blaðið - 01.02.2006, Blaðsíða 25
blaðið MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRÚAR 2006
HEILSA I 25
BlaÖiÖ/Steinar Hugi
Ekki nota tannkrem
á gervitennurnar!
Hreinsun gervitanna ábótavant
6 góð ráð fyrir
gervitannanotendur:
• Bursta tanngóminn minnst tvisvar
á dag .með Maxil tannsápu og
gervitannabursta
NYLÍNA Á FRÁBÆRU VERÐI
Margir gervitannanotendur þurfa
að skipta um gervigóm mun oftar en
ætla þyrfti sökum þess að tennurnar
eru hreinsaðar með röngum hætti
sem leiðir til þess að þær skemmast.
fris Bryndís Guðnadóttir er tann-
smíðameistari með klínísk réttindi
og starfar á Aðaltannsmíðastofunni
í Hátúni 8. Segir hún að gervigómar
eigi venjulega að endast í 6-io ár en
alítof algengt sé að fólk komi eftir
mun skemmri tíma og þurfi að
skipta um góm og hafi þá jafnvel
fengið sýkingu. „Algengt er að fólk
fái sveppasýkingu og slímhúðabólgu
undir gervigóma og er það í flestum
tilvikum vegna þess að fólk hreinsar
tennurnar ekki nógu vel og gengur
of lengi með illa passandi tennur,“
segir Iris.
Tannsápur, ekki tannkrem
„Það eru til sérstakar tannsápur sem
eru ætlaðar fyrir gervitennur og
slímhúð munnsins,“ segir fris og
telur að algengt sé að gervitannanot-
endur viti ekki af þessum sápum.
íris segir að algengur misskilningur
meðal fólks sé að nota tannkrem til
að hreinsa gervitennurnar en það sé
þeim hins vegar skaðlegt. „I tann-
kremi er svonefndur slípimassi sem
rispar þær og svo sitja bakteríurnar
í rispunum.“ Segir hún að dæmi séu
um að fólk hreinsi gervitennur með
uppþvottalegi eða handsápu, sem að
á árum áður hafi verið viðurkennt
en þyki ekki boðlegt í dag.
„Upplýsingastreymið hefur einfald-
lega ekki verið alveg í lagi og ástæðan
fyrir því að fólk er að hreinsa tenn-
urnar vitlaust er að það hefur ekki
nægilega vitneskju.“ Hún segir að þó
sé rúmur áratugur síðan tannsápan
gerði vart við sig á íslandi. íris segir
að einnig séu til freyðitöflur sem
hægt sé að setja í vatnsglas og láta
tennurnar liggja í en þó komi ekkert
i stað þess að bursta gervitennurnar
kvölds og morgna.
Fjöldi fólks notar gervitennur
íris segist mæla eindregið með
vörum frá danska framleiðand-
anum Maxil en þær eru gerðar úr
náttúrulegum efnum. „Frá þessum
framleiðanda er hægt að fá gel, fljót-
andi sápu, krem, úðabrúsa og svo
eru sérstök efni tif að hreinsa tann-
steininn. Nota á mjúkan tannbursta
fyrir slímhúð munnsins og annan
harðan fyrir gervigómana.“ Iris þver-
tekur fyrir að efnin séu kostnaðar-
söm og segir þau á svipuðu verði og
venjuleg tannkrem. „Þessar vörur
eiga að fást í velflestum apótekum,“
bætir hún við.
Aðspurð segist íris telja að hér-
lendis noti í kringum 70% af fólki
65 ára og eldri gervitennur. Segist
hún með öllu ósammála því að gervi-
tennur séu á leiðinni burt, þvert á
móti noti fjöldi fólks slíkar tennur
og það muni halda áfram.
íris segir að misjöfn verð séu í
gangi á markaðnum en Trygginga-
stofnun niðurgreiðir að jafnaði
50% eða 75% af verði gervitanna
fyrir öryrkja og 67 ára og eldri. Fer
það eftir því hvort þeir hafi tekju-
tryggingu eða ekki. Hjá Aðaltann-
smíðastofunni er t.a.m. boðið upp
á gervitennur í efri og neðri góm
á 120 þúsund krónur og er þá allt
innifaUð.
• Bursta slímhúð gómsins og tungu
með mjúkum Maxil bursta.
• Skolið gervitennur eftir hverja mál-
tíð efhœgt er að koma því við.
• Hreinsa tennurnar með tóbaks- og
tannsteinshreinsi einu sinni í viku.
• Leita tilfagfólks einu sinni á ári og
láta yfirfara tennurnar.
• Efekki er sofið með tennurnar skal
láta þær liggja í vatnsbaði með
tannsápuyfir nóttina
bjorn@bladid.net
(ris Bryndís Guðnadóttir
kr 129.000
TT NYTT
ÝTT NÝTT
HÚSGAGNAVERSLUN
TOSCANA
ggTETI SMIÐJUVEGI 2, KÓP S:587 6090
HÚSGÖGNIN FÁST EINNIG / HÚSGAGNAVAL. HÖFN S: 478 2S3S
220x90 kr. 45.700 -
160x90 kr. 39.900.-
stóll kr. 19.800 - —J