blaðið - 01.02.2006, Síða 20
20 I HEIMILI
MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Heimili i hitanum
Fasteignir á Spáni verða vinsœlli meðal íslendinga
Tískusveiflur
í pottablómum
Umpottun og áburðargjöf mikilvœg
,Það er mikið um að fleiri en ein
fjöldskylda fjárfesti saman i fast-
eignum á Spáni segir Einar Guð-
mundsson hjá Heimili fasteignasölu.
Einar segir mikla aukningu hafi
orðið á húsnæðiskaupum f slendinga
á Spáni bæði til nýtingar allan árs-
ins hring og eins til að nýta í sumar-
fríum og öðrum styttri fríum. „Þá er
nokkuð um að fólk sem er að ljúka
starfsævinni kaupi sér fasteignir til
að nýta yfir vetrarmánuðina enda er
hitastig á þessum slóðum með því
heitasta í Evrópu allt árið um kring.
Svæðið við Costa Blanca strönd-
ina hefur einnig vakið athygli fjár-
festa sem veðja á að fasteignir haldi
áfram að hækka í verði eins og
reyndin hefur verið og spár gera ráð
fyrir.“ Um næstu helgi halda Heim-
ili fasteignasala ásamt fasteignasöl-
unni Gloria Casa sem er lögskráð
fasteigna- og leigumiðlun á Spáni,
alfarið í eigu íslendinga, kynningu
á fasteignum á Spáni í Perlunni.
Kynntar verða eignir á Torrevieja-
svæðinu við Costa Blanca ströndina.
„Golfáhugamenn eru mjög hrifnir
af þessu svæði því þarna er fjöldi
golfvalla og æfingasvæða og má þar
nefna þrjá 18 holu golfvelli í Villa-
martin, Las Rablas og Campoamor
í fallegu umhverfi. Einn fyrirlesara
á kynningunni um helgina er ein-
mitt Þorsteinn Hallgrímsson, marg-
faldur Islandsmeistari í golfi en
hann hefur leikið á öllum þessum
völlum og gerir þeim góð skú.“
Beint flug yfir sumarið
Einar segir tiltölulega einfalt sé að
leigja eignir á Spáni út til annarra
Islendinga hluta úr ári og aðstoðar
leigumiðlun Gloria Casa fólk við
það. „Þá er orðið mjög auðvelt að
komast til þessa svæðis því beint
flug er frá Keflavík til Alicante frá
páskum og langt fram eftir hausti.
Þar á meðal eru lággjaldaflugfélög
svo ferðakostaður ætti ekki að vera
mjög íþyngjandi.
Húsnæði á þessu svæði er al-
mennt ódýrara en húsnæði á íslandi
en verð fasteigna fer frá 5 milljónum
og uppúr. Við erum með húsnæði
af öllum stærðum og gerðum, bæði
nýbyggingar og notað húsnæði. Þess
má geta að á sýningunni verða full-
trúar Escudero Promotores sem er
einn virtasti byggingaraðilinn á
þessu svæði og Hrafnhildur Eiríks-
dóttir sem er útibústjóri Cam spari-
sjóðsins sem er stærsti sparisjóður-
inn á Costa Blanca ströndinni. Hún
mun veita allar upplýsingar um fjár-
mögnun fasteigna á Spáni.“
Einar hefur sjálfur verið á þessu
svæði og segir að þarna sé mikil
uppbygging og að svæðið bjóði upp
á ýmsa afþreyingu fyrir utan golfið.
,Þarna er hægt að finna afþreyingu
fyrir alla fjölskylduna og frá Torre-
veieja er stutt í aðrar borgir eins og
t.d. Alicante, Cartagena og Murcia.
Það er lika mikill kostur að verðlag
er talsvert lægra en hér heima.“
Einar hvetur fólk til þess að koma
á sýninguna í Perlunni um helgina
og kynna sér málin og e.t.v að láta
drauminn rætast.“ _
hugrun@bladid.net
,1 skammdeginu þurfa pottaplöntur
minni vökvun en í annan árstíma“,
segir Ásdís Lilja Ragnarsdóttir, jgarð-
yrkjufræðingur í Blómavali. Ásdís
segir það fara eftir gerð plöntunnar
hversu mikla vökvun hún þurfi.
Þykkblöðungar eins og jukkur og
plöntur með þykkum stofni þurfa
litla vökvun og eiga að þorna alveg
upp á milli. Það getur jafnvel nægt
að vökva þær einu sinni í mánuði á
meðan blómstrandi plöntur þurfa
meiri vökvun og mega ekki þorna.
Upp úr mánðamótum febrúar-
mars hefst umpottunartími plantn-
anna en þá hefst vaxtartími margra
þeirra. Þegar skipt er um potta er
gott að hafa þá 2-4 sentímetra stærri
en þann gamla og setja síðan nýja
mold í pottinn. Það þarf að umpotta
öllum plöntum og þegar ræturnar
fara að fylla út í pottinn kallar það
á stærri pott. Tveimur vikum eftir
umpottun er gott að gefa þeim
áburð og yfir sumarið
þarf að gefa blómum
áburð í hvert
skipti sem þær
eru vökvaðar."
