-
ildum. Ég nota líka litlar perlur og
pallíettur en það er lítið um blóm
eins og var alltaf.“
svanhvit@bladid. net
Jóhannes Longjjósmyndari
www.ljosmyndarinn.is