blaðið - 08.02.2006, Síða 1
Hestakonur, munið konukvöldið I kvöld klukkan 19:30 í Smáralindinni.
Hulda Gústafsdóttir verður með fyrirlestur. Léttar veitingar í boði.
STAR 9$ MENN
Gengið inn í Smaralindina að ofan, við Nóatún/Landsbankann.
Frjálst,
óháð &
ókeypis!
32. tölublað 2. árgangur
miðvikudagur
8. febrúar 2006
Sérblað um
vinnuvélar fylgir
Blaðinu
ídag
| SfÐUR 13TIL 20
■ ERLENT
Leiðin til framfara
er löng
René Préval spáð
sigri í forseta-
kosningunum
á Haítí
| SfÐA 10
■ INNLENT
Uppsagnir þeirra
lægst launuðu
vofa yfir
Starfsgreina-
sambandið vill
hækka lægstu
laun | sIða 6
■ ERLENT
Of mikið gert
úr hættunni á
Lítil hætta á að þeir
geti komið sér upp
gereyðingar-
vopnum | sIðas
■ HEILSA
Er þunglyndi|
eðlilegt?
ífebrúarfinna
margirfyrir
þungri lund
| SÍÐA 24
Höfuðborgarsvæðið
meðallestur
70,7
51,0
39,7
*o K W
«5 *ö
»5
m XI ro S JO C = i- *o 15 18,7 w m
‘<D 0 ro >
Smm LJL , 2 “I
Samkv. fjölmiðlakönnun Gallup október 2005
Reuters
Stuðningsmaður Jihad-samtakanna spúir bensíni yfir brennandi danskan fána á mótmælafundi í Betlehem á Vesturbakkanum.
Skopteikningum Jótlandspóstsins var mótmælt víða um heim í gær og í Afganistan féllu að minnsta kosti fjórir mótmælendur eftir að í
brýnu sló á milli þeirra og friðargæsluliða NATO.
Drýgir kókið
sitt með vatni
Sparsemi er dyggð sem er ekki
öllum gefin. Magnús Guðmundsson
er hins vegar ákaflega nýtinn piltur
sem kann fjölmargar aðferðir til að
láta hluti endast og nýtast betur. Ein
aðferðin sem hann beitir er að bæta
vatni út í gosdrykki og ávaxtasafa
til að drýgja þá. „Þetta snýst um
að vera nægjusamur og Iáta sam-
félagslegan þrýsting um neyslu-
venjur ekki á sig fá,“ segir hann í
viðtali við Blaðið. Það er hins vegar
mikill munur á að vera nýtinn og
nískur. Þannig leyfir Magnús sér
ýmislegt svo sem
reglulegar bíó-
ferðir og kaupir
hann oft fylgi-
hluti fyrir gítar-
inn sinn svo eitt-
hvað sé nefnt.
| SÍÐA 11
Blaöil/Frikki
Húsköttur Húsdýragarðsins, Fluga, stendur vaktina í afgreiðslu garðsins. Á dög-
unum bárust fréttir af miklum músagangi í garðinum og neyddust forsvarsmenn
þar á bæ til þess að kalla til liðsauka frá Kattholti, Flugu til aðstoðar. Ekki hefur
Blaðið heimildir fyrir því hvort kalla hafi þurft út liðsaukann vegna slælegrar
frammistöðu Flugu við veiðarnar eða hvort músafjöldinn hafi einfaldlega borið
hana ofurliði.
Mannskæð
mótmæli í
Afganistan
Að minnsta kosti fjórir mótmæl-
endur féllu og 15 slösuðust í gær
þegar átök brutust út í bænum
Maymana í Afganistan á milli lög-
reglu og fólks sem mótmælti birt-
ingu umdeildra skopmynda af Mú-
hameð spámanni.
Mótmælendur réðust á búðir
norskra friðargæsluliða sem þar eru
á vegum Atlantshafsbandalagsins.
Fólkið kastaði bensín- og hand-
sprengjum á búðirnar en friðar-
gæsluliðarnir brugðust við með því
að skjóta gúmmíkúlum og táragasi
á mannfjöldann. Að minnsta
kosti fimm norskir friðargæslu-
liðar særðust í átökunum og tveir
finnskir. Einn starfsmaður íslensku
friðargæslunnar var á staðnum
og sakaði hann ekki. Breski her-
inn þurfti að senda liðsauka til
bæjarins til að verja búðirnar.
Einnig var ráðist á skrifstofu
Sameinuðu þjóðanna í Maymana
og hafa samtökin ákveðið að
flytja starfsfólk sitt frá bænum.
Ráðist á sendiráð Dana
Hópur mótmælenda réðist inn í
sendiráð Danmerkur í Teheran í
Iran í gærmorgun, annan daginn í
röð. Fólkið kastaði grjóti og bensín-
sprengjum í bygginguna og um 30
manns tókst að klifra yfir girðingu
sem er umhverfis sendiráðslóðina.
Lögregla reyndi að dreifa mann-
fjöldanum og stjórnvöld hvöttu
almenning til að sýna stillingu og
láta af árásum á sendiráð erlendra
ríkja. Per Stig Moller, utanríkis-
ráðherra Danmerkur, krafðist
þess að íranir verðu sendiráðið
og tryggðu öryggi starfsmanna.
Lögreglan
berskjölduð
gagnvart ofbeldi
Aðeins lítill hluti ofbeldisbrota
gagnvart lögreglumönnum enda
með dómi. Dæmi eru um að lög-
reglumenn hafi orðið öryrkjar og
þurft að láta af störfum sínum
vegna þess að þeir hafi verið beittir
ofbeldi. I ofanálag sleppur sá sem
brotið framdi við refsingu. Af um
4.500 málum sem kærð hafa verið
þar sem lögreglumenn hafa sætt
ofbeldi síðustu tuttugu árin hafa að-
eins rúmlega 200 endað með dómi.
Áhugaleysi og vanþekking ákæru-
valdins er talið valda þessu að mati
lögreglumanna. | S(ÐA4