Ásdís segir
bestu leiðina
til að kanna
raka plönt-
unnar að
stinga fingri
ofan i pottinn.
Einnig er hægt
að fá rakamæli
sem er stungið ofan í mold-
ina og þannig hægt að fylgjast
með raka blómsins.
„Blómstrandi plöntur eru yfirleitt
einærar og blómgunartími þeirra
ekki nema 3-4 mánuðir þó hægt
sé að halda lífinu í þeim lengur.
Blóm hafa lækkað
í verði og það
hefur gert fólki
auðveldara að
skipta blómum
út þegar þeirra
tími er liðinn.
Einnig er hægt
að fá blómstrandi blóm eins og Ha-
wairós og St. Paulus sem eru alltaf
að blómstra."
Ásdís segir tískusveiflur í potta-
blómum og segir orkedíu mjög
vinsæla núna en blómgunartími
hennar eru 3-5 mánuðir. „Bonsai er
afbrigði sem hefur einnig verið mjög
vinsælt. Blómið er haft í litlum potti
og yfirvöxtur klipptur reglulega.
Þessi planta er lítil og til í ýmsum
afbrigðum en hún má ekki þorna og
þarf mikla umönnun."
Ásdís segir að þegar fólk fer í sum-
arfrí sé mikilvægt að vökva blómin
vel og geyma þau á skuggsælum stað.
Hún segir að það sé í lagi að skilja
stærri blóm eftir í viku til hálfan
mánuð en blómstrandi blóm þola
ekki svo langan tíma án vökvunar.
hugrun@bladid.net
Rúmið
uppáhaldsstaðurinn
.Rúmið er uppáhaldsstaðurinn á
heimilinu og þar geri ég allt nema
borða og horfa á sjónvarp", segir
Valdimar Grímsson fyrrum hand-
boltakappi og eigandi Lystadúns
Marco. „Ætli ég hafi ekki átt ein 5-6
rúm um ævina en núna á ég amer-
ískt rúm með heilsudýnu. Þetta rúm
keypti ég fljótlega eftir að ég keypti
verslunina fyrir þremur árum
síðan.“
Valdimar segist leggja mikið upp
úr því að fá góða hvíld og það sé
ástæða þess að ekki sé sjónvarp í
svefnherberginu. „Ég vil hafa sem
minnst áreiti í svefnherberginu en
núna þegar Evrópukeppnin í hand-
bolta stendur yfir væri gaman að
eiga stillanlegt rafmagnsrúm, hafa
sjónvarp í herberginu og horfa á
boltann í rúminu." Valdimar segist
ánægður með frammistöðu íslend-
inga á Evrópumótinu í handbolta
hingað til og bíður spenntur eftir
næstu leikjum.
„Annars á ég mjög stórt og gott
sjón-
varp af
Phillips
gerð sem
dugar mjög vel.“
Þó svo Valdimar þurfi
að sitja í stofunni og horfa á sjón-
varpið á hann samt mjög góðan
Lane hvíldarstól sem hann notar.
„Næst á eftir rúminu er gamli skrif-
borðsstóllinn minn sennilega uppá-
haldshluturinn á heimilinu. Þennan
stól hef ég átt síðan í menntaskóla og
hann stenst tímans tönn fyllilega.“
hugrun@bladid.net
Skápatiltekt
Hver kannast ekki við að eiga fullan
skápa af fötum en samt ekkert til að
vera í. Þegar nánar er að gáð eru
skáparnir fullir af fötunum sem
við erum hætt að nota eða notum
ekki dagsdaglega. Alltaf er hægt
að gera góð kaup og engin ástæða
til að geyma hnörkaðar peysur,
föt sem passa ekki eða föt sem
við einfaldlega nennum ekki að
ganga í lengur.
Hér á eftir koma nokkrir
nytsamlegir punktar í
skápatiltekt
1) Tœmib skápinn.
2) Flokkið föt eftir því hvort þeim
eigi að henda, senda á fatasafnanir eða
koma fyrir ígeymslunni.
3) Góð þumalfingursregla er að föt sem
ekki hafa verið notuð í sex mánuði er hægt að
'efa áfatasafnanir.
4) Setjið föt sem
aðeins eru notuð sumar
eða vetur (stuttbuxur og þykkar
peysur) í efri skápa eða annarsstaðar þar sem
þau eru ekki fyrir en auðvelt að ná tilþeirra.
Norðurlandabúar flokka fötin eftir árstíðum
og sœkja sumarfötin í geymsluna að vori og
vetrarfötin að hausti. Veðrátta hér gerir e.t.v.
ekki ráð fyrir svo skörpum skilum en samt er
hcegt að gera þetta að einhverju marki.
5) Hendið staka sokknum efhinn hefur ekki
fundist í nokkrun tíma.
6) Brjóstahaldarinn sem hefur tapað spöngunum íþvotti getur farið sömu
leið.